Íris Helga Jónatansdóttir sat um meinta þolendur fyrir utan heimili þeirra á Reykjanesinu eftir að þriðja deginum í réttarhöldum í umfangsmiklu umsáturseineltismáli gegn henni lauk í gær. Réttargæslumaður parsins neitar að tjá sig efnislega um málið í bili en Heimildin hefur fengið staðfestingu á því að lögreglan hafi verið kölluð til vegna atviksins þar sem fjölskylda Írisar kom einnig við sögu.
Parið sem um ræðir er það sem hefur lengst mátt þola áreiti eltihrellis sem Íris Helga er nú ákærð fyrir. Réttarhöld hafa staðið yfir Írisi í vikunni en hún er ákærð í 68 liðum fyrir brot gegn níu einstaklingum. Hluti þeirra sem hún er sökuð um að hafa hrellt voru á barnsaldri þegar áreitið átti sér stað.
Lamdi í bílrúðu parsins
Íris Helga og samverkamaður hennar eru bæði ákærð fyrir að áreita parið, meðal annars með því að klína saur á heimili þess og bifreið og …

















































Athugasemdir