Sakborningur í Samherjamálinu: „Ég ber ekki lengur traust til réttarkerfisins“

Arna McClure, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Samherja, segir gögn Sam­herj­a­máls­ins sýna sak­leysi sitt. Hún segir að hún hvorki treysti lög­reglu né ákæru­vald­inu og að hér­aðs­sak­sókn­ara slá ryki í augu almenn­ings.

Sakborningur í Samherjamálinu: „Ég ber ekki lengur traust til réttarkerfisins“
Arna McClure Fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Samherja starfar nú með fyrrum for­stjóra á vett­vangi Síld­ar­vinnsl­unnar.

Arna Bryndís Baldvins McClure, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Samherja og sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða, segir hér­aðs­sak­sókn­ara hafa haldið því frá sér að rann­sókn máls­ins væri lokið þar til um það var fjallað í fjöl­miðlum. Hún segir gögn í mál­inu stað­festa sak­leysi sitt og seg­ist ekki treysta því að lög­regla og ákæru­valdið séu ekki í „til­rauna­starf­semi á almennum borg­urum“.

Í byrjun júní kom fram að rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu sé lokið og sak­sókn­ari muni taka ákvörðun um hvort ákært verði í því. Málið varðar meintar mútu­greiðslur Samherja til hátt­settra emb­ætt­is­manna í Namibíu til að tryggja fisk­veið­heim­ildir í land­inu. Hagn­að­ur­inn var tek­inn út í gegnum flókið net félaga sem teygðu sig víða heim og vöktu upp spurn­ingar um skattaund­an­skot.

Upplýst var um málið í frétta­þætt­inum Kveik í nóv­em­ber 2019 í sam­starfi við Stundina (for­vera Heim­ild­ar­innar), Wikileaks og Al Jazeera. 

Níu eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings, þar á meðal Þor­steinn Már Bald­vins­son sem hætti sem for­stjóri Samherja í vor. Arna er einnig þeirra á meðal en hún hóf störf hjá Samherja í tengslum við rann­sókn Seðla­bank­ans á meintum gjald­eyr­is­brotum fyr­ir­tæk­is­ins eftir banka­hrun.

Fram hefur komið að Arna fund­aði með mútu­þeg­unum í Sam­herj­a­mál­inu, þeim James Hatuikulipi, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og Sacky Shangala, sem allir tengj­ast stjórn­mála­flokknum SWAPO. James var stjórn­ar­for­maður rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, stærsta kvóta­eig­anda Namibíu, Tamson er tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi Bern­hardt Esau og Sacky var dóms­mála­ráð­herra Namibíu þar til hann sagði af sér í kjöl­far upp­ljóstran­anna.

Í tölvu­póstum úr Sam­herj­a­skjöl­unum má sjá Örnu ræða um greiðslur úr skatta­skjóls­fé­lag­inu Cape Cod sem Samherji neit­aði lengi að hafa tengst. Samherji not­aði félagið í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í Kyrra­hafi, til að greiða laun sjó­manna sinna í Afríku allt frá árinu 2010. Samtals milli­færðu félög Samherja 9,1 millj­arð króna inn á reikn­inga Cape Cod á tíma­bil­inu og sama upp­hæð var milli­færð af reikn­ingum félags­ins á tíma­bil­inu. Samherji gerði sam­komu­lag við Skattinn árið 2023 um að greiða 60 millj­ónir króna auk vaxta vegna launa­greiðslna félags­ins til íslenskra starfs­manna erlendis.

Í stjórn Síldarvinnslunnar með Þorsteini Má

„Rann­sóknin hefur staðið yfir lengur eða á þriðja þús­und daga,“ skrif­aði Arna í færslu á Facebook síðu sinni í júlí. „Þetta slagar upp í þriðj­ung starfsævi minnar. Hvað sem hver segir þá er það erfitt og þung­bært og litar allt í lífi manns.“

Arna starfar nú sem for­stjóri Sea Thru, íslensks-pólsks sam­starfs­verk­efnis sem snýr að því auka rekj­an­leika sjáv­ar­af­urða í gegnum alla virð­is­keðj­una.

Þá er hún vara­maður í stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, þar sem Þor­steinn Már er stjórn­ar­for­maður, en Samherji er stærsti fjár­festir­inn í útgerð­inni með um 30% hlut. Samkvæmt LinkedIn síðu hennar er hún einnig yfir­lög­fræð­ingur Síld­ar­vinnsl­unnar. Um tíma var hún ræð­is­maður Kýpur þar sem Esja Seafood, dótt­ur­fé­lag Samherja, er skráð og í stjórn Arcticnam Fishing, félags sem Samherji átti til móts við namibíska kvóta­leyf­is­hafa.

Þá var hún ein af þeim þremur ein­stak­lingum sem gegndu lyk­il­hlut­verki í svo­kall­aðri „skæru­liða­deild“ Samherja sem stóð fyrir greina­skrifum sem beindust sér­stak­lega gegn Helga Seljan eftir að hann var tók þátt í afhjúpun máls­ins sem frétta­maður Kveiks.

Uppljóstrarinn staðfesti sakleysi

Í færsl­unni er hún gagn­rýnin á emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og sér­stak­lega Ólaf Þór Hauksson sem fer fyrir emb­ætt­inu. „Fyrir tveimur árum síðar sagð­ist ég ekki geta svarað því fylli­lega hverjar sak­irnar eru. Ég get ekki enn svarað því. Ég hef þó orðið ýmis­legs vís­ari vegna bar­áttu minnar að losna úr mál­inu,“ skrifar Arna.

Ólafur Þór HaukssonHér­aðs­sak­sókn­ari til­kynnti í byrjun júlí að rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins væri lokið.

„Í grein­ar­gerð 21. ágúst 2024, þegar ég reyndi í annað sinn að fá aðstoð dóm­stóla til að losna úr þess­ari Namib­íu­rann­sókn, rétt­lætti Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari, sak­born­ings­stöðu mína með því að ég hefði ekki upp­lýst um starfs­tíma minn hjá Samherja. Það er rangt,“ skrifar hún.

Birtir hún brot úr sam­tölum úr gögnum máls­ins til að styðja það að hún hafi skýrt frá því að hún hafi byrjað að vinna hjá Samherja sum­arið 2013 í tengslum við Seðla­banka­málið. Þá segir hún Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Samherja í Namibíu og upp­ljóstr­ara í mál­inu, hafa stað­fest að vinna hennar hafi verið lög­leg.

Birtir hún frek­ari sam­töl upp úr gögnum máls­ins þar sem haft er eftir Jóhann­esi að hún hafi verið „upp­lýst að marki hvernig verk­efnið virkar“ og „var kannski alveg upp­lýst um mútu­greiðsl­urnar og fleira“ en að sam­skipti þeirra hafi frekar varðað Seðla­banka­málið.

„Jóhannes stað­festir að mín vinna var öll lög­leg“

„Ég hef marg­sinnis bent á að höf­undur þess­arar vit­leysu, Jóhannes Stef­áns­son, hafi dregið í land allar ásak­anir gegn mér,“ skrifar hún. „Ég geri ekki athuga­semd við að ég hafi verið gerð að sak­born­ingi í upp­hafi. Það er skilj­an­legt. En þegar búið var að afla allra gagna og ég hafði svarað spurn­ingum í fyrstu skýrslu­töku voru ekki lengur efni til þess. Fram­an­greint stað­festir það. Jóhannes stað­festir að mín vinna var öll lög­leg. Öll gögn máls­ins stað­festa það líka.“

Tilraunastarfsemi á almennum borgurum

Arna segir einnig að á annað þús­und smá­skila­boða, sem Heim­ildin hefur fjallað um, styðji þessa frá­sögn sína. „Það sem mér finnst óskilj­an­legt og ekki bera merki um rétt­láta máls­með­ferð er að æðsti yfir­maður emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ari, hér­aðs­sak­sókn­ari sjálfur, skuli afvega­leiða dóm­stóla með þessum hætti,“ skrifar hún.

„Við skulum halda því til haga að mál­flutn­ingur í hér­aði fór fram tveimur mán­uðum eftir að Jóhannes gaf fram­an­greinda skýrslu og sagði mín verk­efni ein­göngu hafa verið lög­leg og hann hefði ekk­ert nema til­finn­ingu fyrir því að ég hafi átt að vita eitt­hvað um eitt­hvað sem hugs­an­lega væri á gráu svæði,“ bætir hún við. „Málið fór síðan til Lands­réttar þar sem Ólafur Þór rök­studdi mál sitt með vísan til grein­ar­gerð­ar­innar og bætti engu við. Það er að mínu mati ekki við dóm­stóla að sakast. Þeir taka við málum eins og þau eru lögð fyrir þá. Og þeim er upp­álagt lögum sam­kvæmt að treysta opin­berum emb­ætt­is­mönnum, skjölum sem þeir leggja fram og það sem þeir segja. Stað­reyndin er hins vegar sú að sumir hverjir standa ekki undir því trausti.“

„En stað­reyndin er sú að þessi fáu skemmdu epli þau skemma fyrir öllum“

Lands­réttur hafn­aði vorið 2023 beiðni Örnu um að fella niður rann­sókn á sér en hún segir málið hafa litað allt líf sitt. „Það er sorg­legt eftir að hafa starfað á sviði lög­fræð­innar í á annan ára­tug að ég ber ekki lengur traust til rétt­ar­kerf­is­ins,“ skrifar Arna. „Ég get ekki treyst því að lög­regla og ákæru­vald dragi allt fram sem horfir til sektar eða sýknu eða séu ekki í til­rauna­starf­semi á almennum borg­urum. Ég þekki fullt af lög­reglu­mönnum og sak­sóknurum sem er vandað fólk og gerir sitt besta. En stað­reyndin er sú að þessi fáu skemmdu epli þau skemma fyrir öllum.“

Ekki upplýst um lok rannsóknar

Hún segir að á fer­tugs­af­mæl­is­dag sinn, 2. júlí síð­ast­lið­inn, hafi verj­andi hennar verið í sam­bandi við emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna nýrra gagna. „Ekki var orði minnst á lok rann­sóknar,“ skrifar hún. „Í hádeg­is­fréttum á Rík­is­út­varp­inu var alþjóð hins vegar til­kynnt um þetta. Ólafur Þór Hauksson hafði brýnni erindum að sinna en að upp­lýsa verj­endur um lok rann­sóknar því hann varð að ræða við frétta­mann Rík­is­út­varps­ins um það!

Ólafur tal­aði um kafla­skil, að þetta væru stór tíma­mót í rann­sókn­inni því nú væri málið komið á borð sak­sókn­ara. Þarna sló hann ryki í augu almenn­ings til að fá sínar mín­útur í fjöl­miðlum. Síð­ast­liðið haust, þegar hann varð­ist kröfu minni að losna, lagði hann mikla áherslu á að hann sjálfur hefði stýrt rann­sókn­inni og bæri alla ábyrgð.“

Beðið réttarhalda í Namibíu

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins tók um 5 ár og mikið af gögnum voru undir. Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri Samherja eftir að málið kom upp en tók svo við starf­inu aftur. Hann hætti sem for­stjóri 26. júní síð­ast­lið­inn og Baldvin Þor­steins­son sonur hans tók við sem for­stjóri. Þá höfðu Þor­steinn Már og Kristján Vil­helms­son fært hluti sína í Samherja til barn­anna sinna sem eiga nú fyr­ir­tækið.

Fund­ur­inn með Namib­íu­mönn­unumArna, til hægri, sat fund­inn með Jóhann­esi upp­ljóstr­ara og Namib­íu­mönn­unum þremur sem tengdu Samherja við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann.

Tveir namibískir ráð­herrar sögðu af sér út af mál­inu, áður­nefndur Sacky  Shangala dóms­mála­ráð­herra sem Arna fund­aði með og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann. Rétt­ar­höld í mál­inu í Namibíu hafa taf­ist en þau áttu að hefj­ast 1. ágúst síð­ast­lið­inn. Tíu hafa verið ákærð í mál­inu þar­lendis.

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    „„Vona að Óskar, Bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið,“ skrifar Arna í skilaboðum. „Ef þið Þorbjörn eruð að spá í að stinga Jóhannes þá er hugmynd hér,“ segir hún í öðrum. Páll notar sama orðfæri líka. „Við verðum allavega klár og munum nota hvert tækifæri til að stinga svo mikið er víst 😇😇“ skrifar hann til Örnu, sem og eftir samtal við Björgólf Jóhannsson, þáverandi forstjóra Samherja: „Komdu með þína hugmynd, var að leggja á Bubba og hann vill stungu“.“
    3
  • Guðrún Ingimundardottir skrifaði
    Það hentar ekki lengur fyrir hana blessaða.

    “ Sakborningur í Samherjamálinu: „Ég ber ekki lengur traust til réttarkerfisins“
    1
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Tilfinningar manna til þeirra sem hafa verið viðriðnir svona mál eru oft skiljanlegar en ríkisvaldið, saksóknari og önnur embætti þurfa að gæta þess að það er ekki hlutverk þeirra að standa í óbeinum refsingum þegar ekkert saknæmt hefur sannast á fólk. Að halda fólki árum saman undir grun án þess að nokkuð bitastætt sé að gerast í málum þess er það sem kalla mætti óbeinar refsingar. Grunaðir eiga rétt á að fá að vita hvað er verið að rannsaka, hvers vegna og hvaða ákæra verður hugsanlega borin fram og það tímanlega. Þegar rannsóknir eru komnar í fleiri fleiri ár og jafnvel áratugi er eitthvað ekki í lagi í ferlinu, hverjum sem það er að kenna. Burtséð frá alvarleika málsins nú eða þessu tiltekna máli, þá þarf að taka á þessu til að gæta réttarstöðu borgaranna almennt.
    -4
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Segðu mér hverjir eru vinir þínir og ég skal segja þér hver þú ert." Þegar fólk öslar í forinni er líklegt að það óhreinkist.
    7
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það er oft erfitt a að sætta sig við afleiðingar gerða sinna og margir kenna öðrum um. Störf Örnu í Skæruliðadeildinni voru á mörkum hins löglega en algerlega siðlaus. Villimennska og óþverraskapur. Miðað við tölvupósta sem birtir hafa verið þá naut hún starfsins. Nú hefur gamanið hinsvegar kárnað. Hún kom sér í þessa stöðu sjálf og þetta er engum öðrum að kenna.
    17
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár