Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni

Fyrr­ver­andi hers­höfð­ing­inn Gadi Eisenkot sæk­ist eftir stuðn­ingi kjós­enda sem vilja breyt­ingar eftir valda­tíma Benjamin Net­anja­hús.

Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni
Áskor­andi Net­anja­hús Gadi Eisenkot og Benjamin Net­anjahú hafa verið hnífjafnir í skoð­ana­könn­unum fyrir þing­kosn­ing­arnar. Mynd: Yahav Trudler / Wikimedia Commons

Gadi Eisenkot, sem gæti komið Benjamin Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, frá völdum, klæð­ist nær alltaf svörtu, talar ensku með erf­ið­is­munum og svarar gjarnan spurn­ingum í við­tölum með upp­taln­ingum. Þar gætir áhrifa hern­að­ar­menn­ing­ar­innar sem mót­aði hann.

Sumum kjós­endum í þing­kosn­ing­unum í dag kann að þykja skortur hins 66 ára Eisen­kots á per­sónu­töfrum einn helsti kostur hans.

Eisenkot er alvar­legur og lát­laus og að mörgu leyti and­stæða Net­anja­hús, sem hefur setið lengst allra sem for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Net­anjahú talar lýta­lausa ensku með banda­rískum hreim og er ávallt reiðu­bú­inn með eft­ir­minni­legar yfir­lýs­ingar í banda­rísku sjón­varpi eða á sam­fé­lags­miðlum.

Eisenkot, sem var yfir­maður ísra­elska hers­ins frá 2015 til 2019, hefur heitið því að sam­eina Ísraela eftir umdeildan valda­tíma Net­anja­hús, sem hefur fært landið langt til hægri.

„Stór hópur fólks í Ísrael vill fyrst og fremst að ró fær­ist yfir í kosn­ing­unum sem fram undan eru,“ sagði Tal Elovits, rann­sak­andi hjá hug­veit­unni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár