Um þetta er kosið í Ísrael

Kosn­inga­bar­áttan snýst meðal ann­ars um hvort rann­saka eigi ábyrgð á því að árás Hamas 7. októ­ber 2023 tókst, und­an­þágur frá her­skyldu og hvernig Ísrael eigi að bregð­ast við efna­hags­legum og örygg­is­legum áskor­unum.

Um þetta er kosið í Ísrael
Kosn­ingar í Ísrael Benjamín Net­anjahú á blaða­manna­fundi í Palm Beach 29. des­em­ber 2025. Rík­is­stjórn hans hefur hafnað kröfum um óháða opin­bera rann­sókn á mis­tök­unum fyrir árás Hamas 7. októ­ber 2023. Mynd: JOE RAEDLE / GETTY IMAGES NORTH AMERICA

Þegar Ísraelar ganga að kjör­borð­inu í dag taka þeir afstöðu til her­skyldu, efna­hags­mála og þess hvernig ríkið eigi að rann­saka hvers vegna því tókst ekki að koma í veg fyrir árás Hamas 7. októ­ber 2023.

AFP fjallar um helstu málin sem hafa mótað kosn­inga­bar­átt­una.

Ábyrgð á atburðunum 7. október

Margir Ísraelar hafa kraf­ist þess að óháð opin­ber rann­sókn­ar­nefnd rann­saki mis­tökin sem gerðu Hamas kleift að gera árás­ina 7. októ­ber 2023, þegar meira en 1.200 manns létu lífið.

Þetta var mann­skæð­asti dagur í sögu Ísraels og þjóð­ar­á­fall sem áhrifa gætir enn.

Ísrael hefur skipað rann­sókn­ar­nefndir eftir fyrri þjóð­ar­á­föll. Gadi Eisenkot, fyrr­ver­andi her­for­ingi og helsti keppi­nautur Benja­míns Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra í kosn­ing­unum í dag, hefur heitið því að gera það aftur og segir það „leið til að koma í veg fyrir næstu hörm­ungar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár