Árásin á Bastilluna: Franska byltingin hófst með því að geðveikir kynferðisglæpamenn og falsarar voru frelsaðir

Árásin á Bastilluna: Franska byltingin hófst með því að geðveikir kynferðisglæpamenn og falsarar voru frelsaðir
Árásin hefst. Árásin á tákn hatðrar rík­is­stjórnar.

Í dag, 14. júlí, er Bastillu­dag­ur­inn svo­kall­aði í Frakk­landi og er þá ævin­lega mikið um dýrðir. Dagurinn er yfir­leitt tal­inn marka upp­haf frönsku bylt­ing­ar­innar árið 1789 þegar feyskinni ein­valds­stjórn Bourbon-ætt­ar­innar sem hrundið frá völdum. Bylt­ingin var gerð í nokkrum áföngum en vel má segja að eftir 14. júlí hafi ekki verið aftur snúið.

Basillan var virki í Par­ís­ar­borg sem hýsti bæði vopna­búr og einnig fang­elsi þar sem hafði oft verið vistað fólk sem hafði sett sig upp á móti ein­valds­stjórn­inni. Fang­arnir bjuggu yfir­leitt við illa með­ferð og hafði það því afar slæmt orð á sér.

Þess vegna var það engin smá­ræðis yfir­lýs­ing þegar mann­fjöldi í París réð­ist að Bastill­unni í þeim til­gangi að frelsa alla fanga sem þar sátu.

Fangelsisstjórinn afhausaður

Árásin, sem var að mestu sjálf­sprottin í hópi ákafra stjórn­ar­and­stæð­inga í París, lukk­að­ist að því leyti að eftir fjög­urra tíma bar­daga náðu árás­ar­menn virk­inu. En það kost­aði mikið blóð og alls féllu um 100 manns úr hópi árás­armanna en ekki nema einn úr hópi varð­manna.

Fang­arnir leiddir í frelsið.Af skegg­inu að dæma er það Írinn Whte þar sem þarna er leiddur upp úr dýflissu.

Eftir að árás­ar­menn náðu Bastill­unni drápu hins vegar sex eða átta úr varð­lið­inu og þar á meðal fang­els­is­stjór­ann, mark­greifann De Launey. Reiður múgur réð­ist að honum, stakk hann ítrekað með hnífum og eftr að hann var dauður var höf­uðið sargað af honum og árás­ar­menn gengu með það um götur, sigr­andi hrós­andi.

En hvaða öfl­ugu liðs­menn og skoð­ana­systkin fengu hinir verð­andi bylt­ing­ar­menn lausa með þess­ari blóð­ugu og sögu­legu árás?

Fjórir peningafalsarar

Því var lítt eða ekki haldið á lofti á næst­unni þótt árásin á Bastill­una yrði umsvifa­laust þungja­miðjan í hug­ar­heimi bylt­ing­ar­manna.

Fang­arnir voru í fyrsta lagi sjö og í öðru lagi var eng­inn þeirra póli­tískur fangi í neinum skiln­ingi eða bar­áttu­maður gegn Bourbon-veld­inu.

Fjórir af sjömenn­ing­unum voru ósköp venju­legir glæpa­menn, pen­inga­fals­arar flestir eða allir. Þeir hétu Bernard Laroche, stundum nefndur Beausa­blon, Jean Béchade, Jean La Corrège og loks Jean-Antoine Pujade. Stuttu eftir að þeir voru leystir úr haldi hafði lög­reglan í París hendur í hári þeirra á ný og lok­aði þá inni í öðru fang­elsi í Bicêtre.

Lokaðir inni

Hinir þrír höfðu allir í haldi í Bastill­unni að ósk fjöl­skyldna þeirra.

Einn þeirra var sex­tugur og hét Auguste-Claude Tavern­ier. Hann átti snemma við geð­ræn vanda­mál að stríða og þá hafði faðir hans, þjónn á herra­setri, maður sem öllum heim­ildum ber saman um að hafi verið ofbeld­is­fullur ruddi, látið loka son inn á geð­veikra­hæli.

Hann end­aði svo í Bastill­unni eftir að grunur vakn­aði um að hann ætl­aði sér að gera til­ræði við kóng­inn, en öllum mun þó hafa verið ljóst að sá grunur átti sér enga stoð og Tavern­ier var mein­laus með öllu. Þegar þarna var komið sögu var hann enda mjög úr heimi hallur og gerði sér litla grein fyrir því hvað á seyði væri.

Sifjaspell?

Tavern­ier mun hafa ráfað í reiði­leysi um París í nokkra daga, mat­ar­laus og illa til reika, en var þá fluttur á geð­veikra­hælið Charenton sem ekki var all­fjarri.

Sjötti fang­inn hér Hubert de Solages. Hann var lág­aðli og líka sagður hafa átt við geð­veiki að stríða. Hann var læstur inni í Bastill­unni að ósk föður síns. Þá var hann sagður hafa gert til­raun til að nauðga systur sinni, Pauline. Og var hann síðan í haldi í Bastill­unni.

Aðrar heim­ildir segja þó aðra sögu. Þær herma að glæpur De Solages hafi verið sá að reyna að hjálpa systur sinni að losna frá ofbeld­is­fullum og rudda­legum eig­in­manni. Einnig hafi spilað inn í að með því að láta læsa De Solages inni gat mág­ur­inn kom­ist yfir hlut hans í föð­ur­arf­inum.

Ekki er gott að sega hvor sagan er sönn en sagan um árás De Solages á systur sína er þó býsna rót­gróin.

Spilað á fiðlu í Bastillunni

Hver sem rótin var að fanga­vist De Solages fór þó víst ekki milli mála að ein­hverjar blað­síður vant­aði í hann, en hann virð­ist hafa verið bæði mein­laus og vin­gjarn­legur og undi sér víst aðal­lega við að spila á fiðlu í Bastill­unni.

„Fyrsta stund frels­is­ins.“Skrúð­göngur með hina frelsuðu fanga úr Bastill­unni stóðu ekki eins lengi og efni virt­ust standa til.

Sjöundi og síð­asti fang­inn var fæddur á Írlandi og hét James Francis Xavier Whyte en í Frakk­landi var hann kall­aður Whyte de Malville. Hann var fæddur 1730 og var því tæp­lega sex­tugur.

Hann hélt ungur frá Írlandi og gekk í franska her­inn og mun hafa staðið sig vel en 1781 fékk hann ein­hvers konar áfall og var síðan læstur inn á geð­veikra­hæli. Sögur gengu um kyn­ferð­is­glæpi en hvers eðlis fylgir ekki sög­unni.

Ein­hverjar grun­semdir voru líka á flökti um að Whyte hafi verið njósn­ari fyrir erlent ríki en það var áreið­an­lega þvætt­ingur.

Hann end­aði alt­ént í Bastill­unni og þegar hann var leystur þaðan kom í ljós að hann var, ekki síður en Tavern­ier, orð­inn afar lúinn í lund.

Er ég Júlíus Caesar — eða guð?

Whyte var afar lág­vax­inn, kom­inn með sítt skegg og allur hinn furðu­leg­asti í útliti og fasi en sjálfur sann­færður um að hann væri Julius Caesar, nema stundum fannst honum lík­legra að hann væri guð almátt­ugur.

Hann var leiddur um götur af sigri hrós­andi bylt­ing­ar­mönnum, til marks um að nú ætti að frelsa alla and­stæð­inga hinnar höt­uðu kon­ungs­stjórnar, en það leið þó ekki á löngu þar til menn upp­götv­uðu að það var lít­ill akkur í að aug­lýsa svo skrýt­inn kall sem hold­gerv­ing hinnar nýhöfnu bylt­ingar.

Hann var þá fluttur til Charenton þar sem hann hitti Tavern­ier aftur og sömu­leiðis annan fanga sem hafði til skamms tíma verið lok­aður inni í Bastill­unni með þeim.

Frægasti fanginn

Það var eng­inn annar en De Sade mark­greifi sem sad­ism­inn er kenndur við. Hann hafði verið læstur inni í Bastill­unni sem geð­sjúk­lingur en var það áreið­an­lega ekki.

De Sade mark­greifihafði verið fluttur burt rétt fyrir árás­ina.

Hann var hins vegar tal­inn hættu­legur vegna kenn­inga sinn um að sárs­auki væri æski­legur í sam­skiptum fólks.

De Sade hafði verið fluttur úr Bastill­unni og til Charenton aðeins tíu dögum fyrir árás­ina á fang­els­is­virkið gamla. Ástæðan var sú að hann hafði hrópað til veg­far­enda út um glugga að fang­els­is­yf­ir­völdin væru að strá­drepa fang­ana. Ástandið í París var þá þegar orðið svo við­kvæmt að slík hróp og köll voru talin gera hleypt öllu í bál og brand.

Hvað varð um fangana?

Þetta var sem sé hin örlaga­ríka árás á Bastill­una sem Frakkar telja svo mik­ils­verða að þeir hafa gert Bastillu­dag­inn að þjóð­há­tíð­ar­degi sínum.

Ekki er vitað hvað varð um fals­ar­ana fjóra en bæði Tavern­ier og Whyte dó nokkrum árum síðar í Charenton án þess að nokkur hefði lagt sig fram um að leysa þá úr haldi.

Hubert de Solages var líka lagður inn á „heilsu­hæli“ fljót­lega eftir að hann slapp úr prís­und­inni í Bastill­unni en var sleppt þaðan fyrr en síðar og bjó síðan tíð­inda­litlu lífi undir hand­ar­jaðri dætra sinna. Hann lifði allan bylt­ing­ar­tím­ann, ár Napól­e­ons og hinna enda­lausu styrj­alda hans, og dó ekki fyrr en 1825. 

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    FRÓÐLEGT. Nokkrar málvillur hefði mátt forðast með yfirlestri fyrir prentun.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár