Myrkur í ágúst 15 — Sólmyrkvar í norrænni goðafræði

Úlfar tveir fer­legir elta Sól og Mána í Eddu­kvæðum og Snorra-Eddu

Myrkur í ágúst 15 — Sólmyrkvar í norrænni goðafræði
Þegar úlf­arnir gleypa Sól og Mána ... þá er illt í efni.

Í gær sagði frá Anaxa­górasi í þess­ari greina­röð.

Hér er sú grein.

Þótt menn eins og Anaxa­góras væru þegar 400 árum fyrir upp­haf tíma­tal okkar búnir að átta sig á því hvað sól­myrkvar væru í raun, þá spurð­ust þau tíð­indi ekki út um ver­öld­ina fyrr en löngu síðar.

Og í goð­sögnum hinna ýmsu trú­ar­bragða spann fólk upp alls­konar sögur til að skýra hin ugg­væn­legu fyr­ir­brigði á himnum.

Ógnarstórir úlfar

Í nor­rænni goða­fræði mega him­in­tunglin Sól og Máni sæta því á ferðum sínum yfir him­in­hvolfið að tveir ógn­ar­stórir úlfar reyna sífellt að elta þau uppi og gleypa þau í sig. Þessi eilífi elt­inga­leikur stýrir hringrás dags og nætur og boðar að lokum enda­lok heims­ins.

Samkvæmt frum­heim­ildum á borð við Eddu (sér­stak­lega kvæð­unum Völuspá og Grímn­is­máli) og svo Gylfag­inn­ingu í Snorra-Eddu þá eru þessir úlfar afkvæmi tröll­konu sem býr fyrir austan Miðgarð, bústað ásanna eða hinnu nor­rænu guða, og er þar skógur sem nefn­ist Járn­viður.

Mánagarmur

Þar búa margar tröllskessur og undan einni þeirra eru komnir margir jötnar og skrímsli alls­konar. Þar á meðal eru úlf­arnir tveir sem nefn­ast Skoll og Hati.

Skoll elt­ist við Sól en Hati, sem sagður er sonur Fenris­úlfs, þreytir stökk á eftir Mána. Sumir telja að Skoll sé sjálfur hinn illi Fenris­úlfur.

Í Gylfag­inn­ingu kemur fram að annað nafn Hata sé Mána­garmur og hann er sagður nær­ast á lífs­krafti deyj­andi manna.

Því er spáð að Skoll og Hati (eða Mána­garmur) muni að lokum ná að hvoma í sig Sól og Mána og steyp­ist þá myrkur yfir heim­inn allan og upp­hefst Ragnarökkur.

Búsáhaldabyltingin?

Samkvæmt þessu verða sól­myrkvar og tungl­myrkvar þegar Skoll og Hati ná stund­ar­korn að gleypa Sól og Mána en verða svo að sleppa þeim aftur svo heim­ur­inn ferst ekki í það sinn.

Til eru í nýlegum ritum frá­sagnir um að þegar myrkvar skella á geti fólk hjálpað Sól og Mána með því að fram­kalla sem mestan hávaða, til dæmis með því að slá sem ákaf­ast utan potta og pönnur.

Þá hrökkvi úlf­arnir í kút og sleppi fórn­ar­lömbum sínum.

Þetta mun þó hvergi að finna í nor­rænum heim­ildum heldur ku bús­á­halda­bylt­ingar af þessu tagi hafa tíðkast við sól- og tungl­myrkva austur í Kína.

Úlfurinn er sagður nær­ast á lífs­krafti deyj­andi manna
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár