Noregskonungar 1: Frá Hákoni gamla til Hákons 8.

Nýr kon­ungur sestur í hásætið í Noregi. Af því til­efni verður í fáeinum flækju­sögu­greinum rifjað upp ýmis­legt um sögu Nor­eg­s­kónga

Noregskonungar 1: Frá Hákoni gamla til Hákons 8.
Hákon gamli og Hákon 8. Myndin af Hákoni gamla er gerð eftir inn­sigl­is­mynd af kon­ungi. Hún er lítil og ekki nákvæm en reynt var að fylgja and­lits­dráttum hans sem nákvæm­ast.

Nýr kon­ungur hefur tekið við í Noregi, Hákon 8.

Nauð­syn­legt er fyrir alla Íslend­inga að vita allt um hvernig það gerð­ist. Því verður í þess­ari grein og 2-3 til við­bótar fjallað um norsku kon­ungs­ætt­ina allt frá fornu fari og fram á daga hins nýja kon­ungs

Því var haldið fram í fornum heim­ildum íslensku­mað Haraldur Hálf­dan­ar­son hafi verið sá norskur höfð­ingi sem sam­ein­aði Noreg undir sinni stjórn og tók sér kon­ungs­nafn yfir öllu land­inu, eða alt­ént því sunn­an­verðu. Og svo fylgdi sög­unni að sá inn­an­lands­ófriður sem geis­aði í land­inu meðan Haraldur var að berj­ast til tignar hafi átt einna rík­astan þátt í að Ísland byggð­ist, því hingað hafi flúið margt það fólk sem ekki vildi sitja undir kóngi í Noregi.

Nú telja fræði­menn reyndar að þetta sé hvorttveggja ærið vafa­samt. Í fyrsta lagi hafi Haraldur þessi – kall­aður „hárfagri“ – áreið­an­lega aldrei verið kóngur yfir öllum eða mest­öllum Noregi og það sé ekki einu sinni alls­endis víst að hann hafi verið til.

Stefnu örvita hátekjuskattaflóttamenn skipum í haf?

Í öðru lagi sé mjög vafa­samt líka að land­nám Íslands hafi verið í beinum tengslum við land­flótta í Noregi, hvort heldur við teljum að þar hafi verið á ferð „skatt­flótta­menn“ eða „frjáls­ræðis hetj­urnar góðu“ sem gátu bara ekki hugsað sér að hafa yfir sér kóng.

En hversu raun­veru­legur sem Haraldur hárfagri var – eða ekki – þá er ljóst að er kom fram á 10. öld var kon­ung­dæmi vissu­lega komið á í Noregi og nokkrir skör­ungar sátu þar að ríkjum og jafn­vel vík­inga­höfð­ingjar.

Þar má helsta nefna Ólaf Tryggva­son (sem ríkti 995-1000), Ólaf Har­alds­son (1014-1028) og bróður hans Harald harð­ráða (1046-1066).

Dana­kóngar eins og feðgarnir Sveinn tjúgu­skegg og Knútur ríki seild­ust líka til áhrifa í Noregi og sátu þar stundum í hásæti (sá síð­ar­nefndi 1028-1035).

Svo lauk vík­inga­öld­inni en alla 12. öld ríktu við­sjár í land­inu og keppt var og barist um kon­ungs­tign­ina.

Færeyskur prestur verður Noregskóngur

Árið 1184 náði Sverrir nokkur Sig­urðs­son völdum í land­inu. Hann var lág­vax­inn prestur frá Færeyjum og leið­togi hinna svo­nefndu Birki­beina en það voru upp­reisn­ar­menn úr alþýðu­stétt gegn valda­stéttum lands­ins.

Þegar Sverrir lést árið 1202 tók Hákon 3. sonur hans við kon­ungs­tign­inni og freist­aði þess að koma á friði eftir langa borg­ara­styrj­öld við svo­nefnda „bagla“ en lést eftir aðeins tvö ár, rétt um tví­tugt. Þá bloss­aði upp ófriður að nýja en 1217 kom nýr kon­ungur til valda, Hákon 4.

Hið fyrsta birki­beina­hlaup

Hann var þá 13 ára og sagður vera óskil­get­inn sonur Hákonar 3. 

Hér verður að segja nokkra for­sögu að því að Hákon 4. komst til valda.

Móðir hans hét Inga frá Varteigi og var hún frilla hjá­kona Hákonar 3. Hákon 3. hafði dáið skyndi­lega eins og fyrr sagði. Hann hafði verið veikur og var þá tekið blóð eins og þá var eitt fárra lækn­is­ráða sem til voru. Upp úr því dó hinn ungi kon­ungur og grun­semdir vökn­uðu um að eitrað hefði verið fyrir honum.

Grunnt hafði verið á því góða með Hákoni 3. og stjúp­móður hans, hinni sænsku Margréti Eiríks­dóttur. Hún var nú sökuð um að hafa eitrað fyrir kóngi en fékk að verja sig með því að einn af mönnum hennar skyldi bera gló­andi járn.

Að bera járn

Samkvæmt rétt­ar­fari þess tíma var það talin sönnun þess að Margrét væri sak­laus ef mað­ur­inn gæti sér að skað­lausu borið járnið sjóð­heita. En hann brennd­ist auð­vitað illa og var honum þá drekkt af mönnum Hákonar en Margrét flúði.

Eftir lát Hákonar 3. gerðu birki­beinar Inga nokkurn Bárð­ar­son að kon­ungi. Hann var syst­ur­sonur Sverris kon­ungs. Borg­ara­styrj­öld birki­beina og bagla geis­aði næstu árin. Hákon sonur Ingu frá Varteigi fædd­ist á svæði undir stjórn bagla og var til­veru hans því haldið leyndri fyrstu árin. Veturinn 1205-1206 var dreng­ur­inn sendur til Inga kon­ungs í Niðarósi (Þránd­heimi). Er af því mikil hetju­saga því tveir knáir skíða­menn lögðu sig í hættu við að flytja kon­ungs­son­inn gegnum ómild vetr­ar­veður langa vegu. Enn í dag er haldin mikil göngu­skíða­keppni á leið­inni sem skíða­menn­irnir fóru og heitir birki­beina­hlaupið, 54 kíló­metrar frá smá­bænum Rena til Lil­lehammer.*

Eftir að Ingi dó þótti svo liggja beint við að hinn ungi Hákon tæki við.

Traustur í sessi

Hvort hann var í raun og veru sonur Hákons er auð­vitað engin leið að segja til um en stuðn­ings­mönnum pilts og móður hans tókst alt­ént að fá hann við­ur­kenndan á kon­ungs­stóli. Og þótt hann þyrfti að kljást við upp­reisn Skúla jarls, sem svo var kall­aður, um mið­bik kon­ungs­tíðar sinnar, þá náði Hákon 4. standa þá atlögu af sér og treysta sig ræki­lega í sessi.

Hákon er í íslenskri sögu ævin­lega nefndur Hákon gamli en ástæðan fyrir við­ur­nefn­inu var ekki sú að hann yrði háaldr­aður heldur ein­fald­lega að sonur hans og krón­prins hét líka Hákon og því var farið að kalla þá nafn­ana og feðgana „gamli“ og „ungi“. 

Og eins og allir vita var Hákon gamli sem fór að spila á íslenska höfð­ingja Sturl­unga­ald­ar­innar til þess að koma Íslandi undir sinn ægis­hjálm.

Ísland verður hluti Noregs

Hvort það var endi­lega ásælni kon­ungs sem varð upp­hafið á þeirri þróun sem end­aði með því að Ísland varð hluti norska rík­is­ins eða hvort það voru íslensku höfð­in­gj­arnir sem sóttu svo fast í stuðn­ing kon­ungs hver gegn öðrum, það er ekki gott um að segja þrátt fyrir Sturl­ungu og fjölda ann­arra heim­ild­ar­rita.

En nið­ur­staðan varð alla­vega sú að Ísland lenti undir Nor­eg­s­kóngi.

Segjum að það hafi gerst 1262 þó málið sé ekki jafn ein­falt og það hljóm­aði í Íslands­sögu­bók­unum í gamla daga.

Hákon telst því vera fyrsti kon­ungur Íslands.

Næst segir af næstu Hákonum.

*) Hér er stuðst við bók­ina Þjóð­höfð­ingjar Íslands eftir Veru Ill­uga­dóttur.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu