Fylking Benjamins Netanyahu forsætisráðherra var með aðeins fleiri atkvæði en stjórnarandstöðufylking keppinautar hans þegar helmingur atkvæða hafði verið talinn í þingkosningunum í Ísrael í dag. Hún var þó enn ekki með meirihluta á bak við sig.
Kjörsókn var sú mesta í áratugi. Kjósendur lögðu mat sitt á Netanyahu, sem hefur setið lengst allra forsætisráðherra Ísraels í embætti, beint landinu skarpt til hægri og hrundið af stað röð árása og innrása til að bregðast við árás Hamas 7. október 2023.
Að kosningum loknum hétu bæði Netanyahu og keppinautur hans, Gadi Eisenkot, því að mynda ríkisstjórn þótt hvorugum væri spáð meirihluta.
Þegar 51,8 prósent atkvæða höfðu verið talin var fylking Netanyahu með 55 af 120 þingsætum. Stjórnarandstöðufylking Eisenkots var með 49 sæti og flokkar araba með 16. Þessar bráðabirgðatölur gætu breyst eftir því sem fleiri atkvæði verða talin.
Útgönguspár höfðu bent til þess að stjórnarandstöðufylking Eisenkots, fyrrverandi …

















































Athugasemdir