Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist hafa slíðrað sitt póli­tíska sverð þegar hún söng á Fiskideg­inum mikla á Dalvík um helg­ina. Hún skrifar þakk­ar­grein í Moggann í dag og þakkar Samherja fyrir Fiski­dag­inn. Samkvæmt Ingu kom hún ekki fram á Fiskideg­inum sem stjórn­mála­maður heldur sem mann­eskja í sum­ar­fríi.

Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn
Slíðraði póli­tíska sverðið og var mann­eskja Inga Sæland seg­ist hafa slíðrað sitt póli­tíska sverð og verið mann­eskja á Fiskideg­inum mikla þar sem hún söng Tinu Turner lag. Hún segir kvóta­kerfið það versta sem komið hefur fyrir íslenskt sam­fé­lag. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég er bara að þakka þeim fyrir Fiski­dag­inn. Ef það væri ekki fyrir Samherja þá væri eng­inn Fiski­dagur. Ég var ekki að nota þessa grein í póli­tískum til­gangi þó ég sé ekki sam­mála þeim og þeirri stefnu sem þeir reka. Ég er búinn að skamma þá og ég er búinn að ríf­ast gegn kvóta­kerf­inu og hvernig það hefur lagt landið í auðn. Kvóta­kerfið er það versta sem hefur komið fyrir okkur sem sam­fé­lag,“ segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, aðspurð um þátt­töku sína á tón­leik­unum á Fiskideg­inum mikla á Dalvík um helg­ina og þakka­grein sem hún skrifar í Morg­un­blaðið í dag. 

„Ég held að engir pen­inga­menn gefi pen­ing­ana sína af því bara.“
Inga Sæland,
þing­maður og for­maður Flokks fólks­ins

Í grein­inni þakkar Inga Samherja fyrir Fiski­dag­inn. Samherji hefur um ára­bil staðið straum á stórum hluta af kostn­að­inum við Fiski­dag­inn: Greitt fyrir tón­leik­ana á hátíð­inni, flug­elda­sýn­ing­una, barna­skemmt­un­ina og gefið fisk­inn sem í boði er fyrir gesti.

Niðurlag greinar Ingu í Mogganum er svona: „Ég var spurð að því hvort ég hefði gert mér grein fyrir því hverjir það væru sem stæðu undir kostn­aði við Fiski­dag­inn mikla áður en ég ákvað að taka lagið. Ég vil svara þessum ágæta manni og öllum öðrum á einu bretti: Að sjálf­sögðu veit ég það eins og öll þjóðin veit það. Samherji hefur kostað þessa stór­kost­legu hátíð sem nú var haldin í tuttug­asta sinn. Fyrir það á Samherji þakkir skildar.“

Fyrsti Fiskidagurinn frá 2019

Á sínum tíma var sú hug­mynd meðal ann­ars uppi að bjóða sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu á hátíð­ina en hann er meðal þeirra namibísku áhrifa­manna sem sitja í gæslu­varð­haldi þar í landi grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir kvóta.

Fiski­dag­ur­inn mikli hefur ekki verið haldin síð­ustu ár vegna Covid-far­ald­urs­ins og fór nú fram í fyrsta skipti frá árinu 2019. Árið 2019 voru aðstand­endur Fiski­dags­ins ósáttir við að Fiski­dag­ur­inn hafi verið til umfjöll­unar í tengslum við mútu­mál Samherja í Namibíu. 

Heil­síðu­aug­lýs­ing með þökkumÍ Mogganum í dag er líka birt heil­síðu­aug­lýs­ing frá Samherja með þökkum fyrir kom­una á Fiski­dag­inn mikla. Hátt í 7000 gestir komu á Fiski­dag­inn.

Segist hafa komið fram sem manneskjan Inga Sæland

Aðspurð seg­ist Inga hafa verið í sum­ar­fríi sem þing­maður þegar hún söng á hátíð­inni - hún tók Tinu Turner lag - og að hún hafi ákveðið að gleyma póli­tísku arga­þrasi um hríð og vera bara glöð. „Mér er alveg sama þó ég heiti alþing­is­maður en ég er líka mann­eskja. Ég má líka eiga annað líf. [...] Það væri frekar dap­urt ef maður, á full­orðs­ins­aldri, hefði ekki neitt annað fram að færa í líf­inu en að vera í póli­tík. [...] Við eigum okkar sex vikna sum­ar­frí. [...] Ég hreins­aði lík­ama og sál af þessu arga­þrasi þarna í nokkra daga.“

Þegar Inga er spurð að því hvort þing­menn fari ein­hvern tím­ann í fríi frá því að vera þing­menn segir hún. „En þarna var ég bara Inga Turner eða Tina Sæland og mér fannst það bara ótrú­lega skemmti­legt. [...] Enginn er alvondur og það á að þakka fyrir það sem vel er gert.“

Hún seg­ist aðspurð ekk­ert hafa fengið greitt fyrir lagið sem hún söng. „Þetta var bara fyrir ánægj­una [...] Ég er þakk­lát fyrir að hafa fengið þetta tæki­færi að upp­lifa þetta ævin­týri. Ég mun aldrei gleyma þessu.“ 

Þegar Inga er spurð að því hvort hún telji ekki að stór­fyr­ir­tæki gefi ekki oft pen­inga, veiti styrki eða greiði fyrir sam­fé­lags­verk­efni í ákveðnum PR-til­gangi segir hún. „Ég held að engir pen­inga­menn gefi pen­ing­ana sína af því bara. Ég held að það sé alltaf eitt­hvað á bak við það. Ég held að það sé bara common sense. Hvort svo sem fyr­ir­tækið heiti Samherji, Brim, Norðurál eða eitt­hvað annað. Það er eng­inn sem gefur pen­inga bara til að gefa pen­inga.“

Ísland og veruleikinn í Verbúðinni

Inga segir að það beri hins vegar að þakka Samherja fyrir það góða sem fyr­ir­tækið gerir. Hún segir að án Samherja þá væri Dalvík ekki það sem bær­inn er í dag. „Samherji er sá aðili sem hefur gert það að verkum að Dal­vík­ur­byggð blómstrar í dag. Það væri ósk­andi að kvóta­kerfið hefði ekki orðið til þess að öðrum dásam­legum sveit­ar­fé­lögum allt í kringum landið er að blæða út.“

Inga nefnir sér­stak­lega Ólafs­fjörð sem dæmi um þetta, nágrannabæ Dalvíkur, þar sem lítil útgerð er stunduð í dag. „Ég er að horfa upp á litla bæj­ar­fé­lagið, Ólafs­fjörð, blæða út. Eins og svo mörgum öðrum blóm­legum byggðum sem áður voru að blómstra.“

Hún talar um sjón­varps­þætt­ina Ver­búð­ina sem dæmi um þá þróun á Íslandi sem kvóta­kerfið hefur leitt til og hún hefur gagn­rýnt. „Verbúðin segir allt sem segja þarf. Verbúðin var nátt­úru­lega bara snilld. Við vitum alveg hvernig búið er að merg­sjúga litlu bæj­ar­fé­lögin úti á landi. Núna síð­ast er búið að selja 70 pró­sent af Rammanum á Siglu­firði til Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum. Dettur nokkrum í hug að þeir haldi áfram að gera út frá Siglu­firði? Trölla­skagi er algjör­lega að þorna upp hvað lítur að sjáv­ar­út­vegi. Þessi þróun er skelfi­leg“

Sjón­varps­þætt­irnir sem Inga vísar til hverf­ast meðal ann­ars um það hvernig tog­ari er seldur burt úr sjáv­ar­plássi með til­heyr­andi afleið­ingum fyrir byggð­ina. Sagan sem er sögð í þátt­unum minnir á hvernig tog­ar­inn Guð­björgin var seldur frá Ísafirði í lok síð­ustu aldar eftir að Samherji keypti skipið. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Flokkur Fólksins er til sölu og Inga Sæland var greinilega á útsölu á Fiskideginum mikla. Þessi flokkur mun svíkja lægstu stéttirnar við fyrsta tækifæri sem gefst, og sýna hollustu sína í verki við auðvaldið.
    0
  • GEK
    Guðrún Emilía Karlsdóttir skrifaði
    Já já sko við þurfum að fá karla sem ræna okkur ekki alveg innað nára
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Viðbjoður af versta tagi kvað Þetta Felag hefur komist upp með, og ekki er neitt gert Ja Glæpamenn af Grofasta tagi. Það er mikið að a Islandi þegar svona Firar Vaða uppi. Flokkurin stendur með þeim. Þatturin sem var a RUV fletti ofan af þessum Viðbjodi Var MEISTARA Verk, Folk sem lagði mikla vinnu og Metnað i að Fletta ofan af þessari Mafiu, var Hrakið burt fra RUV. Jimmy Hoffa Var latin Hverfa i USA þar Ættu Forkalfar Samherja a hættu að hljota sömu ÖRLÖG. FARIÐ HEFUR FE BETRA.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þakka það "góða" sem vondi aðilinn gerir ?????

    Gott ódýrt PR og allt i dúllí fína ???

    Þið eruð illa klikkuð og á öngvan hátt treystandi.

    Barngóði handrukkarinn gefur barnaheimilunum rausnarlegar gjafir og styrki einu sinni á ári en hendir fjölskyldum út af heimilinum sínum 362 daga á ári. Nei ég á ekki við Samherja heldur bankana... þó svo samlíkingin eigi þar líka við.

    Þú getur ekki stutt eða þakkað þjófinum þegar hann skilar bara hluta þýfisins.

    Íslensk spilling í hnotskurn... og bankar og útgerðaraðilar og allir vondu karlarnir ykkar eru afleiðingar spillingarinnar.... ekki orsakirnar.

    Þessvegna er ekki hægt að hjálpa íslendingum... því þeir sjálfir eyðileggja alla möguleika á betra og réttlátara þjóðfélagi.

    Meðan kerfið er spillt eru allar leiðir dauðadæmdar... og kerfið okkar er spilltara en það var árið 2000.... og "góða fólkið" þorir ekki að horfa inn í skápana... heldur heldur bullbaráttunni áfram..... hún virkar ekki því henni er ekki beint að orsökunum.

    Og upphæðin um duldar fjárhæðir í aflandsleikjum er röng... ekki 40 til 60 milljarðar... heldur vel yfir 100 milljarðar ... aflandseyjaskilgreiningin er nefnilega röng... hún er nálgunarfræðileg... ekki landafræðileg.

    Orsakir íslenskrar spillingar ?

    Alþingi og framkvæmdarvaldið.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár