Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
Rýna Hildur sagði að þó ekki stæði til að loka bóka­söfnum vildi meiri­hlut­inn „auð­vitað að rýna rekstur bóka­safna eins og allra ann­arra starfs­stöðva borg­ar­innar“. Mynd: Golli

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir að til­laga meiri­hlut­ans í Reykja­vík um hag­ræð­ingu í rekstri bóka­safna hafi verið óheppi­lega orðuð og að rétt hafi verið að breyta orða­lagi hennar. Hún segir ekki standa til að loka bóka­söfnum en að meiri­hlut­inn vilji áfram skoða hvernig megi hag­ræða í rekstri þeirra.

Þetta kom fram í Kast­ljósi RÚV þar sem Hildur og Pétur Mart­eins­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­ar­stjórn, ræddu hag­ræð­ing­ar­að­gerðir meiri­hlut­ans.

Í þætt­inum var Hildur spurð hvort meiri­hlut­inn hefði þurft að bakka með áform sín eftir hörð mót­mæli við til­lögu um hag­ræð­ingu í bóka­safns­kerfi borg­ar­innar sem lögð var fram fyrir helgi. „Ég er mjög þakk­lát fyrir þessa spurn­ingu því það er gott að fá tæki­færi til að leið­rétta þetta,“ sagði Hildur.

„Hún var óheppi­lega orðuð og það var rétt að leið­rétta orða­lag hennar, ekki síst vegna þess að hún olli svo miklum mis­skiln­ingi. Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum.“

…

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár