Endurkoma hinnar hefðbundu húsmóður

Þær eru sagðar birt­ing­ar­mynd hinnar full­komnu konu og millj­ónir fylgja þeim á sam­fé­lags­miðlum, þar sem þær koma fram í kjólum á meðan þær elda mat frá grunni, sinna börnum og heim­il­is­haldi. Undir niðri liggja þó önnur og skað­legri skila­boð.

Endurkoma hinnar hefðbundu húsmóður

Margir geta eflaust tengt við það hversu auð­velt getur verið að sog­ast inn í heim áhrifa­valda á sam­fé­lags­miðlum – fólks sem sýnir okkur frá dag­legu lífi sínu, matnum sem það eldar og annað áhuga­vert. Á und­an­förnum árum hefur nokkuð sér­kenni­leg tísku­bylgja tröll­riðið þessum miðlum þar sem ungar og fal­legar konur sýna frá lífs­stíl sem til­heyrir for­tíð­inni. Þær eru gjarnan kall­aðar „tradwives“ sem er stytt­ing á enska hug­tak­inu „traditional housewives“ og mætti þýða sem „hefð­bundnar hús­frúr“ upp á íslensku. Hefð­bundna hús­frúin helgar sig gam­al­dags kyn­hlut­verki þar sem ábyrgð hennar snýr að lang­mestu leyti að góðu heim­il­is­haldi.

Hin fullkomna kona 

Það sem hefð­bundnar hús­mæður eiga sam­eig­in­legt er að líta til for­tíðar og má segja að þær séu birt­ing­ar­mynd hinnar „full­komnu konu“ eins og þær birt­ust í neyslu­sam­fé­lagi um miðja síð­ustu öld. Það er svo sem ekk­ert nýtt af nál­inni að fólk fyllist for­tíð­ar­þrá. En eitt­hvað í nútíma­sam­fé­lagi virð­ist vera þess …

Kjósa
79
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana skrifaði
    Mér finst þetta leiđindar blađur, međ allri virđingu fyrir jafnrètti og upplýstum ákvörđunum.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár