Í október 2020 var greint frá því að útgerðarfélagið Bergur-Huginn, að öllu leyti í eigu Síldarvinnslunnar, hefði keypt útgerðarfélagið Berg ehf. í Vestmannaeyjum. Þegar kaupin voru opinberuð var ekki sagt frá því hvert kaupverðið var. Í ársreikningi Síldarvinnslunnar, sem birtur hefur verið á heimasíðu félagsins í aðdraganda skráningar hennar á íslenskan hlutabréfamarkað, er kaupverðið hins vegar tilgreint. Það var tæpir 4,9 milljarðar króna.
Berg hafði 1.514 þorskígildistonn til ráðstöfunar, eða um 0,36 prósent af heildarkvóta yfirstandandi fiskveiðiárs. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Bergs var virði fastafjármuna félagsins að frádregnum skuldum um 600 milljónir króna. Ef miðað er við að dótturfélag Síldarvinnslunnar hafi greitt þá krónutölu fyrir fastafjármunina, sem eru skip miðað við verðtryggingaverðmæti, þá er hefur félagið greitt um 4,3 milljarða króna fyrir aflaheimildir.
Miðað við að það markaðsverð hafi verið greitt fyrir 0,36 prósent af úthlutuðum kvóta ætti allur úthlutaður kvóta að kosta um 1.195 milljarða króna, eða um 41 prósent af vergri landsframleiðslu á árinu 2021.
Frjáls framsal og veðsetning kvóta
Kvótakerfinu var komið á með lögum árið 1983. Við úthlutun kvóta var miðað við aflareynslu síðustu þriggja ára og hann afhentur án endurgjalds. Framsal á kvóta var síðan gefið frjálst sem gerði það að verkum að viðskipti fóru að vera með þessa vöru sem var í upphafi lánuð án greiðslu.
Sumir útgerðarmenn seldu þá aflaheimildirnar sem þeim hafði verið úthlutað frítt, meðal annars vegna þess að þeir voru komnir af vinnualdri. Aðrir sáu sér einfaldlega leik á borði þegar kvótinn varð skyndilega orðinn verðmætur og innleystu hagnað og fjárfestu í öðrum atvinnugreinum. Enn aðrir seldu kvóta vegna hjónaskilnaðar. Og allt þar á milli.
Árið 1997 var svo gefin heimild til að veðsetja aflaheimildir fyrir lánum, sem voru notuð til að kaupa upp kvóta eða eftir atvikum aðrar eignir.
Fyrir vikið hækkuðu aflaheimildirnar hratt í verði og mjög margir urðu mjög ríkir.
Þessi staða leiddi til þess að flest fólk sem byrjaði með tvær hendur tómar hefur ekki lengur tök á að kaupa sér nokkra tugi tonna af kvóta og bát með. Það er ekki á færi annarra en sterkefnaðra. Auk þess er stærðarhagkvæmni í greininni orðin svo ráðandi þáttur að erfitt er að „keppa“ við stærri fyrirtækin þegar kemur að verðum á markaði og stærstu sjávarútvegsfyrirtækin eiga heilu virðiskeðjunnar í heild sinni.
Í stað þess að það verði mikil endurnýjun eða nýliðun í greininni þá selja yfirleitt eldri útgerðarmenn, hvort sem er í smáútgerðum eða stærri, sem eiga litla kvótapakka, til stóru útgerðarfyrirtækjanna sem sjá sér hag í að bæta við kvóta og hagræða enn frekar í rekstri, enda hafa þau yfir að ráða tækjum og tólum til að nýta kvótann betur, með hagkvæmri vinnslu.
Og frekari samþjöppun verður.
Í árslok 2008 var eigið fé íslensks sjávarútvegs sem heildar neikvætt um 80 milljarða króna, aðallega vegna þess atvinnuvegurinn hafði tekið lán í erlendum gjaldmiðlum í stórum stíl, með veði í kvótanum. Heildarskuldir sjávarútvegarins gagnvart bönkunum stóðu í 560 milljörðum króna á þeim tíma.
Veðsettur kvóti var samt ekki innkallaður heldur samið við flest sjávarútvegsfyrirtækin um aðlögun á lánum, vöxtum og afborgunum. Svokölluð sáttanefnd sem skipuð var eftir hrunið lagðist líka gegn því að ríkið innkallaði kvótann þar sem að það myndi setja lán sjávarútvegsfyrirtækja hjá bönkum í uppnám, sem myndi setja rekstarforsendur endurreistu bankanna í uppnám.
