Missti son sinn í eldsvoða á Stuðlum

Jón K. Jacobsen, faðir 17 ára drengs sem lést í elds­voða á Stuðlum síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, seg­ist hafa barist árum saman við kerfið til að halda syni sínum á lífi. „Núna berst ég við kerfið til að halda minn­ingu hans á lofti.“

Missti son sinn í eldsvoða á Stuðlum
„Ég er pabbi hans og vissi ekki að hann væri á Stuðlum“ Enginn lét Jón K. Jacobsen vita að dreng­ur­inn hans væri á Stuðlum. Jón spyr hvernig það geti gerst að barn deyi á þennan hátt þegar það sé í vistun hjá rík­inu. Mynd: Golli

Geir Örn Jacobsen var fæddur 8. nóv­em­ber 2006 og hefði því orðið 18 ára eftir nokkra daga. Hann lést í elds­voða á Stuðlum, með­ferð­ar­heim­ili rík­is­ins, þann 19. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Jón K. Jacobsen, pabbi Geirs, eða Geira eins og pabbi hans kall­aði hann alltaf, segir að sonur hans hafi verið búinn að vera á Stuðlum í innan við klukku­stund þegar eld­ur­inn braust út og kallað var á slökkvi­lið. Jón vissi ekki að dreng­ur­inn hans væri á Stuðlum. Enginn hafði látið hann vita. Hann fær sím­tal frá barna­vernd snemma morg­uns og er tjáð að alvar­legt atvik hafi orðið á Stuðlum. „Ég spyr; af hverju ertu að hringja í mig? Geiri er ekki þar. Ég er pabbi hans og vissi ekki að hann væri á Stuðlum.“

Nokkrum mín­útum síðar kemur lög­reglan og keyrir Jón á Land­spít­al­ann. Þegar þangað er komið seg­ist hann fyrst hafa fengið upp­lýs­ingar um að það sé sonur …

Kjósa
125
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Átakanleg sorgarsaga.
    3
  • Friðborg Jónsdóttir skrifaði
    Innilegar samúðarkveðjur❤️
    0
  • Sigurdur Gunnarsson skrifaði
    ♥️
    -1
  • ÁS
    Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Samúðarkveðjur til allra í fjölskyldunni og einnig meðferðarheimilinu Stuðlum og tengdum aðilum. Mig er spurn af hverju dregst alltaf að bæta aðstæður barna með sérþarfir, við vitum að ef börn fá viðunandi atlæti og aðstoð til að verða besta manneskjan af sjálfum sér þá verður þjóðfélagið betra. Allt of margir ráðamenn sem fá vinnu við að koma á laggirnar úrræðum sem svo verða aldrei að veruleika. Peningurinn fer í hýtið í staðinn fyrir að byggja upp betri aðstæður.
    2
  • EsterJulia Olgeirs skrifaði
    ❤️
    0
  • Elín Sigurðardóttir skrifaði
    Sorglegt 😢💔
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár