„Hallgrímur Helgason rithöfundur er ekki skráður eigandi Teslu“

Lög­mað­ur­inn Þorbjörn Þórð­ar­son fletti upp eignum rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar til að kom­ast að því hvort hann ætti Teslu, sem er í eigu nágranna hans. Hug­myndin var að nota meinta Teslu-eign gegn honum á opin­berum vett­vangi.

Vörn Samherja í bar­átt­unni um almanna­á­litið eftir að Namib­íu­málið kom upp á yfir­borðið síðla árs 2019 hefur tekið á sig ýmsar myndir. Sumar skringi­legri en aðrar. Lög­mað­ur­inn og almanna­tengsla­ráð­gjaf­inn Þorbjörn Þórð­ar­son not­aði til dæmis bæði fast­eigna­skrá Þjóð­skrár og öku­tækja­skrá Sam­göngu­stofu til þess að fletta upp eignum rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar, í kjöl­far þess að Hall­grímur setti fram gagn­rýni á Samherja í des­em­ber árið 2019. Þetta sýna þau sam­skipta­gögn sem Kjarninn hefur undir höndum glögg­lega fram á.

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri hjá Samherja sagði Þorbirni að hann teldi að Hall­grímur ætti raf­magns­bíl af gerð­inni Tesla. Samkvæmt sam­skipt­unum ætti það að gefa til­efni til þess að koma höggi á rit­höf­und­inn á opin­berum vett­vangi — að koma því á fram­færi að hann ætti rán­dýran raf­magns­bíl — ver­andi á sama tíma á lista­manna­launum. Páll sagð­ist ein­ungis þurfa að fá það stað­fest að Hall­grímur ætti Tesluna sem stæði í grennd við heim­ili hans, en ekki nágranni hans.

Ekki kemur fram í þessum sam­skiptum hvernig Páll öðl­að­ist vit­neskju um að Tesla-bif­reið stæði stundum nærri heim­ili Hall­gríms í Reykja­vík. Sú kenn­ing hans var sett fram í tölvu­pósti til Þor­björns ásamt öðrum „efni­við“ sem mætti nýta til þess að rægja ein­stak­linga.

„Svakalegt“ að uppgötva njósnir um heimilið

Hall­grímur segir við Kjarnann að honum hafið brugðið við að heyra af þessu. „Þetta er svaka­legt, að upp­götva að það sé verið að njósna um heim­ili manns, skoða hvaða bíla maður á og á ekki og fletta upp eignum manns.“

Tesla-bif­reiðin sem um ræðir er í eigu nágranna Hall­gríms. „Ég á mjög góða granna, við búum í tví­býl­is­húsi og deilum inn­keyrslu. Það er skugga­legt að sjá svona vinnu­að­ferðir, ekki síst þar sem þetta er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins og þeir menn sem þar ráða eru mjög valda­miklir og bein­tengdir inn í rík­is­stjórn Íslands,“ segir Hall­grímur.

Hann skýtur því að í sam­tali við blaða­mann að hann telji Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra aldrei hafa tjáð sig með skýrum og afger­andi hætti um mál­efni Samherja og fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins síðan Namib­íu­málið kom upp á yfir­borðið.

„Ég á ekki von á neinu frá Katrínu núna heldur þar sem Samherji á einn ráð­herra við rík­is­stjórn­ar­borðið. Það er ekki furða að Samherji telji sig geta kom­ist upp með allt,“ segir Hall­grímur.

Reglur gilda um uppflettingar lögmanna

Lögmenn geta fengið sér­stakan aðgang að bæði fast­eigna­skrá og öku­tækja­skrá í krafti starfs­rétt­inda sinna, en sá aðgangur er hins vegar háður ákveðnum tak­mörk­unum.

Til dæmis skal gæta að því að óvið­kom­andi kom­ist ekki yfir upp­lýs­ingar sem lög­maður fær úr fast­eigna­skrá og söfnun upp­lýs­inga úr fast­eigna­skránni er raunar með öllu óheimil nema not­and­inn hafi lögvarða hags­muni af slíkri söfnun. Tekið er fram á vef Þjóð­skrár að mis­notkun kunni að varða við lög.

Í öku­tækja­skrá mega lög­menn síðan ein­ungis fletta upp eftir kenni­tölum ef þeim hefur verið falið að inn­heimta kröfur eða ef þeir eru að fara með skipti þrota­bús eða dán­ar­bús. Sam­göngu­stofa seg­ist loka var­an­lega á aðgang lög­manna sem fari ítrekað á svig við þessar reglur, en við fyrsta brot skal loka aðgangi lög­manns í 3 mán­uði.

Erfitt er að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að ein­hverjum þess­ara skil­yrða hafi verið mætt 20. des­em­ber 2019, þegar Þorbjörn fletti upp eignum rit­höf­und­ar­ins og félags í hans eigu, í því skyni að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort hann gæti mögu­lega átt Teslu.

„Ég get flett því upp í öku­tækja­skrá. Ég hef aðgang að öllum fast­eignum, öku­tækjum og skipum,“ sagði lög­mað­ur­inn í tölvu­pósti til Páls, sem svar­aði um hæl: „Glæsi­legt 😀 þú ert rétti mað­ur­inn fyrir okkur hjá Samherja 😃“.

Nokkru seinna svar­aði Þorbjörn aftur. „Hall­grímur Helgason rit­höf­undur er ekki skráður eig­andi Teslu,“ sagði lög­mað­ur­inn og rakti svo að Hall­grímur ætti tvo bíla af Hyundai-gerð, ann­ars vegar Santa Fe og hins vegar Galloper-jeppa. Einnig fylgdi sög­unni að Hall­grímur hefði áður átt Skoda-bif­reið af gerð­inni Octavia en selt hana árið 2007.

Þorbjörn kom því einnig á fram­færi við Pál hvaða fast­eign rit­höf­und­ur­inn ætti sam­kvæmt fast­eigna­skrá og fletti sömu­leiðis upp einka­hluta­fé­lagi Hall­gríms, sem átti hvorki fast­eign né bif­reið, sam­kvæmt athugun lög­manns­ins og almanna­tengsla­ráð­gjafans.

„Þannig að ef að Hall­grímur hefur aðgang að Teslu þá er hún hvorki í hans eigu né félags­ins,“ skrif­aði lög­mað­ur­inn í svar­pósti sínum, sem bar ein­fald­lega heitið „Eignir Hall­gríms Helga­sonar“. Þar með var það mál úr sög­unni — Tesla í eigu ein­hvers ann­ars en Hall­gríms gat ekki verið notuð til að koma höggi á rit­höf­und­inn.

Þorbjörn og Páll rökræddu við þingmenn

Rit­höf­und­ur­inn Hall­grímur kom þó aftur við sögu í sam­skiptum þeirra Þor­björns og Páls. Hall­grímur setti inn færslu í hóp­inn Fjöl­miðlanördar á Facebook snemma í ágúst árið 2020 og gagn­rýndi þar frétt Morg­un­blaðs­ins um sam­an­tekin reikn­ings­skil þeirra fyr­ir­tækja sem Samherji starf­rækti í Namibíu á árunum 2012-2018, sem sett var fram undir fyr­ir­sögn­inni „Ekkert arð­rán átt sér stað“.

Vert er að taka fram að Morg­un­blaðið fékk aðgang að gögnum um rekstur Samherja í Namibíu frá Samherja sjálfum og byggði frétt­ina á þeim og full­yrð­ingum Björg­ólfs Jóhanns­sonar þáver­andi starf­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, sem sagð­ist vona til þess að birt­ing þess­ara upp­lýs­inga yrði til þess að umfjöllun fjöl­miðla um Samherja yrði „sann­gjarn­ari“. Einnig er vert að taka fram að Samherji brást ekki við ósk Kjarnans um afhend­ingu sömu gagna, sem sett var fram í kjöl­far þess að frétt Morg­un­blaðs­ins birt­ist.

Hall­grímur setti inn gagn­rýni á frétta­flutn­ing Moggans af töl­unum frá Sam­herj­a­sam­stæð­unni — sagði raunar að það væri gott að eiga fjöl­miðil „ef maður er glæpon!“ og út frá því spunn­ust miklar umræður, enda eld­fim yfir­lýs­ing.

Hér ber að taka fram að Samherji á ekki lengur hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, en sá eign­ar­hlutur var seldur Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík með selj­enda­láni frá Samherja sjálfum.

Páll kom Samherja til varnar í þeim leðjuslag sem átti sér stað í kommenta­kerf­inu, með hjálp Þor­björns.

Lög­mað­ur­inn sendi Páli tölvu­póst með til­lögu að svari til Hall­gríms, sem birt­ist síðan orð­rétt undir nafni Páls í umræð­unni – reyndar með smá nið­ur­lagi sem virð­ist frá Páli sjálfum komið. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata svar­aði athuga­semd Páls og nokkur orða­skipti urðu þeirra á milli í fram­hald­inu.

Þorbjörn Þórð­ar­son var áfram á hlið­ar­lín­unni.

Í sam­skiptum Þor­björns og Páls þennan dag, 9. ágúst 2020, má finna tvo tölvu­pósta frá Þorbirni sem bera heitin „Svar við kommenti Björns Leví“ og „Svar til Björns Leví nr. II“. Bæði svörin sem Þorbjörn sendi birti Páll algjör­lega orð­rétt undir sínu eigin nafni í orða­skiptum sínum við þing­mann­inn.

Björn Leví er ekki eini þing­mað­ur­inn sem Þorbjörn hefur svarað í gegnum Pál í ein­hverjum rifr­ildum á inter­net­inu um Namib­íu­málið eða önnur mál sem snerta Samherja. Þorbjörn átti nefni­lega líka svar á reiðum höndum fyrir Helgu Völu Helga­dóttur þing­mann Sam­fylk­ingar, seinna í þess­ari sömu umræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár