Gerðu húsleit hjá þingkonu Demókrata

Ilhan Omar hefur áður sagt rann­sókn yfir­valda á sér vera póli­tíska árás. Þrjár vikur eru til þing­kosn­inga í Banda­ríkj­unum, þar sem úrslitin ráða því hvor flokk­ur­inn fær meiri­hluta á þingi. Omar hefur gagn­rýnt Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, harð­lega, sem hefur svarað af hörku.

Gerðu húsleit hjá þingkonu Demókrata
Gagn­rýnin Omar er meðal helstu gagn­rýnenda Trumps á banda­ríska þing­inu og hefur hann ekki hikað við að skjóta á hana í opin­berri umræðu. Mynd: Lorie Shaull / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0)

Banda­rískir alrík­is­full­trúar gerðu hús­leit á heim­ili Ilhan Omar, þing­konu demókrata, í Washington í dag vegna saka­mála­rann­sóknar, að sögn banda­rískra fjöl­miðla. Hús­leitin markar veru­lega stig­mögnun í átökum Donalds Trumps for­seta við þing­kon­una, sem hefur gagn­rýnt hann harð­lega.

Full­trúar Homeland Security Investigations (HSI), rann­sókn­ar­deildar banda­rískra inn­flytj­enda­yf­ir­valda, fram­kvæmdu hús­leit­ina, sam­kvæmt frétt Fox News sem byggir á heim­ildum fólks sem þekkir til máls­ins. Þrjár vikur eru til þing­kosn­inga þar sem úrslitin munu ráða því hvor flokk­ur­inn fer með meiri­hluta á Banda­ríkja­þingi.

Fox News greindi frá því að hús­leitin tengd­ist saka­mála­rann­sókn á mögu­legum svikum við gerð gagna vegna umsóknar í inn­flytj­enda­málum sem lát­inn faðir Omar, sem fædd­ist í Sómalíu, lagði fram fyrir hennar hönd þegar hún var barn.

Banda­rískir fjöl­miðlar höfðu eftir dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að full­trúar hefðu gert hús­leit með heim­ild dóm­stóls á Washington-svæð­inu. Emb­ætt­is­menn nefndu þó ekki Omar og greindu ekki frá því hvers eðlis rann­sóknin væri.

„Í dag …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já sagan sýnir okkur að öll stórveldi heims á sögulegum tíma ná tilteknum hæðum og svo hrinja þau, USA verður engin undan tekning. Sind.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég held að Bandaríkin séu komin fram yfir síðasta söludag, rotnunin er orðin svo mikil.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu