Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, hæddist í síðustu viku að orðagjálfri forseta Frakklands um framgöngu Rússa í Úkraínu. Á samfélagsmiðlinum X hvatti hann Emmanuel Macron til að láta af ræðuhöldum og munda heldur kjarnorkuvopnin.
Heimir Már virðist ekki einn um slíka hvatningu. Bandaríski fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson fullyrti um síðustu helgi að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, þrýsti ákaft á Donald Trump Bandaríkjaforseta um að beita kjarnorkuvopnum gegn Íran.
Ósmekklegar og ógnvekjandi
Á Smithsonian-flugminjasafninu í Bandaríkjunum er til sýnis gljáfægð flugvél úr björtu áli. Vélin var gerð upp af alúð og skipar nú heiðurssess á safninu. Saga hennar er hins vegar svört.
Vélin ber nafnið Enola Gay. Var hún notuð til að varpa fyrstu kjarnorkusprengjunni sem beitt var í hernaði á japönsku borgina Hírósíma árið 1945. Á upplýsingaskiltinu við vélina er gerð grein fyrir tæknilegum eiginleikum hennar og áhöfn. Ekki er minnst einu orði á hryllinginn sem beið fólks á jörðu niðri.
Sagan er fínpússuð víðar en á flugminjasafni í Bandaríkjunum.
Árið 1973 voru settar upp þrjár gínur á Friðarsafninu í Hírósíma. Var um að ræða líkneski af konu og tveimur börnum sem reika skaðbrennd um borg í logum. Var gínunum ætlað að fanga aðstæður í Hírósíma fyrstu andartökin eftir að kjarnorkusprengjan féll. Gínurnar urðu með árunum að þjóðþekktu tákni fyrir þær ólýsanlegu hörmungar sem kjarnorkusprengjan hafði í för með sér. Árið 2017 voru þær hins vegar fjarlægðar.
Stuttu fyrir brotthvarf líkneskjanna heimsótti blaðamaður The Times safnið. Þar hitti hann fyrir hina rúmlega áttræðu Megumi Shinoda, sem mótmælti breytingunni á safninu.
„Fólkið leit nákvæmlega svona út,“ sagði hún, en Shinoda var þrettán ára þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á heimaborg hennar, Hírósíma. „Það var sótsvart og rauðflekkótt, líkamar þaktir brunasárum og blóði. Það var varla að sjá að þetta væru manneskjur. Fólkið teygði fram handleggina því húðin bráðnaði utan af holdinu – aðeins neglurnar héldust á sínum stað. Fötin höfðu fuðrað upp og það kallaði „mamma, mamma“. Fólk dó gangandi.“
Þegar blaðamaður kvað mörgum finnast gínurnar ósmekklegar og ógnvekjandi svaraði hún: „En við eigum að vera hrædd.“
Fjarlægði ummælin
Áratugum saman hefur veröldin stefnt að kjarnorkuafvopnun. Samkvæmt nýjum tölum frá Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnuninni í Stokkhólmi fjölgaði kjarnavopnum tiltækum til hernaðar um rúmlega hundrað á síðasta ári.
Það eru þó ekki aðeins tölurnar sem gefa tilefni til svartsýni.
Heimir Már Pétursson fjarlægði tilmæli sín til Frakklandsforseta af X og baðst afsökunar á orðum sínum.
Engin ástæða er til að efast um einlægni afsökunarbeiðninnar. Það sem vekur hins vegar óhug er að afleiðingar tillögu hans virðast ekki hafa runnið upp fyrir honum fyrr en að betur athuguðu máli.
Sú var tíðin að andstaða við notkun kjarnorkuvopna var flestu fólki eðlislæg. Nú hafa menn hins vegar slíka notkun í flimtingum.
Umdeild áform
Stjórnendur Friðarsafnsins í Hírósíma hyggja á enn frekari sögusnyrtingu. Í sumarlok bárust fréttir af umdeildum áformum safnsins um að útbúa sérstakt sýningarsvæði fyrir börn og ungmenni. Þannig geti þeir sem svo kjósa sneitt hjá mesta hryllingnum.
Sagan getur verið óhugnanleg. Söguleg hreingerning er þó óhugnanlegri en hvers konar gínur.













































Athugasemdir