Falsaðar OxyContin töflur í umferð

Lyfja­stofnun varar við töflum sem inni­halda efni sem gefin eru við miklum verkjum, Parkison og floga­veiki.

Falsaðar OxyContin töflur í umferð
Fölsuðu töfl­urnar Töfl­urnar inni­halda ekki oxýkó­dón eins og útlit þeirra gefur til kynna. Mynd: Lyfjastofnun

Lyfja­stofnun varar við töflum sem líkj­ast OxyContin en inni­halda önnur vara­söm efni.

Í frétt á vef stofn­un­ar­innar segir að rann­sókna­stofu í lyfja- og eit­ur­efna­fræði við Háskóla Íslands hafi nýlega borist til grein­ingar töflur sem líkt­ust lyf­inu OxyContin 80 mg töflum í útliti. „Að efna­grein­ingu lok­inni er ljóst að þær inni­halda ekki oxýkó­don, sem er virka efnið í OxyContin,“ segir í frétt­inni.

Í töfl­unum eru hins vegar önnur efni sem geta verið vara­söm. „Fölsuðu töfl­urnar sem líkj­ast OxyContin 80 mg inni­halda ekki oxýkó­don, heldur para­seta­mól, koffín, kódein, klónazepam, bíperíden og ketórólak. Töfl­urnar sem greindar voru komu frá Norð­ur­landi og af höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í frétt­inni.

Þá eru töfl­urnar stimpl­aðar með „OC“ og „80“ sem sé mis­vísandi. „Fölsuðu töfl­urnar eru hins vegar þykk­ari en þær lög­legu, og filmu­húðin er laus­ari í sér,“ segir í frétt­inni. „Efnin sem greind hafa verið í fölsuðu töfl­unum eru sum hver notuð í lyfjum sem gefin eru við miklum verkjum, önnur við Park­in­sons­veiki, enn önnur við floga­veiki. Ekki er ljóst hver sam­verkan efn­anna í fölsuðu töfl­unum gæti orðið, áhrifin gætu orðið ófyr­ir­sjá­an­leg og valdið alvar­legum heilsu­fars­á­hrifum.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár