2,8 milljarðar og 214 greiðslur undir í mútumáli Samherja

Þær greiðslur sem eru undir í rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara á starfs­háttum Samherja í Namibíu eru bæði fleiri og stærri en talið var í fyrstu. Rannsókn er lokið og er nú beðið nið­ur­stöðu sak­sókn­ara hjá emb­ætt­inu um hvort og þá hverjir verða ákærðir.

2,8 milljarðar og 214 greiðslur undir í mútumáli Samherja

Síðasta greiðslan sem er undir í stærstu spill­ingar og mútu­rann­sókn Íslands­sög­unnar átti sér stað sama dag og hul­unni var svipt af starfs­háttum Samherja í Namibíu í fjöl­miðlum. Þá var jafn­virði 21.416.079 króna færðar af reikn­ingi Saga Seafood (pty) Ltd., félags í sam­stæðu Samherja, til Profile Invest­ments Ltd. Það er eitt fjöl­margra félaga í eigu Namib­íu­manna sem íslensk stjórn­völd telja að hafi tekið við mútu­greiðslum frá Samherja. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar eru 214 milli­færslur undir í rann­sókn íslenskra yfir­valda. Byggja þær á banka- og bók­halds­gögnum. Greiðsl­urnar spanna tíma­bilið frá 26. jan­úar árið 2012 til 12. nóv­em­ber árið 2019, sem er sami dagur og þáttur Kveiks um Sam­herj­a­skjölin var sendur út. 

Heild­ar­fjár­hæð þeirra greiðslna sem til rann­sóknar eru nema 2,8 millj­örðum króna. Það er umtals­vert meira en fjallað var um þegar greint var frá mál­inu fyrir sex árum síðar. Gögn, sem Heim­ildin hefur séð, sýna einnig að stærstur hluti þess­ara greiðslna áttu sér …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár