Samherji sagður hafa greitt laun í Færeyjum til að komast hjá skattgreiðslum í Namibíu

Í nýrri heim­ild­ar­mynd sem sýnd verður í Færeyjum í kvöld segir fær­eyskur skatta­sér­fræð­ingur að launa­greiðslu­fyr­ir­komu­lag Samherja í gegnum þar­lent félag, til sjó­manna sem unnu í Namibíu, sé aug­ljóst brot á fær­eyskum lögum.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Hringbraut

Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Samherja, sem gerður var út í Namibíu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu Tind­holmur, sem Samherji stofn­aði þar í landi árið 2011. Gögn sýna að hann hafi auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Samherja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa. Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Samherja í Namibíu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í́ Namibíu og Samherji þurfti því́ ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Þetta fyr­ir­komu­lag er, að mati fær­eyska skatta­sér­fræð­ings­ins Eyðfinns Jacobsen, aug­ljóst brot á fær­eyskum lögum jafn­vel þótt það sé namibíska ríkið sem sitji uppi með tapið. Björn á Heygum, fyrr­ver­andi þing­maður í Færeyjum sem var stjórnar­for­maður Tind­holms þar til félag­inu var slitið árið 2020 og sem hefur setið í stjórnum fjölda félaga í eigu Samherja síð­ustu þrjá ára­tugi, seg­ist hafa verið blekktur. Hann hafi ekki haft neina vit­neskju um þetta fyr­ir­komu­lag við greiðslu launa. Björn seg­ist ganga út frá því að það væri for­stjóra og eig­enda Samherja að til­kynna honum um hvað væri í gangi.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í heim­ild­ar­mynd sem sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu í kvöld og unnin var í sam­starfi við Kveik og Wikileaks. Greint var frá efni hennar í fréttum RÚV klukkan 19.

[adspot]Á meðal þeirra sem rætt er við í mynd­inni er Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Namibíu-útgerðar Samherja. Fyrr í dag greindi Samherji frá því á heima­síðu sinni að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherji, hefði lagt fram kæru á hendur Jóhann­esi hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kæran er, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu á vef Sam­herja, fyrir rangar sak­ar­giftir og „ýmis ummæli sem Jóhann­es, eða fólk á hans veg­um, hefur látið falla í fjöl­miðlum og víðar að und­an­förn­u“. Staðið hefur verið að fjár­söfnun fyrir Jóhannes síð­ustu vik­ur, en söfn­unin er á vegum erlendra félaga­sam­taka sem styðja við upp­ljóstr­ara.

Í við­tal­inu sem Jóhannes veitti fær­eyska Sjón­varp­inu, og birt­ist í áður­nefndri heim­ilda­mynd, segir hann þetta fyr­ir­komu­lag varð­andi skrán­ingu sjó­manna Samherja í Namibíu vera ástæðu þess að hálf milljón Banda­ríkja­doll­ara hafi greidd frá́ útgerðum Samherja í Namibíu og til fær­eyska félags­ins Tind­holms, frá́ lokum árs 2016 til árs­loka 2017.

Í árs­byrjun 2016 gengu í gildi lög í́ Namibíu sem skyld­uðu erlendar áhafnir fiski­skipa til að greiða skatta og skyldur í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár