Svæði

Færeyjar

Greinar

Katrín  segist ekki vita hvaða íslensku stjórnmálamenn þrýstu á stjórnvöld í Færeyjum
Fréttir

Katrín seg­ist ekki vita hvaða íslensku stjórn­mála­menn þrýstu á stjórn­völd í Færeyjum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki vita hvaða þing­menn það voru sem settu þrýst­ing á stjórn­völd í Færeyjum út af breyt­ingum á lögum þar í landi á eign­ar­haldi erlendra aðila í sjáv­ar­út­vegi. Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort það voru mis­tök að gera Kristján Þór Júl­í­us­son að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hún tekur hins vegar afstöðu gegn aðferðum Samherja gegn Seðla­banka Íslands og RÚV.
Høgni um þrýstinginn innan úr Sjálfstæðisflokknum: „Ég segi bara follow the money“
Fréttir

Høgni um þrýst­ing­inn innan úr Sjálf­stæð­is­flokknum: „Ég segi bara follow the money“

Fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja, Høgni Hoydal, segir að það sé óvenju­legt að póli­tískur þrýst­ingur komi frá íslenskum ráð­herrum. Þetta gerð­ist hins vegar í aðdrag­anda þess að sett voru lög sem tak­marka erlent eign­ar­hald í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur ekki svarað því hvort hann ræddi við Høgna um málið en útgerð­ar­fé­lagið Samherji, sem Kristján Þór hefur margs konar tengsl við, er stór hags­mun­að­ili í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi.
Hamfarirnar í Færeyjum: Strokulax úr færeyskum sjókvíum getur komið til Íslands
FréttirLaxeldi

Ham­far­irnar í Færeyjum: Stroku­lax úr fær­eyskum sjó­kvíum getur komið til Íslands

Stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Færeyja, Bakka­frost, „glat­aði“ einni milljón eld­is­laxa fyrir nokkrum dögum. Fyr­ir­tækið hefur ekki full­yrt að þessir laxar hafi allir drep­ist og er óljóst hvort ein­hverjir sluppu úr kvíum fyr­ir­tæk­is­ins. Sér­fræð­ingur hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun segir að eld­is­lax sem veidd­ist á Íslandi í fyrra sé mögu­lega stroku­fiskur frá Færeyjum.

Mest lesið undanfarið ár