Sýknaður af ákæru um nauðgun – ekki hægt að sanna ásetning

Maður var sýkn­aður fyrir nauðgun í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra fyrr í mán­uð­inum. Taldi dóm­ur­inn að ekki væri hægt að sanna að hinn ákærði hefði haft ásetn­ing til nauðg­unar.

Sýknaður af ákæru um nauðgun – ekki hægt að sanna ásetning

Maður var sýkn­aður af ákæru um nauðgun í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra í dómi sem féll 11. júlí síð­ast­lið­inn. Þrátt fyrir trú­verð­ugan fram­burð brota­þola og mikla áverka þótti ekki hægt að sanna að sá ákærði hefði haft þann ásetn­ing að nauðga henni.

Atvik máls­ins má rekja til sum­ar­bú­stað­ar­ferðar sem brota­þoli fór í ásamt vinum sínum til að fagna afmæli sínu í febr­úar 2024. Þar segir brota­þoli að ákærði hafi nauðgað sér en hann hélt því fram að það sem hefði farið fram á milli þeirra hefði verið með sam­þykki hennar.

Greindi á um samþykki

Brota­þoli kvað kyn­mök hafa átt sér stað án sam­þykkis með ofbeldi og ólög­mætri nauð­ung. Segir hún ákærða hafa afk­lætt sig, haldið fyrir munn hennar og tekið háls­taki og síðan haft við hana sam­ræði og enda­þarms­mök. Brota­þoli seg­ist hafi bitið ákærða í varn­ar­skyni, grátið og sagt honum að hætta. 

Leitaði brota­þoli á neyð­ar­mót­töku um hádegi sama dag. Í skýrslu læknis kemur fram að á lík­ama hennar hafi verið greini­leg merki ofbeldis, mar og húð­blæð­ingar sem pössuðu við frá­sögn hennar af atvikum. 

Ákærði hélt því fram að kyn­mök hafi verið með sam­þykki brota­þola og neit­aði að hafa beitt hana ofbeldi. Ákærði og brota­þoli höfðu átt í dað­urs­legu sam­bandi í aðdrag­anda atviks­ins. Í fyrra sinni er ákærði gerði sig lík­legan til að afklæða brota­þola bað hún hann að stoppa og hann varð við því. Kvaðst hann hafa skilið hana svo að hún vildi bíða þess að eng­inn heyrði til þeirra. Ákærði sagði að enda­þarms­mök hefðu mögu­lega átt sér stað óvart en ekki verið harka­leg. Hann gekkst ekki við brot­unum.

Ákærði mætti ætla samþykki

Áverka­vott­orð gáfu til kynna mar og húð­blæð­ingar sem að mati dóm­stóls­ins var ekki hægt að full­yrða um orsakir. Dómurinn taldi fram­burð brota­þola trú­verð­ugan og studdan með gögnum að ein­hverju leyti. Hins vegar taldi dóm­stóll­inn ekki sannað, að hafið væri yfir skyn­sam­legan vafa, að ákærði hafi haft ásetn­ing til nauðg­unar eða að beitt hafi verið ofbeldi eða nauð­ung.

Talið var að ákærði hefði haft rétt­mæta ástæðu til að ætla að sam­þykki lægi fyrir, meðal ann­ars með til­liti til aðstæðna, sam­skipta og við­bragða brota­þola.

Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra sýkn­aði ákærða og bóta­kröfum brota­þola var vísað frá.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hvað er að? Af hverju hatar kerfið konur svona mikið? Af hverju erum við sem samfélag svona grimm og vond við konur? Hverskonar skilaboð erum við að senda á tímum þessarar eitruðu karlmennsku? Ætli dómara þætti gott að vera véfengdur ef brotið væri á honum? Þetta samfélag er siðferðislega gjaldþrota, rotið frá hausnum og langt niður.
    7
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Í öðrum glæpamálum er oft dæmt að ákærði hafi vitað eða mátt vita að þetta væri ekki í lagi. Nauðgarar njóta hinsvegar alltaf vafans.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár