Áslaug Arna fær aftur laun þrátt fyrir að vera í leyfi

Þrátt fyrir að vera í New York í námi mun Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir fá greitt þing­far­ar­kaup þegar Alþingi er slitið og fram til 9. sept­em­ber ef vara­þing­maður hennar tekur þá við eins og stendur til.

Áslaug Arna fær aftur laun þrátt fyrir að vera í leyfi
Flutt í New York Áslaug Arna verður við nám Í Banda­ríkj­unum í níu mán­uði og birti á laug­ar­dag þessa mynd af flutn­ing­unum á Instagram.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, er flutt til New York í nám en fer engu að síður aftur á þing­far­ar­kaup þegar Alþingi verður slitið og heldur því þar til næsta þing verður sett í haust.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Alþingis mun vara­þing­maður sem kom inn fyrir Áslaugu Örnu síð­ast­lið­inn föstu­dag víkja af þingi þegar þingi er slitið. Taka þá allir þjóð­kjörnir þing­menn sæti aftur og fá greitt þing­far­ar­kaup, Áslaug Arna með­talin, fram að 157. lög­gjaf­ar­þingi sem hefst 9. sept­em­ber sam­kvæmt starfs­á­ætlun.

Þing­far­ar­kaup er 1.611.288 kr. á mán­uði og fær Áslaug Arna greiddan fastan ferða­kostnað í kjör­dæmi upp á 43.500 kr. og fastan starfs­kostnað upp á 58.000 kr. hvern mánuð.

Áslaug Arna til­kynnti í vor að hún mundi taka sér leyfi í níu mán­uði til að leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Hún hafði í febr­úar beðið lægri hlut í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn Guðrúnu Haf­steins­dóttur. Tilkynnt var að Sigurður Örn Hilm­ars­son mundi taka sæti Áslaugar Örnu á meðan, en útskrift hennar er í maí 2026.

Birna Braga­dóttir tók hins vegar sæti á Alþingi fyrir Áslaugu Örnu á föstu­dag en þá hafði Áslaug Arna verið í New York frá því helg­ina áður hið minnsta. Hlýtur Áslaug Arna því laun fyrir að minnsta kosti fjög­urra daga þing­setu þennan mán­uð­inn þrátt fyrir að hafa verið flutt erlendis. Hefur hún raunar verið skráð fjar­ver­andi við allar atkvæða­greiðslur á Alþingi frá 20. júní.

Enn óvíst með þinglok

Þing­flokkar taka ákvörðun um hvenær vara­menn eru kall­aðir inn. Samkvæmt lögum um þing­far­ar­kaup alþing­is­manna og þing­far­ar­kostnað fær þing­maður ekki greitt þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostnað þegar vara­maður situr á þingi og hann er ekki í opin­berum erindum á vegum Alþingis eða for­fall­aður vegna veik­inda.

Annað gildir þó þegar Alþingi er ekki að störfum en þá víkja vara­þing­menn af þingi og greiðslur til þeirra falla niður. Taka þjóð­kjörnir þá sæti og fá greitt þing­far­ar­kaup.

Alþingi er enn að störfum en sam­kvæmt upp­haf­legri starfs­á­ætlun átti að slíta því 13. júní síð­ast­lið­inn. Þing­flokks­for­mönnum flokk­anna á Alþingi hefur ekki tek­ist að semja um þing­lok en frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um veiði­gjöld er meðal þess sem enn er til umræðu. Hafa þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar sakað stjórn­ar­and­stöð­una um mál­þóf en umræðan um frum­varpið er orðin sú þriðja lengsta frá því að Alþingi var sam­einað í eina mál­stofu árið 1991.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár