Samherjasjómenn í Namibíu lýsa örbirgð, skömm og vonleysi

Tveir úr hópi þeirra tutt­ugu og þriggja Sam­herj­a­sjó­manna í Namibíu sem eiga inni millj­ónir eftir ólög­mæta upp­sögn, lýsa því hvernig fjöl­skyldur hafi sundr­ast í fátækt og von­leysi. Draumur um betra líf til handa börn­unum þeirra hafi horfið.

Samherjasjómenn í Namibíu lýsa örbirgð, skömm og vonleysi
Upplifir skömm Josua Hafeni lýsir nið­ur­læg­ing­unni sem fylgir því að geta ekki séð sér og sínum far­borða eða veitt börn­unum sínum betra líf en honum bauðst. Mynd: Ester Mbathera

Josua Hafeni og börnin hans fimm hafa ekki hist öll saman í meira en þrjá mán­uði. En það gerð­ist núna í byrjun vik­unnar að hóp­ur­inn náði allur saman. Tilefnið var ekki það að koma saman og fagna afmæli Josua sem varð 43 ára síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. 

„Ég bý ekki lengur með börn­unum mínum, ég hef ein­fald­lega ekki ráð á því,“ segir Josua Hafeni, fyrr­ver­andi skip­verji á Sam­herj­a­tog­ar­anum Heinaste sem gerður var út af einu dótt­ur­fé­lagi Samherja, frá hafn­ar­borg­inni Walvis Bay í Namibíu.

Í kofa Önnu systurJosua Hafeni og börnin hans fimm hitt­ast á heim­ili Önnu, elstu dóttur hans. Hún deilir eins her­bergis kofa með frænku sinni. Samveran er þeim mik­il­væg, enda langt síðan þau hitt­ust öll saman síð­ast.

Í sjö ár var Josua fast­ráð­inn í áhöfn Heinaste, allt frá því Samherji hóf útgerð í Namibíu árið 2011. …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Er virkilega enginn samkennd eða samviska í þessum mönnum sem reka Samherja? . Eru ekki einhverjir sem eiga notaða en vel með farna takkaskó þó ekki væri annað, bar til að gleðja ungan dreng. Ég gæti sent fína íþróttaskó en það er annað, og veit ekki hvert ætti að senda.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Manni býður við þessu öllu.
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Afleiðingar af háttsemi Samherja-feðganna er NKL þessi í Namibíu, á sama tíma eru feðgarnir að HOLA Samherja-holding að innan, nú síðast með sölu á ICE-FRESH-sölufyrirtæki Samherja-feðganna til Síldarvinnslunnar, sem Samherji hefur ráðandi hlut, Þorsteinn Már er stjórnar-formaður Síldarvinnslunnar. Einmitt svona óþverra-gjörningar var hægt að koma í veg fyrir, ef í upphafi Samherja/Namibíu-svindlsins hefði héraðs-saksóknari krafist eignafrystingar og lokun bankareikninga, það var ekki gert og það er á ábyrgð saksóknara-embætta Íslands. Hvenær ætlar réttarkerfi Íslands að AFVOPNA meinta glæpamenn.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár