Fyrrverandi ráðherra í Færeyjum segist hafa upplifað pólitískan þrýsting frá Íslandi

Fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í Færeyjum sagði í frétta­skýr­ing­ar­þætti í gær að stjórn­mála­menn á Íslandi, sér í lagi Sjálf­stæð­is­menn, hefðu beitt sér gegn því að útlend­ingar yrðu úti­lok­aðir úr fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi.

Høgni Hoydal, þingmaður og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja.
Høgni Hoydal, þing­maður og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja. Mynd: Skjáskot úr útsendingu Kringvarpsins.

Høgni Hoydal, þing­maður og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja, segir að hann hafi upp­lifað póli­tískan þrýst­ing frá Íslandi; frá fyr­ir­tækjum og ein­staka stjórn­mála­mönnum og ráð­herrum, þegar hann gegndi sjálfur emb­ætti ráð­herra og var að vinna að breyt­ingum á fær­eyska fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu.

Þetta kom fram í máli Hoydal í frétta­þætt­inum Dagur og vika í gær, en með lög­unum sem fær­eyska stjórnin setti á sínum tíma var setti var meðal ann­ars stefnt að því að leggja bann við erlendu eign­ar­haldi í fisk­veiðum í Færeyjum.

Hoydal vildi ekki nefna nein nöfn á ein­staka íslenskum stjórn­mála­mönnum sem hefðu lagst gegn fyr­ir­ætl­unum Fær­ey­inga, en sagði þó að þrýst­ingur hefði komið frá aðilum tengdum Sjálf­stæð­is­flokknum, gegn því að Fær­ey­ingar úti­lok­uðu erlenda aðila frá þátt­töku í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi.

Hoydal sagði póli­tískan þrýst­ing af þessu tagi fylgja starfi stjórn­mála­manns­ins.

Stjórn Samherja á Framherja til umræðu

Mál þessu tengd eru mikið til umræðu í Færeyjum í vik­unni, eftir að annar hluti af frétta­skýr­inga­þætt­inum Teir ómettiligu var tek­inn til sýn­ingar í vik­unni.[links]

Í þætt­inum kom meðal ann­ars fram að Fram­herji, útgerð­ar­fé­lag í Færeyjum sem Samherji á fjórð­ungs­hlut hlut í, hefði flutt pen­inga til dótt­ur­fé­lags Samherja á Kýpur án þess að fram­kvæmda­stjóri fær­eysku útgerð­ar­innar, Anfinn Olsen, hefði haft vit­neskju um það.

Þetta hefur valdið nokkrum kurr í fær­eyskum stjórn­málum, enda eiga fær­eysk lög að koma í veg fyrir að útlend­ingar fari með stjórn þar­lendra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og það að fram­kvæmda­stjór­inn viti ekki af milli­færslum til Kýpur þykir gefa vís­bend­ingu um að hann fari hreint ekki með stjórn­ar­taumana í öllum til­vikum.

Samkvæmt núver­andi áætl­unum fær­eysku land­stjórn­ar­innar mega engir útlend­ingar eiga hlutafé í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum frá og með árinu 2032.

Í við­tal­inu í Degi og viku sagði Hoydal að full­trúar frá bæði íslenskum og hol­lenskum fyr­ir­tækjum sem hefðu hags­muna að gæta í Færeyjum og jafn­vel stjórn­mála­menn frá þessum löndum hefðu hitt á hann á ráð­stefnum þar sem hann var að fjalla um þessi mál, t.d. hér á landi og víðar og bein­línis sagt að þetta mættu Fær­ey­ingar ekki gera.

[adspot]

Hags­muna­verðir væru alltum­lykj­andi í kringum stjórn­mála­menn, fyrir hönd pen­inga­valds­ins. „Þetta er big business,“ sagði Hoydal.

Núverandi ráðherra kannast ekki við viðlíka þrýsting

Eftir við­talið við Hoydal var skipt beint yfir í við­tal við Jacob Vestergaard, núver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja, sem sagð­ist sjálfur ekki hafa upp­lifað þrýst­ing af því tagi sem Hoydal til­tók.

Einnig gaf hann lítið fyrir það sem fram kom í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Teir ómettiligu — að Samherji liti á Fram­herja í Færeyjum sem dótt­ur­fé­lag í sínum inn­an­hús­skjölum. Hann sagð­ist telja eign­ar­haldið á Fram­herja í sam­ræmi við lög og að Anfinnur Olsen og fær­eyskir við­skipta­fé­lagar hans stjórn­uðu fyr­ir­tæk­inu.

Það sem rætt væri um á Íslandi og það sem Íslend­ingar gerðu væri honum ein­fald­lega algjör­lega óvið­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár