Borgin furðar sig á gagnrýni á trjáfellingar í Öskjuhlíð

Sam­göngu­stofa telur áætlun borg­ar­innar um trjá­fell­ingar í Öskju­hlíð í þágu flug­ör­yggis ekki stand­ast kröfur. Meiri­hlut­inn í borg­inni og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri furða sig á við­brögð­unum.

Borgin furðar sig á gagnrýni á trjáfellingar í Öskjuhlíð
Trjá­fell­ingar í Öskju­hlíð Sam­göngu­stofa gagn­rýnir áætlun Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Golli

Sam­göngu­stofa telur áætlun Reykja­vík­ur­borgar um að fella tré í Öskju­hlíð í þágu flug­ör­yggis við Reykja­vík­ur­flug­völl ekki upp­fylla skil­yrði sem stofn­unin setti í jan­úar. „Af því leiðir að Sam­göngu­stofa getur ekki fall­ist á þá nið­ur­stöðu borg­ar­innar að með aðgerð­ar­á­ætl­un­inni séu til­mæli stofn­un­ar­innar upp­fyllt og mál­inu lokið,“ segir í bréfi Sam­göngu­stofu sem barst í maí og borg­ar­ráð tók fyrir á fundi sínum á fimmtu­dag.

Meiri­hlut­inn í borg­ar­ráði auk full­trúa Fram­sókn­ar­flokks furða sig á við­brögðum Sam­göngu­stofu við áætl­un­inni.

Sam­göngu­stofa gagn­rýnir í bréfi sínu að aðgerð­ar­á­ætlun borg­ar­innar hafi ekki verið unnin í sam­starfi við Isavia og það hafi verið stað­fest af Isavia. Þá veitti stofan Reykja­vík­ur­borg frest til 9. júní til að upp­lýsa hvort borgin mundi skila upp­færðri aðgerð­ar­á­ætlun í sam­ræmi við skil­yrði. Þá yrði veittur frestur til að skila áætl­un­inni til 30. júní.

„Verði ekki gripið til fram­an­greindra ráð­staf­ana mun Sam­göngu­stofa horfa til þeirra laga­legu úrræða sem stofn­unin hefur sam­kvæmt lögum um loft­ferðir 80/2022 til að grípa til aðgerða,“ segir í bréfi Sam­göngu­stofu.

Borg­ar­ráð tók bréfið fyrir á fundi sínum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. „Sam­starfs­flokk­arnir í borg­ar­ráði furða sig á svari Sam­göngu­stofu,“ segir í bókun meiri­hluta­flokk­anna. „Sam­starfs­flokk­anir vísa því á bug að áætl­unin upp­fylli ekki þau skil­yrði sem sett voru í þágu flug­ör­yggis en beiðnin sneri að aðgerða­á­ætlun um trjá­fell­ingar í Öskju­hlíð. Að okkar mati gerir aðgerða­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar því góð skil hvernig borgin hyggst upp­fylla skipu­lags­reglur Reykja­vík­ur­flug­vallar þar sem gengið var svo langt að leggja til að GPS merkja hvert ein­asta tré og fella þau sem skaga upp í skil­greindan VSS flöt sem geta talist íþyngj­andi og umfangs­miklar aðgerðir. Telji Sam­göngu­stofa að áætl­unin upp­fylli ekki þær kröfur sem lagt var upp með, væri æski­legt að veittar væru leið­bein­ingar þess efnis hvað vanti upp á.“

Þá segja full­trúar meiri­hlut­ans að sam­ráð hafi verið haft við haga­liða og þar á meðal Isavia. „Eins er minnt á að ISAVIA er hag­að­ili máls­ins og getur það talist sér­stakt að eft­ir­lits­að­il­inn og stjórn­valdið Sam­göngu­stofa vísi alfarið á hag­að­ila. Að lokum minna sam­starfs­flokk­anir á mik­il­vægi þess að þeir samn­ingar sem gerðir hafa verið milli ríkis og borgar sem snúa ann­ars vegar að flug­vell­inum og hins vegar að upp­bygg­ingu kennslu- og æfinga­flug­vallar séu upp­fylltir,“ segir í bók­un­inni.

Fyrrum borgarstjóri furðar sig

Einar Þor­steins­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í borg­ar­ráði og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, tekur í sama streng. „Bréf Sam­göngu­stofu vekur furðu því borg­ar­full­trúi Fram­sóknar telur ljóst af ferli máls­ins að aðgerða­á­ætl­unin var unnin í sam­ráði við bæði Isavia og Sam­göngu­stofu í byrjun árs­ins,“ segir í bókun hans. „Afar mik­il­vægt er að fá skýrt fram hvaða kröfur Sam­göngu­stofa setur fram gagn­vart borg­inni og vænt­an­lega Kópavogi vegna aðflugs yfir Kársnes. Framsókn telur brýnt að vinna málið í góðri sátt og með það að mark­miði að tryggja rekstr­ar­ör­yggi flug­vall­ar­ins enda gegnir hann afar mik­il­vægu hlut­verki.“

Einar Þor­steins­sonFyrr­ver­andi borg­ar­stjóri furðar sig á bréfi Sam­göngu­stofu.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins bættu því við að málið ætti að vinna í sem bestu sam­starfi við flug­mála­yf­ir­völd í því skyni að tryggja flug­ör­yggi á og við Reykja­vík­ur­flug­völl. „Uppfæra þarf aðgerða­á­ætlun um trjá­fell­ingar í Öskju­jhlíð í þágu flug­ör­yggis,“ segir í bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks. „Jafn­framt þarf að greiða fyrir afgreiðslu nokk­urra smá­vægi­legra skipu­lags­breyt­inga í því skyni að auka öryggi á Reykja­vík­ur­flug­velli. Breyt­ing­anna er þörf vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­setn­ingar nýrra aðflugs­ljósa við vest­ur­enda flug­vall­ar­ins, færslu elds­neyt­is­geyma og upp­setn­ingu á mynda­vélamastri.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár