„Ég mun kveðja fólk hér í Namibíu og hjá Samherja og hef engar skyldur til að hjálpa Samherja að „fela“ þetta,“ sagði Jón Óttar Ólafsson, afbrotafræðingur og þáverandi ráðgjafi hjá Samherja í Namibíu, í tölvupósti til yfirlögfræðings Samherja, Örnu Bryndísi McClure, í lok árs 2016. Í tölvupóstinum lýsti Jón Óttar yfir óánægju með stöðu sína hjá félaginu og launakjör, sérstaklega var hann gagnrýninn á Baldvin Þorsteinsson, son forstjóra Samherja, Þorsteins Más Baldvinssonar. Tölvupósturinn er hluti af umfangsmiklu gagnamagni sem er undir í rannsóknum héraðssaksóknara á starfsemi Samherja í Namibíu. Sakborningar í málinu eru spurðir út í hluta þessara gagna við yfirheyrslur.
Með orðum sínum um að honum bæri ekki skylda til að hjálpa Samherja að „fela þetta“ vísaði Jón Óttar að öllum líkindum til þeirra greiðslna …































Athugasemdir