Hagur sjávarútvegsfyrirtækjanna vænkaðist hratt eftir þetta. Frá hruni og út árið 2018 batnaði eiginfjárstaða þeirra, samkvæmt Sjávarútvegsgagnagrunni Deloitte, um 376 milljarða króna. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 103,2 milljarða króna til eigenda sinna í arðgreiðslur. Hagur sjávarútvegsfyrirtækjanna hefur því vænkast um að minnsta kosti 479,2 milljarða króna frá hruni.
Samherjar halda á miklu
Miðað við síðasta birta lista Fiskistofu um þær aflaheimildir sem hvert fyrirtæki heldur á þá er Síldarvinnslan, ásamt dótturfélögum, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 7,7 prósent hans. Miðað við það sem var greitt fyrir aflaheimildir Bergs ætti virði þess kvóta að vera um 92 milljarðar króna. Aflaheimildir Síldarvinnslunnar eru bókfærðar á um 30 milljarða króna. Tveir stærstu eigendur Síldarvinnslunnar eru Samherji og Kjálkanes.
Næst stærsta fyrirtækið á listanum yfir þær útgerðir sem erum með mestu aflahlutdeild í íslenskri efnahagslögsögu er einmitt Samherji.
Samherji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Samherja, er með næst mesta aflahlutdeild í íslenskri efnahagslögsögu allra sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi, eða 7,3 prósent. Útgerðarfélag Akureyrar, sem er líka í 100 prósent eigu Samherja, heldur svo á 1,7 prósent kvótans. Samanlagt heldur Samherji því á níu prósent úthlutaðra veiðiheimilda.
Gjögur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálkanes, heldur svo á 2,3 prósent af öllum úthlutuðum aflaheimildum, sem er 27,5 milljarða króna virði.
Samherji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Samherja, er með næst mesta aflahlutdeild í íslenskri efnahagslögsögu allra sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi, eða 7,3 prósent. Útgerðarfélag Akureyrar, sem er líka í 100 prósent eigu Samherja, heldur svo á 1,7 prósent kvótans.
Samanlagt virði þessa kvóta sem Samherji heldur á, miðað við síðustu gerðu viðskipti með aflaheimildir, er því um 107,6 milljarðar króna.
Þessir aðilar: Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur, sem Samkeppniseftirlitið telur mögulegt að séu tengdir, halda því samtals á 19 prósent af öllum úthlutuðum kvóta. Markaðsvirði hans er um 227 milljarðar króna.
Nokkrar blokkir fyrirferðamiklar
Brim, sem er skráð á markað, er sú útgerð sem heldur beint á mestum kvóta, eða 10,41 prósent hans. Útgerðarfélag Reykjavíkur, sem á 43,97 prósent hlut í Brim beint og í gegnum dótturfélag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,57 prósent af öllum aflaheimildum. Útgerðarfélag Reykjavíkur er að uppistöðu í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims.
Til viðbótar heldur útgerðarfélagið Ögurvík, að fullu í eigu Brims, á 1,43 prósent af úthlutuðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 15,51 prósent af úthlutuðum kvóta. Markaðsvirði hans er um 184,1 milljarðar króna miðað við síðustu viðskipti með kvóta.
Kaupfélag Skagfirðinga á FISK Seafood, sem heldur á 5,51 prósent heildarkvótans. FISK á 32,9 prósent í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum sem er með 4,5 prósent heildaraflahlutdeild. Þá á Vinnslustöðin 48 prósent hlut í útgerðarfélaginu Huginn í Vestmannaeyjum, sem heldur á 0,8 prósent af útgefnum kvóta.
FISK á til viðbótar allt hlutafé í Soffanías Cecilsson, en það fyrirtæki heldur á um 0,27 prósent kvótans. Samtals nemur heildarkvóti þessara þriggja rétt yfir ellefu prósent, og er því undir 12 prósent markinu þótt þeir yrðu skilgreindir með öðrum hætti.
Markaðsvirði þess kvóta, miðað við síðustu gerðu viðskipti, er um 132,4 milljarðar króna.
Þessar þrjár blokkir, sú sem hverfist í kringum Samherja, sú sem hverfist í kringum Brim og sú sem hverfist í kringum útgerð Kaupfélags Skagfirðinga, heldur því samtals á 45,6 prósent af öllum úthlutuðum kvóta. Samanlagt markaðsvirði hans er um 544,8 milljarðar króna.
Alls er 67,4 prósent alls úthlutaðs afla í höndum 15 útgerða sem margar hverjar tengjast innbyrðis.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir