Boðar málþóf gegn veiðigjöldum í allt sumar

Jens Garðar Helgason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir veiði­gjalda­frum­varp rík­is­stjórnar dellu­mál sem standa þurfi gegn í allt sumar ef til þurfi.

Boðar málþóf gegn veiðigjöldum í allt sumar
Jens Garðar Helgason Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagð­ist standa gegn veiði­gjalda­frum­varp­inu í allt sumar ef þyrfti.

Önnur umræða um veiði­gjalda­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar stendur yfir á Alþingi í dag. Jens Garðar Helgason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í pontu að það væri „heilög skylda“ and­stæð­inga frum­varps­ins að standa í gegn mál­inu „í allt sumar ef til þarf“.

Jens Garðar tók til máls áður en umræða um fund­ar­stjórn for­seta hófst með yfir­skrift­inni „Staða samn­inga­við­ræðna um þing­lok“ en and­staða stjórn­ar­and­stöð­unnar vegna veiði­gjalda­frum­varps­ins og inn­leið­ingar Bókunar 35 hefur lengt þing­störfin umfram það sem venju­legt er. Hafa þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar sakað stjórn­ar­and­stöð­una um mál­þóf til að koma í veg fyrir að Alþingi geti kosið um málin.

„Það er heilög skylda okkar að standa gegn þessum málum og við munum gera það í allt sumar ef til þarf“

„Það er ekki bara lýð­ræð­is­legur réttur stjórn­ar­and­stöð­unnar að tala hér fyrir þessu máli, það er heilög skylda okkar að standa gegn svona dellu­málum og öllum þessum vinstri málum sem eru árásir á elli­líf­eyr­is­þega, atvinnu­lífið í land­inu og alla þá sem er verið að reyna að koma með hér í gegn. Það er heilög skylda okkar að standa gegn þessum málum og við munum gera það í allt sumar ef til þarf,“ sagði Jens Garðar.

Guð­brandur Ein­ars­son, þing­maður Við­reisnar, kom næstur í pontu. „Þessi rík­i­s­tjórn lypp­ast ekk­ert niður og stöðvar þau mál sem þau telja að séu grund­vall­ar­mál og gerðu það að verkum að þessi rík­is­stjórn var mynduð,“ sagði hann og bætti við því að stjórn­ar­and­staðan hefði stundað mál­þóf svo dögum skipti. „Við höldum okkar striki.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Stórútgerðin ætti auðvitað að berjast fyrir því að veiðigjaldið sé aðgreint á reikningum veitingastaða. Þá mundi blasa við gestum allsstaðar að úr heiminum hvað við leikum stórútgerðina grátt (hækkað veiðigjaldið er um 15 kr/fiskmáltíð. )
    3
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Þá liggur það ljóst fyrir, að það er heilög skylda Sjálfstæðisflokksins að verja sægreifana fram í rauðan dauðann. Var svo sem vitað en gott að fá það staðfest af innsta koppi.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár