Færeyjaáætlun skæruliðadeildarinnar

Und­an­farna mán­uði hafa starfs­menn Samherja velt vöngum yfir því hvernig ætti að bregð­ast við fréttum fær­eyska Kringvarps­ins. Fulltrúi fyr­ir­tæk­is­ins kom sér í sam­band við fær­eyskan rit­stjóra í þeim yfir­lýsta til­gangi að rægja fær­eyskt frétta­fólk.

Teymið sem hefur frá árs­lokum 2019 staðið í því að verja orð­spor Samherja með ýmsum leiðum hefur ekki ein­göngu beitt kröftum sínum í að reyna að rétta af almenn­ings­á­litið hér á Íslandi. Und­an­farna tvo mán­uði hefur nokkuð púður einnig farið í það, hjá þessum hópi fólks, að hugsa um hvernig takast skuli á við frétta­flutn­ing Kringvarps­ins, rík­is­sjón­varps­ins í Færeyjum, af umsvifum Samherja. Þetta má lesa út úr sam­skipta­gögnum fólks innan Samherja sem Kjarninn hefur undir höndum.

Fulltrúi fyr­ir­tæk­is­ins, skip­stjór­inn Páll Stein­gríms­son, kom sér til dæmis í sam­band við rit­stjóra fær­eyska blaðs­ins Dimma­lætt­ing þann 8. apríl í þeim yfir­lýsta til­gangi að reyna að koma á fram­færi ein­hverjum upp­lýs­ingum sem gætu dregið úr trú­verð­ug­leika tveggja frétta­manna Kringvarps­ins, þeirra Jan Lamhauge og Barböru Holm. Þau tvö leiddu gerð heim­ilda­þátt­anna Teir ómettiligu, sem fjall­aði um tengsl Sam­herj­a­máls­ins til Færeyja.

Páll sagð­ist geta sýnt rit­stjór­anum fram á að frétta­menn­irnir í Færeyjum hefðu gengið óheið­ar­lega fram í sinni vinnu. Stjórn­ar­for­maður Samherja, lög­fræð­ingur Samherja, utan­að­kom­andi almanna­tengsla­ráð­gjafi og for­stjóri útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fram­herja í Færeyjum voru því næst tengd beint við rit­stjóra blaðs­ins í tölvu­póst­sam­skiptum.

Tekið skal fram að þessi sam­skipti náðu ekki lengra, sam­kvæmt því sem rit­stjóri fær­eyska mið­ils­ins segir við Kjarnann. Æðstu stjórn­endur hjá Samherja eru þó sagðir hafa vitað af þessum til­raunum. Páll gort­aði sig nán­ast af því í sam­tali við lög­fræð­ing­inn Örnu McClure að Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri hefði lýst yfir ánægju með að greið­lega hefði gengið að koma á sam­bandi við fær­eyskan fjöl­miðil. Það hefði Björgólfur Jóhanns­son fyrr­ver­andi for­stjóri sömu­leiðis gert — „Bubba fannst þetta sturlað“.

Teir ómettiligu

Umfjöllun Kringvarps­ins í Færeyjum, sem sett var fram í tveimur þáttum í mars og apríl, hefur haft það í för með sér nú þegar að Samherji hefur fall­ist á að greiða jafn­virði hátt í 350 millj­óna íslenskra króna til fær­eyska rík­is­ins.

Í fyrri þætt­inum af Teir ómettiligu var ljósi nefni­lega varpað á að sam­stæðan hefði árum saman verið að fá skatta­af­slætti í Færeyjum með því að skrá sjó­menn sem voru í reynd við veiðar í Namibíu sem starfs­menn á frakt­skipum fær­eysks dótt­ur­fé­lags síns.

Þætt­irnir voru teknir til sýn­inga á RÚV um miðjan apríl, með viku milli­bili. Af sam­tölum á milli starfs­manna og ráð­gjafa Samherja má ráða að bæði hafi verið hugsað um hvernig mætti taka til varna í Færeyjum og hér heima gagn­vart því sem fram kom í umfjöllun Kringvarps­ins.

Lítið virð­ist hafa verið hugsað um að koma athuga­semdum á fram­færi við efni þátt­anna sem slíkra, en Samherji brást ekki við spurn­ingum sem fær­eysku frétta­menn­irnir sendu full­trúum fyr­ir­tæk­is­ins vegna þeirra atriða sem sagt var frá í þátt­unum.

Mikill „höggstaður“ talinn á ritstjóra Kjarnans

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, var feng­inn til þess að vera álits­gjafi í seinni þætti Kringvarps­ins. Þar sagði hann meðal ann­ars að mál Seðla­bank­ans gegn Samherja vegna meintra brota gegn reglum um gjald­eyr­is­mál hefði verið látið niður falla vegna ann­marka sem í ljós kom að höfðu verið á setn­ingu reglna um gjald­eyr­is­mál árið 2008. Hann benti á að það hefði vantað und­ir­skrift ráð­herra á reglu­gerð­ina. Einnig sagði Þórður í þætt­inum að fáir á Íslandi vissu hvernig Seðla­banka­málið hefði í raun verið vaxið, ekki síst vegna ára­langrar almanna­tengsla­her­ferðar Samherja gegn Seðla­bank­anum. Tekist hefði að þvæla málið fram og til baka.

Þessi ummæli Þórðar, sem eru í fullum takti við nið­ur­stöðu dóms Hæsta­réttar og opin­berar yfir­lýs­ingar Seðla­bank­ans um málið, fóru öfugt ofan í lög­mann­inn Örnu McClure. „Það er bull,“ sagði Arna ein­fald­lega þegar Páll vakti athygli á orðum rit­stjór­ans um ann­mark­ana sem voru til staðar við setn­ingu reglu­gerð­ar­innar, í sam­tali þeirra.

Páll sagð­ist, eftir að þátt­ur­inn var tek­inn til sýn­ingar í Færeyjum, hafa komið því áleiðis til for­stjór­ans Þor­steins Más Bald­vins­sonar að það væri ljóst Þórður Snær gæfi „gríð­ar­legan högg­stað á sér“ með fram­komu sinni í fær­eyska heim­ilda­þætt­inum.

Í spjall­þræði sögðu svo annað hvort Arna eða Þorbjörn Þórð­ar­son þann 14. apríl að Þórður Snær hefði með orðum sínum í þætt­inum talað niður til íslensku þjóð­ar­innar. „Allir eru vit­lausir, nema hann sjálfur.“

Stjórnarformaður Samherja tengdur við færeyskan ritstjóra

Eftir sýn­ingu seinni þátt­ar­ins í Færeyjum fór Páll á stúf­ana og hafði sam­band við rit­stjóra blaðs­ins Dimma­lætt­ing, sem er elsta blað Færeyja og hóf göngu sína síðla á 19. öld. Það kemur í dag út sem viku­blað. Þann 8. apríl sendi Páll rit­stjór­anum, Sveinur Trónd­ar­son, tölvu­póst og sagði að hann hefði fengið upp­lýs­ingar um það frá frænda sínum sem þekkti til í fær­eyska fjöl­miðla­geir­anum að rit­stjór­inn væri „ekki aðdá­andi“ frétta­manna Kringvarps­ins, þeirra Jans og Barböru.

„Ef fyr­ir­tækið mitt Samherji myndi senda þér upp­lýs­ingar sem sýna að það sem Barbara og Jan eru að gera er ekki það sem heið­virðir blaða­menn ættu að gera, hefðir þú áhuga á að skoða skjölin[?] Ég kem þér í sam­band við alla innan fyr­ir­tæk­is­ins sem þú vilt,“ skrif­aði Páll til fær­eyska rit­stjór­ans, sem svar­aði um hæl.

Færeyska blaðið Dimmalætting hefur verið gefið út óslitið frá því á ofanverðri 19. öld. Lengi vel var það málgagn Sambandsflokksins færeyska, sem er systurflokkur Venstre í Danmörku. Slitið var á formleg tengsl flokks og blaðs á tíunda áratugnum.
Færeyska blaðið Dimma­lætt­ing hefur verið gefið út óslitið frá því á ofan­verðri 19. öld. Lengi vel var það mál­gagn Sam­bands­flokks­ins fær­eyska, sem er syst­ur­flokkur Venstre í Danmörku. Slitið var á form­leg tengsl flokks og blaðs á tíunda ára­tugnum.

„Auðvitað hef ég áhuga á upp­lýs­ing­unum. Ég þekki stíl Jan og Barböru og er algjör­lega ekki aðdá­andi. Láttu mig bara vita hvenær þú er til­bú­inn að senda skjölin,“ sagði rit­stjór­inn í svari sínu. Í kjöl­farið þakk­aði Páll rit­stjór­anum fyrir að vilja „vinna með“ Samherja og tengdi hann við þá ein­stak­linga innan Samherja sem hann sagði að myndu sjá um málið frá þeirra hlið, með því að setja umrædda ein­stak­linga inn í tölvu­póst­þráð­inn í cc.

„Hr. Eiríkur Jóhanns­son er stjórn­ar­for­maður Samherja hf., móð­ur­fé­lags Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Arna McClure er inn­an­hússlög­fræð­ingur, Hr. Anfinn Olsen gætir þú þekkt, hann stýrir starf­sem­inni í Færeyjum og Þorbjörn Þórð­ar­son er utan­að­kom­andi almanna­tengsla­ráð­gjafi,“ skrif­aði Páll. Þessi upp­taln­ing er reyndar frá Örnu McClure komin, en hún setti hana fram til Páls á spjall­þræði fyrr um dag­inn.

Ritstjórinn segist ekki hafa fengið upplýsingar – en segist ekki líta á fréttamenn KvF sem blaðamenn

Kjarninn bar þessi sam­skipti undir Sveinur, rit­stjóra Dimma, eins og blaðið er jafnan kallað í dag­legu tali. Honum var boðið að koma sinni sýn á sam­skiptin fram. Hann stað­festir að þessi sam­skipti hafi átt sér stað, „full­trúi Samherja“ hafi sett sig í sam­band og boðið fram ein­hver gögn um þau Jan og Barböru og meint óheið­ar­leg vinnu­brögð þeirra.

Færeyski rit­stjór­inn dregur ekki dul á að honum mis­líki aðferðir frétta­manna Kringvarps­ins. Þau eru að hans mati á lágu plani í sinni blaða­mennsku og segir hann að sum þeirra nýj­ustu mál í Færeyjum hafi ekki ein­ungis reynst „til­hæfu­laus og röng“ heldur hafi þau Barbara og Jan „valið sér hliðar í flóknum umfjöll­unum,“ sakað fólk um lög­brot og sömu­leiðis opin­berað heim­ild­ar­menn til lög­reglu.

„Svo auð­vitað lang­aði mig að sjá gögnin,“ segir Sveinur í skrif­legu svari til Kjarnans.

Hann seg­ist síðan hafa misst áhug­ann á mál­inu síðar sama dag, þegar hann var tengdur við „eitt­hvað fólk“ hjá Samherja. „Ég missti áhug­ann, því það var greini­lega ekki áætl­unin að ég fengi gögnin send, það var búist við því af mér að ég hefði sam­band við íslenska fyr­ir­tækið og myndi síðan fá ein­hverjar upp­lýs­ingar.“

Færeyska fréttafólkið Jan Lamhauge og Barbara Holm.
Færeyska frétta­fólkið Jan Lamhauge og Barbara Holm.

„Ég er full­orð­inn maður og þarf ekki að láta neinn halda í hönd­ina á mér á meðan ég les efni, svo ég sleppti þessu bara,“ segir Sveinur og bætir við: „Það breytir þó ekki til­finn­ingum mínum í garð vinnu þeirra Jans og Barböru. Að mínu mati eru þau ekki blaða­menn. Þau eru akti­vistar og aðferðir þeirra skaða allar fréttir sem þau snerta. Því er engin ástæða fyrir nokkurn mann að ófrægja Jan og Barböru, þau hafa ófrægt sig sjálf með fjölda greina og þátta í fær­eyskum fjöl­miðlum.“

Sveinur hnykkir út með því að segj­ast engan áhuga hafa á máli Samherja – hann hafi ekki notað svo mikið sem eina mín­útu af tíma sínum í að skoða það.

Varðhundar valdsins séu víða í Færeyjum

Barbara Holm, frétta­maður Kringvarps­ins, segir í skrif­legu svari til Kjarnans að það komi henni ekki á óvart að heyra af því að Samherji hafi verið með ein­hverjar áætl­anir um að bregð­ast við því sem fram kom í Teir ómettiligu með „óvenju­legum aðferðum“.

Kjarninn bar áður­nefnd sam­skipti full­trúa Samherja og rit­stjóra Dimma­lætt­ing undir hana og einnig svar rit­stjór­ans, sökum þess hve harð­lega hann kaus að gagn­rýna hana og Jan Lamhauge.

„Að mínu mati hefði verið heið­ar­legra af Samherja að svara spurn­ingum okkar, í stað þess að reyna að kokka upp leiðir til að draga úr trú­verð­ug­leika okkar. Við reyndum ítrekað að hafa sam­band við Samherja þegar við vorum að vinna heim­ild­ar­þætt­ina. Það virt­ist sem Samherji hefði hundsað spurn­ing­arnar. En nú er það ljóst að þau tóku vel á eftir okkur bak­við tjöldin, þar sem það virð­ist hafa verið áætlun þeirra að svara með óvenju­legum aðferðum,“ segir Barbara.

Þetta segir hún ekki með öllu óvið­búið, „þar sem við höfum öll tekið eftir þeirri öfga­fullu með­ferð sem Helgi Seljan og aðrir blaða­menn á Íslandi hafa fengið frá Samherja.“

„Skattayfirvöld tilkynntu Samherja til lögreglunnar og Samherji sjálfur hefur þegar greitt 17 milljónir danskra króna til skattayfirvalda síðan þættirnir fóru í loftið fyrr á árinu. Þetta veit Sveinur Tróndarson,“ segir Barbara Holm.
„Skatta­yf­ir­völd til­kynntu Samherja til lög­regl­unnar og Samherji sjálfur hefur þegar greitt 17 millj­ónir danskra króna til skatta­yf­ir­valda síðan þætt­irnir fóru í loftið fyrr á árinu. Þetta veit Sveinur Trónd­ar­son,“ segir Barbara Holm.

Kjarninn beindi þeirri spurn­ingu til Barböru hvort hún hefði orðið vör við ein­hvern þrýst­ing eða ómak­lega gagn­rýni sem hún teldi að mætti rekja til Samherja, beint eða óbeint, eftir að þætt­irnir birt­ust í mars og apríl. Sumir fær­eyskir fjöl­miðlar voru afar gagn­rýnir á seinni þátt­inn af Teir ómettiligu og eftir því tók fólkið sem kallar sig „skæru­liða­deild Samherja“ sín á milli.

Í spjalli á milli Páls og Örnu var meðal ann­ars vísað í nafn­lausan dálk í fær­eyska vef­miðl­inum Vága­portalnum sem birt­ist 10. apríl undir fyr­ir­sögn­inni „Stormur í einum snapsaglasi“ en þar voru efn­is­tökin í Teir ómettiligu og þau Barbara og Jan gagn­rýnd harð­lega. Þótti Sam­herj­a­fólk­inu fyr­ir­sögnin segja alla sög­una um það sem hefði komið fram í fær­eysku frétta­þátt­unum.

Barbara segir það ekki eins­dæmi að hjólað sé per­sónu­lega í frétta­menn í Færeyjum.

„Reynsla okkar á und­an­förnum árum er því miður sú að það er fólk í Færeyjum, bæði í fjöl­miðlum og í stjórn­mála­el­ít­unni, sem sjálf­krafa stendur með fyr­ir­tækjum og fólki í valda­stöðum, þegar við setjum fram gagn­rýnar fréttir. Því er það ekki óal­gengt að sjá bæði blaða­menn og stjórn­mála­fólk reiða fram ódýr högg gegn blaða­mönn­unum sem segja frétt­irnar, og koma þeim ríku og valda­miklu til varnar umsvifa­laust. Reynslu­miklir blaða­menn hafa jafn­vel tekið að sér skamm­tíma­stöður í almanna­tengslum fyrir stór fyr­ir­tæki með þann eina til­gang að draga úr trú­verð­ug­leika blaða­mann­anna sem fjalla um þau.“

Þetta segir Barbara að sé orð­inn hluti af því að flytja gagn­rýnar fréttir eins og þær sem sagðar voru af Samherja og félögum tengdum fyr­ir­tæk­inu í Færeyjum á dög­unum. Hún seg­ist hafa tekið eftir því að Sveinur, rit­stjóri Dimma­lætt­ing, hafi lagt sig sér­stak­lega fram við að tor­tryggja hana sjálfa og Kringvarpið síð­ustu vikur. Hún segir enn­fremur „aug­ljóst“ að frétt­irnar sem voru fluttar í þáttum Kringvarps­ins hafi ekki verið stoð­lausar.

„Skatta­yf­ir­völd til­kynntu Samherja til lög­regl­unnar og Samherji sjálfur hefur þegar greitt 17 millj­ónir danskra króna [tæpar 350 millj­ónir íslenskra króna] til skatta­yf­ir­valda síðan þætt­irnir fóru í loftið fyrr á árinu. Þetta veit Sveinur Trónd­ar­son.“

„Ef til vill ætti Sveinur að horfa með gagn­rýnum hætti á sjálfan sig og spyrja sig spurn­inga — af hverju er hann einn sá fyrsti sem Samherji setur sig í sam­band við þegar þau vilja dreifa drullu um blaða­menn sem fjalla um þau, án þess að óhreinka hendur sínar sjálf?“ segir Barbara.

Hvað átti að gera með yfirlýsingu Anfinn?

Anfinn Olsen, for­stjóri og aðal­eig­andi útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fram­herja, sem Samherji á tæpan fjórð­ungs­hlut í, sagði í seinni þætti Teir ómettiligu, að hann hefði ekki haft vit­neskju um að pen­ingar hefðu verið fluttir á milli Fram­herja og dótt­ur­fé­lags Samherja á Kýpur. Í alls 16 skipti. Þetta olli nokkrum kurr í fær­eyskum stjórn­málum, enda eiga fær­eysk lög að koma í veg fyrir að útlend­ingar fari með stjórn þar­lendra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.

Það að for­stjór­inn og aðal­eig­and­inn sjálfur gæfi til kynna að hann vissi ekki af ítrek­uðum milli­færslum til Kýp­ur­fé­lags þótti gefa vís­bend­ingu um að hann færi hreint ekki með stjórn­ar­taumana í öllum til­vikum.

Anfinn dró síðan ummæli sín til baka, sagði þau hafa verið tekin úr sam­hengi, sak­aði frétta­menn Kringvarps­ins um að afbaka það sem satt og rétt væri og hélt því fram að mynda­vélar Kringvarps­ins hefðu verið látnar rúlla þegar hann sjálfur hefði talið við­tal­inu lokið. Þá sagð­ist hann harma að hafa ekki und­ir­búið sig betur fyrir við­talið, en umræddir fjár­magns­flutn­ingar á milli Kýpur og Færeyja hefðu tengst skipa­við­skiptum.

Þetta kom allt saman fram í frétta­til­kynn­ingu frá Anfinn sem birt­ist á vef Fram­herja og Sam­herj­a­fólk lét snara yfir á íslensku, en Þor­steinn Már leit­að­ist sjálfur eftir því að fá til­kynn­ingu Fram­herja þýdda og spurði Pál í sam­tali þeirra á milli hvort hann vissi um ein­hvern sem gæti þýtt hana.

Þegar frétta­til­kynn­ingin var komin yfir á íslensku voru þó áhöld um hvað ætti að gera við hana, en á sam­eig­in­legum spjall­þræði i Þor­björns, Örnu og Páls kom meðal ann­ars fram að ef til vill væri óheppi­legt að birta hana á vef Samherja. Þessar umræður áttu sér stað um það leyti sem taka átti seinni hluta fær­eysku heim­ild­ar­mynd­ar­innar til sýn­inga á RÚV, en það var gert 21. apríl.

„Senda þýð­ing­una til starfs­fólks Samherja? Og val­inna blaða­manna?“ var ein til­laga sem kom fram í spjall­inu. Lyk­il­at­riði þótti að koma því á fram­færi að fær­eysku frétta­menn­irnir hefðu látið mynda­vél­arnar rúlla eftir að Anfinn hefði haldið að við­talið væri búið.

Bent var á að það væri margir val­kostir í boði og margt sem þyrfti að huga að, til dæmis væri lítið áhorf á RÚV eftir kl. 22:20 á kvöldin. Kannski myndi þátt­ur­inn ekki vekja mikla athygli. Í spjall­inu komu fram sjón­ar­mið um að ef til vill væri hyggi­legt að vekja ekki „óþarfa athygli“ á því að RÚV væri með fær­eyska þátt­inn á dag­skrá.

Ekki var heldur algjör sátt með íslensku þýð­ing­una á frétta­til­kynn­ingu Anfinn. Afmark­aður hluti hennar þótti ekki endi­lega hjálpa Samherja. „Ég merkti með rauðu texta í þýð­ingu á grein Anfinns sem mér finnst ekki endi­lega hjálpa okkur. Það er neðst á bls. 3. Við þurfum helst að fá leyfi Anfinns til að bæta þar við setn­ingu um að þessi ólög­legu og ósið­legu við­skipti hafi hrein­lega ekki átt sér stað enda fer hann ítar­lega yfir það framar í grein­inni að við­skiptin voru á allan hátt eðli­leg,“ segir í spjall­inu.

Rauð­letr­aði text­inn í grein Anfinn var svona, sam­kvæmt skjali sem Kjarninn hefur undir höndum: „Það hefur verið íþyngj­andi fyrir mig, fjöl­skyldu mína og okkur öll í Fram­herja að vera svert á þennan hátt í sjón­varp­inu og vera ásökuð um að taka þátt í ein­hverjum ólög­legum og ósið­legum við­skiptum, sem ég á enga aðild að.“

Þarna vildi Sam­herj­a­fólk að Anfinn tæki sterkar til orða og vís­aði því á bug að um nokk­urs konar ólög­leg eða ósið­leg við­skipti gæti verið að ræða.

„Ég held að það sé rétt að senda þýð­ing­una til starfs­fólks en ekki birta á heima­síð­unni. Ástæðan er sú að við viljum við­halda fjar­lægð milli Samherja og Fram­herja enda er beinn eign­ar­hlutur Samherja í Fram­herja aðeins 24%. Ef við birtum þetta á heima­síð­unni þá gæti það verið vatn á myllu þeirra sem full­yrða að tengslin milli fyr­ir­tækj­anna séu meiri en eign­ar­haldið gefi til kynna,“ sagði þar einnig. Yfir­lýs­ing Anfinn Olsen hefur ekki birst í íslenskri þýð­ingu á opin­berum vett­vangi.

Ánægja í efstu lögum: „Bubba fannst þetta sturlað“

Þetta Fær­eyja­mál allt saman hefur verið tölu­vert rætt í sam­skiptum þeim sem Kjarninn hefur séð innan úr Samherja. Það leyndi sér ekki að nokkur ánægja var með hversu vel Páli gekk að kom­ast í sam­skipti við fjöl­miðil í Færeyjum. Frá því segir hann að minnsta kosti sjálfur, en sama dag og tengsl komust á við fær­eyska mið­il­inn sagði Páll við Örnu hann hefði verið að ræða við bæði Björgólf Jóhanns­son og Þorstein Má Bald­vins­son, ef til vill til að tjá þeim tíð­indin.

„Þmb [Þor­steinn Már] er nú ekki þekktur fyrir að hæla fólki en honum fannst þetta flott vinna hjá okkur að hafa greint heilan sjón­varps­þátt og komið fyr­ir­tæk­inu í sam­bandi við fjöl­miðil [í] öðru landi,“ sagði Páll um við­brögð Þor­steins Más.

Þor­steinn Már Bald­vins­son virt­ist reyndar ekki hafa verið áfjáður um að setja neitt út til þess að bregð­ast við fær­eysku þátt­unum. „Held við skoðum gögnin og skrifum niður okkar comment varð­andi þau og sjaum svo til,“ sagði Þor­steinn Már í sam­tali við Pál 7. apríl, degi eftir að þátt­ur­inn var sýndur í Færeyjum.

Þorsteinn Már er ekki sagður mikið fyrir að hrósa fólki — en hann er þó sagður hafa lýst yfir ánægju með tilraunir Páls og Örnu til að finna færeyskan fjölmiðil til að „vinna með“.
Þor­steinn Már er ekki sagður mikið fyrir að hrósa fólki — en hann er þó sagður hafa lýst yfir ánægju með til­raunir Páls og Örnu til að finna fær­eyskan fjöl­miðil til að „vinna með“.

„Bubba fannst þetta sturlað að starfs­menn hafi greint einn þátt úr öðru landi og verið búnir að finna sam­starfs­að­ila á innan við 36 klukku­tímum hvað er hægt að biðja um meira honum fannst þetta algjör­lega sturlað og á sama tíma og aðrir yfir­menn sitja með hendur í skauti,“ sagði Páll um við­brögð Björg­ólfs.

Vert er að halda því til haga að Björgólfur Jóhanns­son lét af störfum sem for­stjóri Samherja 12. febr­úar, eftir að hafa gegnt starf­inu frá því skömmu eftir að umfjöllun um starfs­hætti Samherja í Namibíu kom fram í nóv­em­ber árið 2019. Hann er þó enn í ráð­gjafa­störfum fyrir félagið og hefur líka verið kjör­inn for­maður svo­kall­aðrar hlít­ing­ar­nefndar, en það er nefnd sem hefur yfir­um­sjón með reglu­vörslu og stjórn­ar­háttum innan sam­stæðu Samherja.

Ein af mörgum spurn­ingum Kjarnans sem Samherji hefur kosið að svara ekki í tengslum við umfjöllun um almanna­tengsla­her­ferð fyr­ir­tæk­is­ins, er sú hvernig það sam­ræm­ist að vera yfir hlít­ing­ar­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins og taka á sama tíma þátt í því að starfa með þeim hætti sem lýst hefur verið hér að ofan og í öðrum umfjöll­unum Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár