Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“

Formaður Eflingar segir traust á milli Eflingar og fram­kvæmda­stjóra Samtaka Atvinnu­líf­is­ins brostið eftir við­ræður við VR. Hún segir fram­kvæmda­stjór­ann hafa beitt klækja­stjórn­málum.

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Les nýj­um­fram­kvæmda­stjóra pistil­inn. Mynd: Bára Huld Beck

„Samtök atvinnu­lífs­ins hafa valið ófrið við Eflingu,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, á Facebook þar sem hún gagn­rýnir Bjarna Bene­dikts­son, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, harð­lega fyrir samn­inga sína við VR. Hún segir SA hafa sýnt af sér ábyrgð­ar­leysi og þver­brotið „allt sem hægt er að kalla lág­marks­reglur í sam­skiptum aðila vinnu­mark­að­ar­ins umb­unað með þátt­töku fram­kvæmda­stjóra SA í gjörn­ingnum“.

Virðingarleysi

Sólveig Anna hefur verið mjög gagn­rýnin á samn­inga­við­ræður VR og SA sem náð­ust á síð­ustu mín­útu í lok síð­ustu viku. Sólveig segir Samtök atvinnu­lífs­ins hafa ákveðið að frið­þægja VR og „fylgd­ar­lið for­manns félags­ins, for­ystu fag­fé­lag­anna“, eins og Sólveig Anna orðar það í pistli sínum. Hún hefur einnig gagn­rýnt harð­lega að vaxta­bóta­auki hafi boð­ist öðrum stétt­ar­fé­lögum tveimur dögum áður en samn­ingar náð­ust við VR, en það reynd­ist lyk­il­for­senda þess að samn­ingar náð­ust.

Kjarninn í gagn­rýni Sól­veigar virð­ist vera virð­ing­ar­leysi sem sam­tökin upp­lifa af hálfu fram­kvæmda­stjóra SA. „Atvinnu­rek­endur og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Um hvað er Sólveig að tala? getur einhver útskýrt það út fyrir mér? Fékk VR eitthvað meira en Efling? Hvaða svik er hún að tala um?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár