Þorsteinn Már kærir Jóhannes uppljóstrara til lögreglu fyrir rangar sakargiftir

For­stjóri Samherja hefur kært Jóhannes Stef­áns­son til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir rangar sak­ar­giftir. Haft var eftir Jóhann­esi í nýlegu blaða­við­tali í Namibíu að hann teldi fyrr­ver­andi vinnu­veit­endur sína hafa vit­neskju um til­ræði gegn sér.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja hefur lagt fram kæru hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á hendur Jóhann­esi Stef­áns­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra á vegum Samherja á Namibíu, sem lét Wikileaks í té gögn sem varða meintar mútu­greiðslur og annað í rekstr­inum í Namibíu.

Kæran er, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu á vef Samherja, fyrir rangar sak­ar­giftir og „ýmis ummæli sem Jóhannes, eða fólk á hans vegum, hefur látið falla í fjöl­miðlum og víðar að und­an­förnu“. Staðið hefur verið að fjár­söfnun fyrir Jóhannes síð­ustu vikur, en söfn­unin er á vegum erlendra félaga­sam­taka sem styðja við upp­ljóstr­ara.

Á GoFundMe-fjár­öfl­un­ar­síðu hafa safn­ast rúm­lega 3.600 evrur Jóhann­esi til stuðn­ings, en tak­markið er að safna 75 þús­und evrum.

Fullyrt er á GoFundMe-síð­unni að Jóhannes hafi verið fórn­ar­lamb mann­dráp­stil­raunar er hann var staddur í Höfða­borg í Suður-Afríku árið 2017. Í frétt namibíska dag­blaðs­ins The Namibian sem birt­ist 2. mars er haft eftir Jóhann­esi að hann telji fyrr­ver­andi vinnu­veit­endur sína hafa haft fulla vit­neskju um til­ræðið við sig.

Á vef Samherja segir að í kærunni komi fram að Jóhannes kunni að hafa með ummælum sínum í þessu við­tali og öðru við­tali reyndar líka „gefið í skyn að for­stjóri Samherja hafi á ein­hvern hátt tengst meintri eitrun og meintum til­raunum til að nema hann á brott.“

Þess krafist að lögreglan rannsaki málið

„Þannig virð­ist Jóhannes vera að reyna að koma því til leiðar að for­stjóri Samherja verði sak­aður um þessi brot, þ.e. til­raun til mann­dráps og til­raun til frels­is­svipt­ingar eða ein­hvers konar hlut­deild eða tengsl við slík brot. Með þessu kunni Jóhannes að hafa gerst sekur um rangar sak­ar­giftir í garð Þor­steins Más Bald­vins­sonar. Er þess kraf­ist að lög­reglu­rann­sókn verði hafin, tekin verði skýrsla af Jóhann­esi og gagna aflað frá Suður-Afrískum lög­reglu­yf­ir­völdum. Þá er lög­regl­unni bent á það gæti talist eðli­legt að rann­saka í leið­inni hvort fjár­svik hafi verið framin í tengslum við fjár­söfn­un­ina sem áður er getið,“ segir enn fremur á vef Samherja.

[adspot]

„Hingað til hef ég ekki brugð­ist sér­stak­lega við full­yrð­ingum og marg­vís­legum ásök­unum Jóhann­esar,“ er haft eftir Þor­steini Má á vef Samherja. Hann segir að hann geti hins vegar ekki lengur orða bund­ist því nú vilji Jóhannes að sam­starfs­menn hans meina að hann eða sam­starfs­menn han hafi gert til­raun til að ráða honum bana.

„Lengra verður ekki ekki gengið en að bera mönnum á brýn að ætla að ráða menn af dögum. Mér er gróf­lega mis­boðið og því er óhjá­kvæmi­legt að spyrna við fótum. Þessu til við­bótar freistar Jóhannes þess nú að blekkja fólk til að leggja fé í söfnun undir þeim for­merkjum að honum hafi verið sýnt bana­til­ræði. Þetta er allt saman ósköp dap­ur­legt,“ er haft eftir for­stjóra Samherja á vef fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár