Áslaug Arna komin aftur á þingfararkaup

Við þing­slit í gær fór Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, aftur á laun þrátt fyrir að vera erlendis í náms­leyfi. Hún fær um 3,1 milljón króna þar til vara­þing­maður tekur við í haust.

Áslaug Arna komin aftur á þingfararkaup
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Áslaug Arna beið lægri hlut í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í vor og til­kynnti í kjöl­farið að hún hygð­ist flytja til New York borgar í níu mán­uði til að stunda nám við Columbia háskóla. Mynd: Facebook

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fær um 3,1 milljón króna í greiðslur frá Alþingi frá deg­inum í dag þar til næsta þing er sett í sept­em­ber. Allan þann tíma verður hún stödd erlendis í námi.

Alþingi var frestað í gær eftir óvenju­langt vor­þing. Eins og Heim­ildin greindi frá í síð­ustu viku víkja vara­þing­menn og allir þjóð­kjörnir þing­menn taka sæti aftur að þingi loknu og fá greitt þing­far­ar­kaup, Áslaug Arna þar með­talin, fram að 157. lög­gjaf­ar­þingi sem hefst 9. sept­em­ber sam­kvæmt starfs­á­ætlun.

Þing­far­ar­kaup er 1.611.288 kr. á mán­uði og fær Áslaug Arna greiddan fastan ferða­kostnað í kjör­dæmi upp á 43.500 kr. og fastan starfs­kostnað upp á 58.000 kr. hvern mánuð.

Fær hún því í kringum 3,1 milljón króna í greiðslur frá Alþingi þar til vara­þing­mað­ur­inn Sigurður Örn Hilm­ars­son tekur sæti hennar 9. sept­em­ber ef allt gengur eftir.

Áslaug Arna til­kynnti í vor að hún mundi taka sér leyfi í níu mán­uði til að leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Hún hafði í febr­úar beðið lægri hlut í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn Guðrúnu Haf­steins­dóttur.

Hún hafði þegar fengið nokk­urra daga laun í júlí þrátt fyrir að vera farin til New York borgar en vara­þing­maður tók sæti hennar á fimmta virka degi eftir að hún var flogin út. Munar þar um nokkur hund­ruð þús­unda króna í greiðslur til Áslaugar Örnu. Hún hafði þá raunar verið skráð fjar­ver­andi við allar atkvæða­greiðslur á Alþingi frá 20. júní.

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár