Ísland kemur einna best út úr COVID-faraldrinum

Yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræðadeild Land­spítalans segir gögn sýna að Ísland kom einna best út úr COVID-faraldrinum. Annars­konar áskoranir hafa þó fylgt faraldrinum, svo sem Long-COVID og vantraust til bólu­setninga.

Bólusetning
Bólu­setn­ing COVID-19 lam­aði heims­byggð­ina í nokkur ár. Bólu­setn­ingar voru lyk­il­at­riði í því að takast á við far­ald­ur­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Helsti styrkur íslensku leiðarinnar var samspil góðrar þekkingar á stöðu faraldursins, öflugrar sérfræði­ráðgjafar og góðs trausts,“ segir Karl G. Kristinsson, prófessor emeritus og yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spítalans. Hann gerir tilraun til þess að greina gengi Íslendinga í COVID-faraldrinum í grein sem hann birti í Morgun­blaðinu í dag þar sem hann ber saman alþjóðleg gögn OECD, niður­stöður í talna­grunni Oxford-háskólans um samgöngu­takmarkanir og tölfræði OWID (Our World in Data) sem snýr að bólu­setningar­þátttöku íslensku þjóðarinnar.

Þessi gögn sýna dánar­tíðni, aðgerðir og bólu­setningar í 15 löndum á árunum 2020 til 2022. Í stuttu máli kom Ísland sterkt út úr saman­burðinum og dánar­tíðnin næst lægst á meðal samanburðar­ríkja. En afleiðingar faraldursins eru slungnar og birtast meðal annars með vaxandi vantrausti gagnvart bólu­setningum og illa rann­sökuðum krónískum veikindum eins og „Long-COVID“.

Dánartíðni næstminnst innan OECD

Í grein sinni skrifar Karl: „Efnahags- og framfara­stofnunin (OECD) hefur tekið saman dánar­tölur og …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár