Martröðin að eignast heimili

Þor­valdur S. Helgason skrifar um Fast­eigna­martröð­ina eftir Gabrielė Labanauskaitė, sem sýnd er í Sam­komu­hús­inu.

Martröðin að eignast heimili
Á fast­eigna­mark­aði Fast­eigna­martröðin fjallar um raunir Arnrúnar við að koma þaki yfir höf­uðið og eign­ast eigið hús­næði. Leik­fé­lag Akur­eyrar sýnir verkið í Sam­komu­hús­inu. Mynd: Auðunn Níelsson
Leikhús

Fast­eigna­martröðin

Höfundur Gabrielė Labanauskaitė
Leikstjórn Adolf Smári Unnarsson
Leikarar Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir

Þýðing: Adolf Smári Unnarsson

Dramatúrg: Júlía Gunnarsdóttir

Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir

Ljósahönnun og myndbandagerð: Fjölnir Gíslason

Tónlist: Jóhannes Damian R. Patreksson

Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson

Gervahönnun: Harpa Birgisdóttir

Niðurstaða:

Grátbroslega fyndið verk um fasteignamarkaðinn.

Gefðu umsögn

Það er aðeins tvennt sem íslenska þjóðin getur sam­ein­ast um þessi miss­erin: Hér er vont veður og hér er alltof dýrt að lifa. Á árunum eftir Covid hefur fast­eigna­mark­að­ur­inn nán­ast orðið að nútíma Grýlu og reglu­lega birt­ast í fjöl­miðlum hryll­ings­sögur af ungu fólki sem hefur slig­ast undan auk­inni lána­byrði og stjórn­lausum vaxta­hækk­unum. Akur­eyr­ingar hafa ekki farið var­hluta af þessu en birt­ing­ar­myndir þess má ann­ars vegar sjá í glæ­nýju lúxus­í­búð­unum við Pollinn stein­snar frá Sam­komu­hús­inu og hins vegar í Sam­komu­hús­inu sjálfu þar sem leik­ritið Fast­eigna­martröðin eftir litá­enska leik­skáldið Gabrielė Labanauskaitė var frum­sýnt á vegum Leik­fé­lags Akur­eyrar síð­ustu helgi. Um er að ræða fyrstu upp­setn­ingu hér­lendis á verki eftir Labanauskaitė sem þykir eitt fremsta leik­skáld Eystra­salts­ríkj­anna, en leik­stjóri verks­ins og þýð­andi er Adolf Smári Unn­ars­son sem hefur fest sig í sessi sem einn ötul­asti leik­stjóri sjálf­stæðu sviðs­lista­sen­unnar hér á landi. Eins og tit­ill­inn gefur til kynna þá talar Fast­eigna­martröðin beint inn í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár