Fyrirtæki hlaupist algjörlega undan merkjum

Formaður VR segir fyr­ir­tæki hafa hlaup­ist undan merkjum þegar kemur að því að halda aftur af verð­hækk­unum sem hafa verið elds­matur á verð­bólgu­bálið. Það bendir margt til þess að kreppu­verð­bólga sé handan við hornið.

Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunn­ars­dóttir Formaður VR segir fyr­ir­tæki hafa brugð­ist í kjara­málum með verð­hækk­unum. Mynd: VR

„Mér finnst það alveg ljóst, að þessi stærri fyr­ir­tæki sem hafa verð­mót­andi áhrif á Íslandi, þau hafa algjör­lega hlaup­ist undan merkjum,“ segir Halla Gunn­ars­dóttir, for­maður VR, en hún ásamt for­mönnum fimm ann­arra verka­lýðs­fé­laga rit­uðu grein sem birt­ist á Vísi í dag þar sem varað er við að ákvæði í kjara­samn­ingum frá árinu 2024 í tengslum við verð­bólgu séu brostin. Þann 27. ágúst næst­kom­andi verður vísi­tala neyslu­verðs birt og fyr­ir­séð að árs­verð­bólgan mun mæl­ast svo há að for­sendur kjara­samn­inga bresta.

Fyrirtækjum sendur tónninn

Í grein­inni er stærri fyr­ir­tækjum, sem eru á margan hátt verð­mynd­andi eins og það er orðað í grein­inni, sendur hvass tónn. Orðrétt segir í grein­inni:

„Vel hefði mátt fyr­ir­byggja þá stöðu sem nú er komin upp. Hefðu stærri fyr­ir­tæki, sem móta verð í land­inu, staðið við fyr­ir­heit um að halda aftur af verð­hækk­unum væri verð­bólgan lægri en raun ber vitni. Þess í stað hafa þau …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Skrítið að Halla undri sig á að fyrirtæki hækki verð bara af því þau geta það. „Þau hafa verið að skila góðu búi á verðbólgutímum. Og það var bara ekki hluti af samningnum. Þau áttu að halda vöruverði niðri.“. Alla þá ríflegu öld sem við höfum verið með krónuna, þá hafa fyrirtæki í fákeppninni hér auðveldlega getað hækkað vöruverð ríflega. Markmið í fyrirtækjarekstri er jú góður hagnaður og hefur líkast til verið markmiðið í þúsundir ára. Ég veit ekki hvers vegna Halla heldur að það hafi allt í einu breyst og það bara á Íslandi en ekki í heimsbyggðinni allri. Það er vel þekkt í vestrænni hagfræði að heilbrigð samkeppni er leiðin til að halda verðhækkunum í skefjum. Í fákeppninni hér verður verðhækkunum ekki haldið í skefjum, böndum verður ekki komið á verðbólguna á fyrr en við losum okkur við örmyntina krónu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár