Myrkur í ágúst 16 — Sólmyrkvar Inúíta og Hindúa

Í flest­öllum trú­ar­brögðum og goð­sagna­kerfum má finna sögur til að skýra sól­myrkva

Myrkur í ágúst 16 — Sólmyrkvar Inúíta og Hindúa
Systkini í elt­inga­leik og sleg­ist um bjarn­ar­kjöt.

Í grein­inni í gær var sagt frá hug­myndum nor­rænna manna til forna um sól­myrkva.

Hér er sú grein.

Inúítar á Græn­landi eiga, rétt eins og nor­rænir menn, sögur sem útskýra bæði sköpun sól­ar­innar og tungls og svo sól- og tungl­myrkva. Nokkrar gerðir sagn­anna eru til en þær snú­ast allar um systk­ini sem urðu ósátt endur fyrir löngu. Bróð­ir­inn er yfir­leitt kall­aður Aningaat eða Anningan. Systir hans kall­ast stundum Malina en stundum Seqineq sem þýðir ein­fald­lega sól.

Hver fær bjarnarkjötið?

Í einni gerð sög­unnar snýst rifr­ildi systk­in­anna um kjöt af hvíta­birni sem Aningaat hafði veitt en systir hans hafði stungið undan með hjálp ömmu sinnar. Bjarn­ar­kjöt þótti lost­æti en þær gáfu honum hunda­kjöt í stað­inn. Þegar Aningaat upp­götv­aði svikin reidd­ist hann og hljóp á eftir systur sinni til að refsa henni. Hún flúði á end­anum alla leið upp á him­in­inn þar sem hún breytt­ist í sól­ina en hann fylgdi á eftir í líki tungls­ins.

Systkini í eltingaleik um himinhvolfið

Stundum verður hann svo svangur á flótt­anum að hann er við það að sál­ast úr hungri. Þá má sjá á himn­inum hvernig hann verður sífellt grennri og grennri. Loks verður hann að doka við og finna sér eitt­hvað að borða og þá fer hann að fitna aftur.

Þannig útskýrðu græn­lensku Inúít­arnr kvart­ila­skipti tungsl­ins.

Einstaka sinnum tekst Aningaat að hlaupa systur sína uppi.

Þegar hann hefur hendur í hári hennar skyggir hann á hana á himn­inum og þá verður sól­myrkvi.

En þeir standa aldrei lengi og það er til marks um að Seqineq sleppur alltaf frá bróður sínum aftur og tekur enn á rás.

Púkar skapa mjólkursjó

Hindúar á Indlandi áttu sér merki­lega sögu um hvað ylli bæði sól- og tungl­myrkvum.

Í hinum forna goð­sagna­heimi þeirra bjuggu meðal ann­ars svo­nefndir „asuras“ sem voru eins konar púkar. Þeir tóku þátt í að skapa svo­nefnt Kshira Sagara eða „mjólk­ur­sjó“ en sá var þeirrar nátt­úru að hver sem drakk af „mjólk­inni“ varð ódauð­legur. Þegar Kshira Sagara var orðið til vildu guð­irnir samt ekki að „púk­arnir“ fengju að drekka af því svo þeir yrðu ekki ódauð­legir.

Einn af púk­unum, Svarbhan að nafni, náði samt að svolgra í sig ódá­ins­drykk­inn og verða þar með ódauð­legur eins og guð­irnir.

Hefnigjarn púki

Sólin og tunglið, goð­mögn sem Hindúar köll­uðu Surya og Chandra, tóku eftir þessu og klög­uðu í guð­ina. Meg­in­guð­inn Vishnu reidd­ist mjög og í líki („avatar“) kveng­uðs­ins Mohini hjó hann höf­uðið af Svarbhan.

Púkinn dó ekki þar eð hann hafði náð að drekka af Kshira Sagara en var upp frá þessu í tveim hlutum. Höfuðið kall­að­ist Rahu og skrokk­ur­inn Ketu. Guðirnir komu bæði Rahu og Ketu fyrir á him­in­hvolf­inu, sam­kvæmt lög­mál­inu um að ein­hvers staðar verða vondir að vera, og þar er Rahu sífellt að reyna að hefna sín á Surya og Chandra fyrir að hafa sagt til sín.

Ósýnilega reikistjarnan

Stöku sinnum nær Rahu (sem kall­aður er „ósýni­lega reiki­stjarnan“) að elta uppi sól­ina eða tunglið og gleypir þau í hefnd­ar­skyni. Það er þá sem skugga virð­ist draga fyrir sól­ina – eða tunglið.

En þar sem Rahu er bara haus­inn einn, þá birt­ast Surya og Chanda von bráðar heil á húfi aftur og halda áfram að skína eins og ekk­ert væri.

Rifrildi um kjöt af hvíta­birni verður örlaga­ríkt
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár