Mynd: Golli

Einn á skútunni í 312 daga: „Ég er minn eigin herra“

„Ég er nú meira fíflið, hvað er ég eig­in­lega að gera hér?“ hugs­aði sir Robin Knox Johnston með sér þegar hann var að sigla undan ströndum Ástralíu og heyrði tón­list­ina óma frá landi. Sú hugsun varði ekki lengi og hann hefði aldrei viljað sleppa þeirri reynslu að sigla einn umhverfis jörð­ina. Nú hvetur hann aðra til að láta drauma sína ræt­ast, áður en það verður of seint.

Það var helli­rign­ing þegar ég gekk að höfn­inni við Hörpu og vindgnauðið í möstrum bát­anna sem lágu við bryggj­una var stöðugt, líkt hljóð­inu sem við heyrum þegar línan í fána­stöngum slæst við stöng­ina í roki. Bátarnir við höfn­ina voru flestir á hreyf­ingu því rokið var tals­vert og þegar litlar öld­urnar í höfn­inni skullu á þeim hljóm­uðu þeir eins og smellir – eða klapp eins og þeir væru að fagna því að vera við bryggju en ekki úti á rúm­sjó í þessu leið­inda­veðri.

Ég var óvenju­lega spenntur þar sem ég gekk að skút­unni því ég freist­aði þess að ná tali af þjóð­sagna­kenndum manni í heimi sigl­inga. Ég hefði ekki verið svona spenntur ef ég hefði ekki upp­lifað það að vera í áhöfn skútu frá Danmörku til Íslands fyrir þremur árum. Sú ferð – yfir úthaf með við­komu í Færeyjum – var mín jóm­frú­ar­ferð á skútu. Í þess­ari sigl­ingu upp­lifði ég …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RÓK
    Rúnar Óli Karlsson skrifaði
    Hitti Sir Robin á Ísafirði sumarið 2006. Það var afdrifaríkt. Eftir kjúklingakássu og nokkra bjóra um borð, vorum við vinur minn búnir að handsala kaup á skútunni!
    1
  • Baldvin Björgvinsson skrifaði
    Já, þetta er nú bara allt satt og rétt sem hann segir um siglingaklúbbana og að bíða ekki eftir því að láta draumana rætast.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár