Réttarhöld yfir fjórum liðsmönnum bannaðra öfgasamtaka hófust í borginni Düsseldorf í vesturhluta Þýskalands í dag. Þar á meðal er maður sem kallar sig „konung“ Þýskalands.
Mennirnir fjórir eru sakaðir um að vera höfuðpaurar „Konungsríkis Þýskalands“, afleggjara samsæriskenningahreyfingarinnar „Ríkisborgarar“ („Reichsbuerger“), sem hafnar lögmæti núverandi þýska lýðveldisins.
Peter Fitzek, 61 árs, sem hefur útnefnt sjálfan sig „konung“ samtakanna, stofnaði þau árið 2012. Hann var áður matreiðslumaður og karatekennari. Hann var handtekinn ásamt hinum þremur í maí 2025, þegar innanríkisráðuneytið bannaði samtökin.
Samtökin „stefndu að því að afnema stjórnskipan Sambandslýðveldisins Þýskalands og koma eigin gerviríkisskipulagi í hennar stað“, sagði Ingo Kaiser, aðalsaksóknari málsins, við æðra héraðsdómstólinn í Düsseldorf.
Fitzek krafðist þess að vera skráður sem „Peter fyrsti“. Jan van Lessen dómari taldi því að sakborningurinn neitaði að „veita réttar upplýsingar um persónuhagi sína“.
Gagnrýnendur afgreiddu lengi fylgismenn Reichsbuerger-hreyfingarinnar sem óánægjufólk og furðufugla. Á síðustu árum hafa þeir …














































Athugasemdir