„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
Skorar á Katrínu Fregnir þess efnis að Samherji hafi hlotið 100 millj­óna króna styrk úr opin­berum Orku­sjóði á Íslandi, á dög­unum, hafa vakið hörð við­brögð í Namibíu. Meðal þeirra sem gagn­rýnt hafa íslensk stjórn­völd vegna þessa er leið­togi namibísku stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem skorar á Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, að beita sér fyrir því að Samherji verði dreg­inn til ábyrgðar vegna þátt­töku sinnar í mútu­hneyksl­inu í Namibíu.

„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu

Sléttum fjórum árum eftir að ljóstrað var upp um fram­ferði Samherja í Namibíu kallar leið­togi namibísku stjórn­ar­and­stöð­unnar eftir því að íslensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hundrað millj­óna rík­is­styrkur til Samherja vekur reiði í Namibíu.

„Bón mín er tæki­færi til að sýna for­dæmi og taka afstöðu gegn spill­ingu og arðráni. Gerðu það, ekki veita slíku skjól með beinni aðstoð þinni,“ segir í opnu bréfi leið­toga namibísku stjórn­ar­and­stöð­unnar til for­sæt­is­ráð­herra Íslands, sem sent var föstu­dag­inn 10. nóv­em­ber. Þar er skorað á Katrínu Jak­obs­dóttur að beita sér fyrir því að Samherji hf og stjórn­endur þess, verði látnir taka ábyrgð á verkum sínum í Namibíu. 

McHenry Venaani, for­maður stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokks lands­ins, PDM, segir í bréfi sínu að Samherji hafi gengt mik­il­vægu hlut­verki í stærsta spill­ing­ar­máli í sögu namibísku þjóð­ar­innar, sem hafi hagt ómældan skaða í för með sér. Fyr­ir­tækið eigi að bæta það tjón sem það hafi valdið auk þess að gera upp við sjó­menn sem dæmdar hafa verið bætur eftir vinnu á skipi Samherja í Namibíu.

Í bréf­inu segir Venaani að honum og fleirum blöskri það að heyra fréttir af því að íslensk stjórn­völd séu að styrkja Samherja um 100 millj­ónir króna, í gegnum fram­lög Orku­sjóðs, á sama tíma og fyr­ir­tækið og fjöldi stjórn­enda og starfs­manna þess sé til rann­sóknar vegna alvar­legra spill­ingará­sak­ana í Namibíu og víðar. Hann skorar því jafn­framt á Katrínu að draga styrk rík­is­ins til Samherja til baka.

Bréfið var sent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um það frá for­sæt­is­ráð­herra hvort og þá hvernig brugð­ist verður við því, en þar óskar Venaani einnig eftir sam­tali og sam­starfi um málið, sem hann hefur gagn­rýnt að hafi skort af hálfu íslenskra stjórn­valda, frá því málið kom upp.

Fjögurra ára „afmæli“ Namibíumáls

Fyrr í þessum mán­uði voru liðin fjögur ár síðan Kveikur og for­veri Heim­ild­ar­innar, Stundin, greindu frá umfangs­mik­illi rann­sókn sinni í sam­starfi við Wikileaks, Sam­herj­a­skjölin svoköll­uðu, eða Fishrot á ensku. Þar steig fram Jóhannes Stef­áns­son, fyrrum lyk­il­starfs­maður Samherja í Namibíu og greindi frá hátt í eins og hálfs millj­arðs króna greiðslum Samherja til stjórn­mála- og áhrifa­manna í Namibíu, á árunum 2012-2019, sem vitn­is­burður Jóhannes og fleiri gögn bentu til að væru mútur. 

Tæplega helm­ingur þess­ara greiðslna fór fram eftir að Jóhannes lét af störfum hjá Samherja árið 2016. Rannsókn yfir­valda í Namibíu og á Íslandi hefur síðan leitt í ljós að ætl­aðar ólög­legar greiðslur Samherja til hóps ráð­herra, vensla­fólks þeirra og for­svars­manna rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor í Namibíu, hafi numið allt að tveimur millj­örðum króna á þessum sjö árum.

Í kjöl­far upp­ljóstr­unar máls­ins hófu yfir­völd hér á landi að rann­saka málið. Sú rann­sókn stendur enn og hafa níu fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn og stjórn­endur Samherja stöðu sak­born­ings í þeirri rann­sókn. Meðal ann­ars Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og aðal­eig­andi Samherja, Jóhannes Stef­áns­son, Arna McClure, lög­fræð­ingur Samherja og Aðal­steinn Helgason fyrrum stjórn­ar­maður í Samherja og fram­kvæmda­stjóri afr­íku­út­gerðar Samherja.

Í Namibíu hafði rann­sók haf­ist ári fyrr, árið 2018, en hún varð til þess að þegar málið komst í hámæli voru alls tíu Namib­íu­menn hand­teknir og hafa síðan setið í varð­haldi og beðið þess að fara fyrir dóm, ákærðir fyrir fjöl­mörg brot, mút­ur­þægni, spill­ingu, fjár­svik, skatt­svik og brot í opin­beru starfi. Í þeim hópi eru tveir fyrrum ráð­herrar í rík­is­stjórn Namibíu, for­stjóri rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor og stjórn­ar­for­maður sömu útgerðar.

Rétt­ar­höld yfir þeim eiga að hefj­ast í byrjun næsta árs, en sam­kvæmt nýlegum yfir­lýs­ingum rík­is­sak­sókn­ara í Namibíu, heldur hún enn í von­ina um að henni tak­ist að bæta þremur Íslend­ingum við á saka­manna­bekk fyrir þann tíma. Þrjá fyrrum stjórn­endur Samherja í Namibíu, sem hún vill sak­sækja fyrir lög­brot í Namibíu. Forsenda þess er hins vegar sú að menn­irnir þrír annað hvort komi sjálf­vilj­ugir fyrir dóm eða verði fram­seldir suð­ur­eftir.

Nokkuð sem telst harla ólík­legt. Formleg fram­sal­skrafa hefur ekki verið lögð fram, að sögn vegna þess að enn hefur ekki verið að fullu lokið end­an­lega við rann­sókn á mögu­legum brotum Samherja og þætti stjórn­enda félags­ins í þeim, til að mynda vegna meintra skatta­laga- og gjald­eyr­is­brota í Namibíu.

Venaani McHenry Venaani er leið­togi mið hægri flokks­ins PDM sem er næst stærstur á namibíska þing­inu. Flokk­ur­inn bætti veru­lega við sig fylgi í síð­ustu kosn­ingum, fáeinum vikum eftir upp­ljóstrun Namib­íuskandals­ins. Flokk­ur­inn á nú 16 af 104 full­trúum á þing­inu í Windhoek.

Bréf namibíska stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­ans til for­sæt­is­ráð­herra Íslands, sem barst næstum upp á dag, fjórum árum eftir að þessi mál komust í hámæli, er birt hér í heild sinni.

Opið bréf Venaani til Katrínar Jak­obs­dótturBréfið má sjá hér í heild sinni.

„Ég vona að þetta bréf hitti þig vel fyrir. Ég skrifa þér, í krafti stöðu minnar sem leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar á namibíska þjóð­þing­inu. Ég biðla til sam­visku þinnar og með mik­illi virð­ingu fyrir þínu virðu­lega emb­ætti, þegar ég hvet þig til að end­ur­skoða áður til­kynnt áform rík­is­stjórnar þinnar um að veita útgerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæk­inu Samherja 100 millj­óna króna styrk til nýt­ingar á end­ur­nýj­an­legri orku. 

Ég hef þungar áhyggjur af þætti Samherja í fjöl­mörgum spill­ing­ar­málum í Namibíu og hef því sam­band við þig. Fyr­ir­tækið sætir ásök­unum um að hafa greitt umtals­verðar upp­hæðir í mútur allt frá árinu 2012 til að tryggja sér óeðli­legt for­skot í namibískum sjáv­ar­út­vegi. Sú hátt­semi fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið skil­greind sem mik­il­vægur þáttur í máli því sem nú er þekkt sem „Fishrot Saga“ á alþjóða­vísu. Fórn­ar­kostn­aður þeirrar sögu er hár og sárin sem hún skóp eru enn opin í hjörtum ótal sak­lausra Namib­íu­manna. Vegna óheftrar græðgi og lög­brota Samherja hafa þús­undir sjó­manna tapað atvinnu sinni og ramba á barmi örbirgðar. Áhrif þessa hafa auk­ist enn frekar af vegna núver­andi heims­far­ald­urs og eru fjöl­skyldur og heilu sam­fé­lögin skilin eftir í gríð­ar­lega erf­iðri stöðu. 

Bón mín er tæki­færi til að sýna for­dæmi og taka afstöðu gegn spill­ingu og arðráni. Gerðu það, ekki veita slíku skjól með beinni aðstoð þinni. Þess í stað hvet ég þig til að krefj­ast þess að Samherji greiði þeim ótelj­andi namibísku sjó­mönnum sem misstu lífs­við­ur­væri sitt vegna sið­lausra aðgerða fyr­ir­tæk­is­ins við­eig­andi bætur. Fishrot-málið hefur haft mikil áhrif á ótal Namib­íu­menn. Sjómenn hafa misst vinn­una, sam­fé­lög hafa verið lögð í rúst og orðstír lands­ins skað­ast. Umfang spill­ing­ar­innar er hrein­lega yfir­þyrm­andi og ljóst að Samherji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli.

Frú for­sæt­is­ráð­herra, ég hvet þig til að sýna sið­ferði­lega for­ystu og krefj­ast þess að Samherji greiði bætur til þús­unda namibískra sjó­manna sem misstu vinn­una vegna græðgi og lög­brota útgerð­ar­innar. Ég hvet þig  líka til að gera allt sem í þínu valdi stendur til að tryggja að Samherji verði dreg­inn til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar.

Namibíska þjóðin á skilið rétt­læti. Hún á það skilið að fá það á hreint að íslensk stjórn­völd muni ekki þola spill­ingu. Ég hvet þig til að gera það sem er rétt og krefj­ast þess sem er sann­gjarnt og rétt­látt fyrir namibísku þjóð­ina. Við vonum að rík­is­stjórn þín – sem er þekkt fyrir að standa að málum með ábyrgum hætti og sam­kvæmt góðum venjum, end­ur­skoði ákvörðun sína – beiti sér fyrir því sem er sann­gjarnt og rétt­látt, og leiti bóta til handa namibísku þjóð­inni sem hefur þurft að þjást vegna víta­verðrar fram­komu Samherja.

For­sæt­is­ráð­herra, ég leyfi mér að ítreka að ég met þig mik­ils og bíð eftir jákvæðum við­brögðum þínum í þessum efnum.“

Kjósa
90
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Katrín er handgengin xD mafíunni og mun hunsa þetta eins og annað..
    8
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það má enginn snerta " Samherja "
    8
    • Kalla Karlsdóttir skrifaði
      Er það ekki þetta glæpafyrirtæki sem stjórnar þessu skeri.....
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár