„Stúdentar gjalda fyrir málþóf um veiðigjöld“

Frumvarp sem breyta átti náms­lána­kerf­inu verður ekki að lögum á þessu þingi. Forseti Lands­sam­taka íslenskra stúd­enta segir stúd­enta bíða í óvissu.

„Stúdentar gjalda fyrir málþóf um veiðigjöld“
Lísa Margrét Gunn­ars­dóttir Forseti Lands­sam­taka íslenskra stúd­enta harmar að frum­varpið hafi ekki orðið að lögum.

Frumvarp Loga Ein­ars­sonar, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, um breyt­ingu á lögum um Mennta­sjóð náms­manna varð ekki að lögum fyrir þing­lok.

Með frum­varp­inu voru lagðar til breyt­ingar á lög­unum frá 2020 í þá átt að stúd­entar fengju 20% náms­styrk við lok hverrar annar og 10% styrk við náms­lok í stað þess fyr­ir­komu­lags sem nú er að sækja megi um 30% nið­ur­fell­ingu láns við náms­lok ef nám er klárað á til­skildum tíma.

Þá átti frum­varpið að lengja tím­ann frá námslokum þar til greiðslur hefj­ast úr einu ári í 18 mán­uði. Loks átti að bregð­ast við þungri greiðslu­byrði þeirra náms­manna sem hafa þurft að greiða af fleiri en einni lána­teg­und á sama tíma.

Frum­varpið var í 2. umræðu á Alþingi 26. júní síð­ast­lið­inn. Umræð­unni var frestað á þeim þing­fundi og við tóku umræður um veiði­gjöld. Málið komst ekki aftur á dag­skrá Alþingis og þarf því að leggja það fram að nýju ef það á að verða að lögum.

„Við höldum áfram að bíða“

Lísa Margrét Gunn­ars­dóttir, for­seti Lands­sam­taka íslenskra stúd­enta, harmar að afgreiðslu frum­varps­ins hafi verið frestað. „Málþófið á Alþingi veldur því að þessar bráð­nauð­syn­legu breyt­ingar á náms­lána­kerf­inu sitja á hak­anum,“ segir hún. „Þannig að það eru stúd­entar sem gjalda fyrir mál­þóf um veiði­gjöld og sitja áfram uppi með íþyngj­andi lán og óvissu um hvenær eitt­hvað verði gert í því að lána­kerfið er eins og það er. Við höldum áfram að bíða.“

Hún segir að ef frum­varpið hefði verið sam­þykkt hefðu verið tekin hæg og örugg skref í átt að betra kerfi. „Mér finnst ótrú­lega mik­il­vægt að þetta drag­ist ekki lengur því við viljum heild­ar­end­ur­skoðun á lög­unum sem átti að fara fram árið 2023,“ segir Lísa. „Auðvitað vonar maður að frum­varpið verði í algjörum for­gangi í haust en við héldum að það væri í for­gangi núna. Þetta mál­þóf er búið að taka allan tíma þings­ins.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    "Kvótanepóbeibýin" þurfa ekki að hafa áhyggjur af námslánum svo það frumvarp má frjósa úti í sumar "what ever." Ekkert málþóf vegna þess.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár