Megnið af greiðslum Samherja eftir að uppljóstrarinn hætti

Meintar mútu­greiðslur Samherja til að kom­ast yfir kvóta í Namibíu eru sagðar nær tvö­falt hærri en upp­haf­lega var áætlað.

Megnið af greiðslum Samherja eftir að uppljóstrarinn hætti
Jóhannes Stef­áns­son Stærstur hluti greiðslna Samherja til áhrifa­manna í Namibíu átti sér stað eftir að upp­ljóstr­ar­inn í mál­inu lét af störfum sam­kvæmt heim­ildum. Mynd: Stundin / Brian Kelly

Rann­sak­endur á Íslandi telja að meintar mútu­greiðslur Samherja til namibískra áhrifa­manna hafi verið nær tvö­falt hærri en upp­haf­lega var talið, eða hátt í 3 millj­arðar króna á tíma­bil­inu 2012 til 2019 en ekki 1,5 millj­arður eins og áður var talið.

Þetta kom fram í Spegl­inum á RÚV í gær.

For­svars­menn Samherja hafa varpað ábyrgð á greiðsl­unum á fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Samherja í Namibíu, Jóhannes Stef­áns­son. En sam­kvæmt rann­sak­endum fór megnið af greiðsl­unum fram eftir að Jóhannes hætti, eða ríf­lega 2 millj­arðar króna, og í sumum til­fellum í gegnum félög sem hann stýrði aldrei eða voru ekki starf­andi þegar hann lét af störfum.

„Samherji hefur engin við­brögð við þess­ari frétt“

„Samherji hefur engin við­brögð við þess­ari frétt,“ sagði í svari Samherja við umfjöllun Speg­ils­ins. „Við horfum til fram­tíðar og sem íslenskt fyr­ir­tæki í dag ein­beitum við okkur að rekstr­inum hér á landi og þeim áskor­unum sem honum fylgja.“

Jóhannes steig fram sem upp­ljóstr­ari árið 2019 þegar Kveikur, Stundin (fyr­ir­renn­ari Heim­ild­ar­innar), Al Jazeera og Wikileaks fjöll­uðu um Sam­herj­a­málið sem varð­aði meintar mútu­greiðslur Samherja til að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir í Namibíu og flókið net félaga sem vakti grun­semdir um skattaund­an­skot.

Hér­aðs­sak­sókn­ari lauk í sumar rann­sókn á mál­inu en níu Íslend­ingar hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Beðið er þess að sak­sókn­ari taki ákvörðun um ákærur í mál­inu.

Vörpuðu ábyrgð á uppljóstrarann

„Það er alveg ljóst að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri stýrði starf­sem­inni frá A til Ö,“ sagði Björgólfur Jóhanns­son, sem tók tíma­bundið við sem for­stjóri Samherja þegar málið kom fyrst upp. „Það var allt of lítil vit­neskja um það innan yfir­stjórnar Samherja hvað var í gangi í Namibíu. Það voru í raun engin svona tæki til staðar sem gáfu ein­hver ljós um það að það væri eitt­hvað í ólagi.“

Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, hefur sömu­leiðis vísað ábyrgð­inni á Jóhannes. „Mistök Samherja eru að hafa ekki haft betra eft­ir­lit með rekstr­inum í Namibíu og þar af leið­andi betri yfir­sýn.“

Tveir namibískir ráð­herrar sögðu af sér út af mál­inu, Bern­hardt Esau sjáv­ar­út­vegs­mála­ráð­herra og Sacky  Shangala dóms­mála­ráð­herra.

Í Namibíu er búist við því að rétt­ar­höld í mál­inu þar­lendis hefj­ist upp úr ára­mótum. Tíu hafa verið ákærð í namibíska hluta máls­ins.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár