Áslaug Arna komin til New York en enginn tekinn við

Vara­maður hefur ekki verið kall­aður inn fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir þing­maður flutti til Banda­ríkj­anna í nám.

Áslaug Arna komin til New York en enginn tekinn við
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er komin í 9 mán­aða leyfi til að stunda nám við Columbia háskóla. Mynd: Golli

Enginn vara­þing­maður hefur verið kall­aður inn fyrir Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem flutt er til New York borgar.

Tilkynnt var í vor að Sigurður Örn Hilm­ars­son mundi taka sæti Áslaugar Örnu eftir að hún ákvað að taka sér leyfi í níu mán­uði til að leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Áslaug Arna beið lægri hlut í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í febr­úar gegn Guðrúnu Haf­steins­dóttur.

Vísir greindi frá því í gær að Áslaug Arna væri komin til New York. „Það er komið að þessu, ég er flogin til NYC og komin í gegnum landamæra­eft­ir­litið sem var ekk­ert mál með stu­dent visað,“ sagði hún á Instagram í gær. „Það eru smá blendnar til­finn­ingar að vera farin, en spenn­ingur á yfir­hönd­ina með miklum yfir­burðum sem betur fer.“

Alþingi er hins vegar ekki komið í sum­ar­frí og þing­fundur stendur yfir í dag. Eru þar meðal ann­ars veiði­gjöld til umræðu en þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa sakað stjórn­ar­and­stöð­una um mál­þóf og Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar með­tal­inn.

Samkvæmt vef Alþingis hefur vara­maður ekki verið kall­aður inn fyrir Áslaugu Örnu og stjórn­ar­and­staðan því ekki full­skipuð á fundi dags­ins.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er nú alveg skaðlaust þótt enginn taki við.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár