Baldvin í Samherja segir pabba sinn ekki bestu útgáfuna af sjálfum sér vegna rannsóknar

Baldvin Þor­steins­son, for­stjóri og einn eig­enda Samherja, segir það haft áhrif á föður sinn að vera til rann­sóknar yfir­valda í sex ár. Faðir hans, Þor­steinn Már Bald­vins­son, er grun­aður í rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara á stór­felldum mútu­greiðslum til namibísks áhrifa­fólks.

Baldvin í Samherja segir pabba sinn ekki bestu útgáfuna af sjálfum sér vegna rannsóknar
For­stjór­inn Baldvin tók við stöðu for­stjóra Samherja af föður sínum fyrr í vetur.

„Þetta hefur verið þungur tími,“ sagði Baldvin Þor­steins­son, for­stjóri og aðal­eig­andi Samherja, í til­finn­inga­þrungnu við­tali í morg­un­þætti Bylgj­unnar, Bítinu. Baldvin komst við í við­tal­inu þar sem hann tal­aði um rann­sókn á stór­felldum mútu­greiðslum frá Sam­herja­tengdum félögum til áhrifa­fólks í Namibíu. 

Faðir hans, Þor­steinn Már Bald­vins­son, er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn íslenskra stjórn­valda á hátta­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, sem og átta aðrir núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins. 

„Ég ætla ekki að kvarta fyrir sjálfan mig en ég segi: pabbi minn, auð­vitað hefur þetta haft áhrif á hann að vera með stöðu grun­aðs manns svona lengi,“ sagði Baldvin sem ítrek­aði að Samherji, sem fyr­ir­tæki, hafi aldrei fengið dóma fyrir stór brot.

Baldvin sagð­ist hafa miklar mætur á föður sínum og að hann hafi séð það, þegar þeir unnu saman, hvaða mann Þor­steinn Már hefur að geyma. Baldvin tók við for­stjóra­starf­inu af föður sínum í haust en áður höfðu for­eldrar hans selt honum og systur hans, Kötlu Þor­steins­dóttur, sinn hlut í útgerð­inni. 

„Maður sér hvernig þessi mál öll, þetta eru þá komin fimmtán ár, maður sér hvernig þetta hefur farið með hann. Það verður að segj­ast, eðli­lega er hann ekki besta útgáfan af sjálfum sér,“ sagði hann og vís­aði til bæði mútu­máls­ins og Seðla­banka­máls­ins svo­kall­aða.

Þá upp­lýsti hann að búið væri að leggja fram rúm­lega hund­rað millj­arða króna kröfu á hendur fyr­ir­tæk­inu í Bret­landi. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var krafan lögð fram í júní síð­ast­liðnum.

Hún bein­ist að Samherja, tengdum félögum útgerð­ar­innar í Bret­landi, og fjórum fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins: Þor­steini Má, Ingvari Júl­í­us­syni, Aðal­steini Helga­syni og Agli Helga Árnasyni. Þeir hafa allir rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara. 

„Við sem fyr­ir­tæki erum svo sem ekki alveg búin að bíta úr nál­inni með þetta,“ sagði Baldvin. „Þetta er nýtt og eitt­hvað sem við þurfum að svara fyrir. Þessi mál sem fylgja þessu, þau eru bara þarna og við höldum áfram að, hvað segir maður, að reka fyr­ir­tækið en auð­vitað fer ein­hver orka og tími í þetta.“

Spurt út í tölvupósta Baldvins

Baldvin hefur sjálfur ekki stöðu sak­born­ings í rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu, þótt nafn hans komi víða við sögu í rann­sókn­ar­gögnum. Í yfir­heyrslum yfir sak­born­ingum og vitnum hefur meðal ann­ars verið spurt út í tölvu­póst­sam­skipti Baldvins. 

„Er búið að gefa út kvót­ann í Namibíu?“ spurði Baldvin til að mynda í tölvu­pósti til fram­kvæmda­stjóra í namibískum dótt­ur­fé­lögum Samherja þann 4. ágúst 2018. Þessi póstur og fleiri, sem spanna margra ára tíma­bil, sýna tals­verða aðkomu Baldvins að skipu­lagn­ingu veiða Samherja í Namibíu. Heim­ildin fjall­aði ítar­lega um aðkomu Baldvins að Namib­íu­rekstr­inum árið 2021. 

Þá virð­ist, sam­kvæmt tölvu­póstum sem eru hluti af rann­sókn­ar­gögnum og Heim­ildin hefur áður fjallað um, sem starfs­menn í Namibíu hafi verið í tíðu sam­bandi við Baldvin. Þannig lýsir Jón Óttar Ólafsson, sem starf­aði fyrir Samherja í Namibíu um hríð, þegar hann ræddi upp­sögn sína hjá fyr­ir­tæk­inu við sam­starfs­konu sína hjá Samherja, Baldvini sem ein­hvers konar yfir­manni.

„Ef Baldvin verður með vesen yfir því þá verði honum að góðu ég mun ekki taka því vel því samn­ing­ur­inn kveður á um 30 daga upp­sagn­ar­frest sem ég hef by the way enn ekki fengið frá honum. Hann er voða hetja að segja upp þremur gömlum konum og svindla á þeim eins og hann getur en er ekki maður til að hringja eitt sím­tal í mig og ræða þessa hluti,“ sagði Jón Óttar í tölvu­pósti sínum.

Fimmtán hundruð smáskilaboð

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins er lokið og bíður það nú ákvörð­unar Hér­aðs­sak­sókn­ara um hvort gefnar verði út ákærur í því eða ekki. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar eru 214 milli­færslur undir í rann­sókn­inni og byggja þær á banka- og bók­halds­gögnum sem hefur verið aflað. Greiðsl­urnar spanna tíma­bilið frá 26. jan­úar árið 2012 til 12. nóv­em­ber árið 2019, sem er sami dagur og þáttur Kveiks um Sam­herj­a­skjölin var sendur út. 

Eins og Heim­ildin fjall­aði um í nóv­em­ber er heild­ar­fjár­hæð þeirra greiðslna sem til rann­sóknar eru nema 2,8 millj­örðum króna. Það er umtals­vert meira en fjallað var um þegar greint var frá mál­inu fyrir sex árum síðar.

Gögn, sem Heim­ildin hefur séð, sýna einnig að stærstur hluti þess­ara greiðslna áttu sér stað eftir að upp­ljóstr­ar­inn í mál­inu, Jóhannes Stef­áns­son, hætti störfum fyrir útgerð­ina.

Þá liggur líka fyrir í gögnum máls­ins að Þor­steinn Már átti í tíðum sam­skiptum við Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Namib­íu­út­gerðar Samherja, sem árið 2019 gerð­ist upp­ljóstr­ari og kom af stað þeirri rann­sókn sem staðið hefur yfir síðan.

Heim­ildin greindi frá því í októ­ber í fyrra að tækni­menn á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara hefðu end­ur­heimt um 1.500 smá­skila­boð á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar, þá for­stjóra Samherja, og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu.

Þor­steinn Már sagð­ist opin­ber­lega ekk­ert hafa haft með Jóhannes að gera en fjöldi skila­boð­anna sýnir mikil sam­skipti á milli þeirra á meðan Jóhannes stýrði útgerð­ar­fé­lagi Samherja í Namibíu.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er að velta fyrir mér hvernig hægt er að lögsækja íslenskt félag í Bretlandi fyrir meint lögbrot í Namibíu?
    0
    • ÓS
      Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
      Er ekki Þorsteinn Íslenskur. Held að það sé verið að lögsækja hann..
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár