Aðili

Baldvin Þorsteinsson

Greinar

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu
FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.
Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.
Félag Þorsteins Más lánaði börnum hans 29 milljarða til að kaupa hlut þess í Samherja
FréttirSamherjaskjölin

Félag Þor­steins Más lán­aði börnum hans 29 millj­arða til að kaupa hlut þess í Samherja

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn, í eigu Þor­steins Má Bald­vins­sonar og Helgu S. Guð­munds­dóttir, lán­aði félagi í eigu barna þeirra, Baldvins og Kötlu, 29 millj­arða króna til að kaupa hluta­bréf í Samherja af þeim í fyrra. Félag Baldvins og Kötlu greiðir rúmar 1100 millj­ónir króna á ári í afborg­anir af lán­inu.
Samherji flutti 2,4 milljarða frá lágskattasvæðinu Kýpur í gegnum fjárfestingarleiðina
FréttirSamherjamálið

Samherji flutti 2,4 millj­arða frá lág­skatta­svæð­inu Kýpur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji lét dótt­ur­fé­lag sitt á Kýpur, Esju Seafood, lána rúm­lega 2 millj­arða króna til ann­ars félags síns á Íslandi árið 2012. Samherji nýtti sér fjá­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og fékk 20 pró­sent afslátt af íslenskum krónum í við­skipt­unum. Mánuði eftir þetta gerði Seðla­bank­inn hús­leit hjá Samherja og við tók rann­sókn á gjald­eyr­is­við­skiptum útgerð­ar­innar sem varði í fjögur ár.

Mest lesið undanfarið ár