Stjórnendur Íslandsbanka: Liðkuðu til fyrir Samherja í Namibíu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­aði með stjórn­ar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fund­ur­inn leiddi til þess að Samherji fékk með­mæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Birna Ein­ars­dóttir segir að hún hafi ein­ungis verið að aðstoða við­skipta­vin bank­ans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fund­ur­inn leiddi.

<span>Stjórnendur Íslandsbanka:</span> Liðkuðu til fyrir Samherja í Namibíu

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, aðstoð­aði útgerð­ar­fé­lagið Samherja með óbeinum hætti við að kom­ast í kynni við ráða­menn í Namibíu um haustið 2011. Þetta gerð­ist þannig að Birna skipu­lagði hádeg­is­verð­ar­fund með þáver­andi stjórn­ar­manni í bank­anum, Daniel Levin, og feðg­unum Þor­steini Má Bald­vins­syni og Baldvin Þor­steins­syni. Á fund­inum var ákveðið að Daniel Levin myndi tengja Sam­herj­a­menn við þekktan namibískan auð­kýf­ing, Harold Pupkewitz, sem svo tengdi stjórn­endur Samherja við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, Bernhard Esau, með kynn­ing­ar­bréfi um félagið. Hádeg­is­verð­ar­fund­ur­inn fór fram á veit­inga­staðnum Fisk­fé­lag­inu í miðbæ Reykja­víkur. Um var að ræða ein fyrstu sam­skiptin við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann vegna við­skipta Samherja í land­inu.

Þetta kemur fram í gögnum, sem Stundin hefur undir höndum, sem eru undir í rann­sóknum íslenskra og namibískra yfir­valda á Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. 

„Ég skal alveg við­ur­kenna það að ég var að reyna að ganga í augun á Samherja með þessu.“
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ný Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu
FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.
KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans
FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þor­steins Más vegna „óánægju“ hans

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórn­endastrúktúr Sam­herj­a­sam­stæð­unnar eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son lýsti yfir óánægju með drög að skýrsl­unni. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur yfir­heyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerð­ina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mik­inn áhuga á valdsviði Þor­steins Más innan Samherja.
Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.
Ný Samherjaskjöl: „Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Ný Sam­herj­a­skjöl: „Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Ný gögn sem eru undir í rann­sóknum hér­aðs­sak­sókn­ara og namibískra yfir­valda varpa ljósi á hversu víð­tæk þekk­ing var um mútu­greiðslur og hátt­semi Samherja í Namibíu innan útgerð­ar­ris­ans. Frjáls­lega var talað um mútu­greiðslur og hót­anir í skrif­legum sam­skiptum lyk­il­stjórn­enda. Þor­steinn Már Bald­vins­son fékk stöðugar upp­lýs­ingar um gang mála.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár