Sagði „nei“ við einu frumvarpi ríkisstjórnarinnar

Halla Hrund Loga­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokks, hvetur til samvinnu­pólitíkur og sagðist ekki taka þátt í málþófi stjórnar­andstöðunnar um veiði­gjöld. Hún hefur greitt atkvæði með mun fleiri málum ríkis­stjórnarinnar en á móti.

Halla Hrund Logadóttir
Halla Hrund Loga­dóttir Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks tók ekki þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar. Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokks og fyrr­verandi orkumála­stjóri, sem bauð sig fram til forseta vorið 2024, hefur aðeins sagt „nei“ við einu frumvarpi ríkis­stjórnarinnar.

Halla Hrund greiddi atkvæði gegn frumvarpi fjármála- og efnahags­ráðherra um opinber fjármál. 

Að öðru leyti hefur hún einungis greitt atkvæði gegn breytingar­tillögum stjórnar­andstöðunnar í einstaka málum, afbrigðum um lengd þing­fundar og því að frumvarpi um veiði­gjöld yrði vísað til atvinnu­veganefndar eftir 1. umræðu.

Halla Hrund hefur sagt „já“ í 69,5% atkvæða­greiðslna, nei í 5,2% þeirra og setið hjá í 16,1% tilvika. Flest málanna sem hún studdi eru stjórnar­frumvörp en í mörgum þessara mála sátu stjórnar­andstöðu­þingmenn hjá eða greiddu atkvæði gegn þeim.

Vill styttri ræðutíma og lengri undirbúning mála

Halla Hrund birti í gær færslu á Facebook um þennan fyrsta þingvetur sinn þar sem hún hvatti til samvinnu­stjórnmála að norrænni fyrirmynd. Benti hún á að hún hefði ákveðið að taka ekki þátt í málþófi stjórnar­andstöðunnar í veiðigjalda­málinu.

„Síðustu vikur þingsins hafa vakið upp blendnar tilfinningar hjá mér,“ skrifaði hún. „Ég vona að næst náist að ljúka þing­störfum þannig að sem mest sátt ríki á meðal þing­flokka. Betri bragur er á slíku en þeirri stig­vaxandi átaka­pólitík sem nú ræður ríkjum sem er óviðunandi og þingi ekki sæmandi, sama hvaða flokki fólk tilheyrir. Við þurfum líka að gæta þess að halda skyn­samlegu tungutaki því það þjónar hvorki okkur né öðrum að líkja stöðu Íslands, frið­samasta ríki heims í alþjóð­legum saman­burði, við stríðs­ástand eða að lýðræðinu sé ógnað. Næg eru átökin í heiminum þar sem slík orðræða á því miður við.“

„Næg eru átökin í heiminum“

Benti hún á að hún hefði átt góð samtöl við fólk í öllum flokkum, þar á meðal sessu­nauta sína Njál Trausta Friðbertsson úr Sjálfstæðis­flokki og Snorra Másson úr Miðflokki, auk þess að hafa lært mikið af Sigurði Inga Jóhanns­syni, formanni Framsóknar­flokksins.

„Að mínu mati er samtal og samvinna mikil­vægasta aflið sem við þurfum að virkja,“ skrifaði Halla Hrund. „Sjáum ekki óvini í hverju horni. Veljum aðra leið. Horfum heldur til samvinnu­pólitíkur Norður­landanna þar sem undir­búningur mála er lengri með aðkomu ólíkra flokka og ræðutími í þinginu því styttri. Ég þekki vel úr starfi mínu sem orkumála­stjóri að frumvörp geta tekið eitt til þrjú ár í undir­búningi áður en þau verða að lögum. Það krefst þolinmæði og úthalds og mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á hraða afgreiðslu sem mæli­kvarða árangurs. Best er að stíga vönduð skref í laga­setningu auðlinda­mála sem standast tímans tönn óháð því hvaða ríkis­stjórn situr, því árangursrík og ábatasöm nýting auðlinda krefst fyrir­sjáanlegrar og traustrar umgjörðar.“

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Það þarf hugrekki til að fylgja hugsjónum sínum í stað þess að að gera það sem auðveldara er og fylgja bara ríkjandi straum. Allir skinja að Halla Hrund er vönduð hugsjónakona og öflugur leiðtogi sem fylgir sínum hugsjónum. Því er ekki skrítið að öllum flokkum finnust hún passa betur hjá sér en þar sem hún er. Allir vildu Hölluna eiga ;-) En það er Halla Hrund sem velur sjálf hvar hún vill vera. Hún með frábæra menntun og reynslu. Leiðandi rrödd samvinnu, sjálfbærni og skynsamlegrar nýtingar náttúruauðlinda, velferðar og friðar. Hún tekur ekki þátt í ómálefnalegu málþófi og líkar ekki við illmælgi. Hún gerir mikið gagn hvar sem hún er. Það verður spennandi að fylgjast með Höllu Hrund í framtíðinni.
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár