Trump segir Epstein-skjölin samsæri gegn sér

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í við­tali í gær að banda­ríska alrík­is­lög­reglan þurfi að rann­saka Epstein-skjölin sem sam­særi gegn sér. Hann hefur farið mik­inn síð­ustu daga og kallar stuðn­ings­menn sem óska eftir því að skjölin verði opin­beruð „veik­burða.“

Trump segir Epstein-skjölin samsæri gegn sér
Donald Trump Telur Epstein skjölin sam­særi gegn sér. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í við­tali hjá öfga-hægri­s­inn­anum Steve Bannon, í gær að banda­ríska alrík­is­lög­reglan (e. FBI) ætti að rann­saka það sem hann kallar „Jeffrey Epstein blekk­ing­una“ eða „Jeffrey Epstein Hoax“ sem glæp­sam­legt sam­særi gegn sér. 

Trump og rík­is­stjórn hans hafa verið harð­lega gagn­rýnd und­an­farið vegna Epstein rann­sókn­ar­innar. Pam Bondi dóms­mála­ráð­herra sagði fyrr í mán­uð­inum að engar sann­anir væru fyrir því að Epstein hefði haldið lista yfir við­skipta­vini sína og að hann hefði framið sjálfs­víg þegar hann sat í fang­elsi árið 2019. Hún hafði áður sagt að listi yfir við­skipta­vini væri til. Trump hefur staðið við bakið á Bondi og sagði við blaða­menn í gær að hún ætti að opin­bera upp­lýs­ingar úr rann­sókn­inni sem „henni þyki trú­verð­ugar.“

Jeffrey EpsteinVar dæmdur kyn­ferð­is­af­brota­maður og ákærður fyrir kyn­ferð­is­legt man­sal.

Trump hafði lagt til að skjöl rann­sóknar FBI í máli Epstein yrðu ekki öll opin­beruð þar sem þau gætu inni­haldið rangar upp­lýs­ingar um hann sem and­stæð­ingar hans í Demókra­ta­flokknum hefðu falsað. Epstein og Trump voru vinir en Epstein lést í fang­elsi 2019 á meðan hann beið dóms­úr­skurðar um kyn­ferð­is­legt man­sal. Epstein var dæmdur kyn­ferð­is­af­brota­maður.

Í yfir­lýs­ingu sem birt var á Truth Social-reikn­ingi Trumps á laug­ar­dag skrif­aði hann: „Hvers vegna erum við að birta umfjöllun um skjöl sem Obama, óheið­ar­lega Hillary, Comey, Brennan og tap­arar og glæpa­menn Biden-stjórn­ar­innar hafa skrifað?“ Segir hann að þau hafa búið til Epstein skjölin. 

Kallar stuðningsmenn veikburða

Epstein skjölin hafa skokið MAGA-heim­inn upp á síðkastið. Þannig hafa stuðn­ings­menn Trumps óskað eftir því að skjölin verði opin­beruð. Trump segir þessa stuðn­ings­menn hafa „látið Demókrata blekkja sig“ og að hann sé „búin að missa trú á ákveðnu fólki.“ 

„Leyfið þessu veik­burða fólki að halda áfram að vinna verk Demókrata,“ skrif­aði Trump á Truth Social í gær. „Ekki einu sinni hugsa um það að tala um ótrú­legan og for­dæma­lausan árangur okkar, því ég vil ekki lengur stuðn­ing þeirra.“

„Þetta er stórt vanda­mál og gæti skaðað kjör­sókn í mið­kjör­tíma­bils­kosn­ing­unum,“ sagði sér­fræð­ingur í stefnu­mótun fyrir Repúblik­ana í við­tali við NBC. Hann segir að for­set­inn hafi með þessu farið á bak orða sinna um að afhjúpa djúp­ríkið sem margir stuðn­ings­menn hans höfðu trú á að hann myndi gera. Djúp­ríkið er sam­sær­is­kenn­ing í Banda­ríkj­unum sem hefur notið vin­sælda meðal MAGA stuðn­ings­manna.

„Fyrir þau sem trúa því að djúp­ríkið sé raun­veru­legt og að Epstein hafi verið hluti af því, þá er þetta eins og hnífur í bakið,“ bætti sér­fræð­ing­ur­inn við.

Musk sagði Trump á lista

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Elon Musk og Trump hafa átt í mjög svo opin­berum erjum í sumar. Hafa þeir báðir farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum sínum, X og Truth Social. Musk hafði leitt deild fyrir hag­kvæman rík­is­rekstur, oft kallað DOGE, í rík­is­stjórn Trump en tíma hans þar lauk í lok maí. 

Musk hafði þá gagn­rýnt „Flennistóra, fagra frum­varpið“ eða „Big beauti­ful bill“ sem full­trúa­deild Banda­ríkja­þings sam­þykkti í seinni hluta maí og sagði frum­varpið grafa undan vinnu hans hjá DOGE. 

Í erj­unum á sam­fé­lags­miðlum full­yrti Musk svo að nafn Trump væri að finna í Epstein skjöl­unum og sagði það ástæðu þess að ekki væri búið að birta lista yfir við­skipta­vini. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár