Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
Ham­skipti sam­stæðu Samherja Samstæða útgerð­ar­ris­ans Samherja, sem Þor­steinn Már Bald­vins­son stýrir, hefur tekið ham­skiptum á síð­ustu árum. Breytt eign­ar­hald á útgerð­inni og upp­skipt­ing eigna yfir á nokkur mis­mun­andi félög og ein­stak­linga eru meðal þeirra. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Hlut­hafar útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja, sem aðal­lega eru börn stofn­end­anna Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar, greiða sér út rúm­lega einn millj­arð króna í arð á þessu ári. Arð­greiðslan er ann­ars vegar út úr Samherja hf., félag­inu utan um útgerð­ar­rekstur Samherja á Íslandi og í Færeyjum, og hins vegar út úr nýstofn­uðu eign­ar­halds­fé­lagi, Látra­fjöllum ehf., sem heldur utan um fjár­fest­ing­ar­starf­semi Samherja eftir breyt­ingar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­fé­lags­ins í fyrra.

Arð­greiðslan út úr Samherja nemur 558 millj­ónum króna á meðan arð­greiðslan úr Látra­fjöllum nemur 507 millj­ónum. Samtals er því um að ræða arð­greiðslur til hlut­hafa Samherja upp á 1.065 millj­ónir króna.

„Skipting þessi er hluti af skipu­lags­breyt­ingum Samherja hf. þar sem rekstri í sjáv­ar­út­vegi verður að mestu haldið aðskildum frá öðrum þáttum“
Úr grein­ar­gerð stjórnar Samherja

Útgerðarrekstri haldið frá öðrum rekstri 

Stofnun Látra­fjalla, og flutn­ingur á eignum úr Samherja yfir til þess, snýst …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ekkert af þessum fjármála-gjörningum væri að eiga sér stað, ef réttarkerfi Sjálfstæðisflokksinns hefði fryst eignasölur og bankareikninga í upphafi Samherja/Namibíu-svindlsins, sem snýst um mútugreiðslur/peningþvott og skattsvik. Fyrir 2-vikum síðan seldi Samherji-Holding sem hélt utan um rekstur og starfsemi í Namibíu/Kýpur sölu-fyrirtækið Ice-fresh til Síldarvinnslunnar þar sem Samherja-forstjórinn (Þorsteinn Már) er stjórnarformaður, tilgangurinn er augljós sem er að HOLA Samherja-Holding að innan, þannig að þangað verði ekkert að sækja þegar dómur fellur í Namibíu yfir mútuþegunum, sú niðurstaða mun hafa afgerandi áhrif á niðurstöðu dómstóla (réttarkerfi Sjálfstæðisflokksinns) á Íslandi yfir starfsfólki Samherja sem hefur réttarstöðu sakborninga vegna Samherja/Namibíu-svindlsins hér heima.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Bjóst Heimildin við að fá einhver svör frá Græðginni?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár