Konum sem stýra félögum í Kauphöll Íslands fjölgaði í vikunni og eru þær nú sex af 27 forstjórum félaga á Aðalmarkaði. Það jafngildir 22,2 prósentum æðstu stjórnenda, en karlar eru í forsvari fyrir hin 21 félögin, eða 77,8 prósent.
Nýjasta breytingin varð þegar stjórn fjármálasamstæðunnar Skaga tilkynnti að Haraldur I. Þórðarson hefði látið af störfum sem forstjóri félagsins. Guðný Helga Herbertsdóttir, sem hefur gegnt starfi forstjóra VÍS trygginga, tekur við sem æðsti stjórnandi samstæðunnar samhliða umfangsmiklum breytingum á skipulagi hennar.
Með breytingunni fjölgar konum í hópi æðstu stjórnenda kauphallarfyrirtækja úr fimm í sex, eða úr 18,5 prósentum í 22,2 prósent. Guðný Helga er nú titluð forstjóri móðurfélagsins Skaga og forstjóri VÍS.
Breytingarnar hjá Skaga eru liður í hagræðingaraðgerðum sem ætlað er að einfalda skipulag samstæðunnar og lækka árlegan kostnað hennar. Samkvæmt tilkynningu félagsins er stefnt að því að færa starfsemi samstæðunnar undir VÍS tryggingar og einfalda eignarhald …

























Athugasemdir