Þorsteinn Már tilkynnti saksóknara að hann myndi engu svara

Þor­steinn Már Bald­vins­son var yfir­heyrður vegna Namib­íu­máls­ins í annað sinn í sumar. Hann mætti með bókun í fartesk­inu sem lög­maður hans lagði fram þar sem hann til­kynnti rann­sak­endum að hann ætl­aði ekki að svara neinum spurn­ingum.

Þorsteinn Már tilkynnti saksóknara að hann myndi engu svara

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, neit­aði að svara spurn­ingum hér­aðs­sak­sókn­ara þegar hann var yfir­heyrður í annað sinn vegna Namib­íu­máls­ins í sumar. Hann var einn þeirra sak­born­inga og vitna sem kölluð hafa verið til yfir­heyrslu á síð­ustu mán­uðum. Átta núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn eru nú með rétt­ar­stöðu í mál­inu. 

Ástæð­urnar sem Þor­steinn Már gaf voru að hann hefði fengið tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um sak­ar­efni; ekki sé full­nægj­andi að vísa til rann­sóknar á mútu­greiðslum frá Samherja og Samherja Holding, enda sé rekstur þess­ara tveggja félaga víð­tækur. Í bók­un­inni segir hann vanta upp­lýs­ingar um stað, stund, verkn­að­ar­að­ferð, ger­anda, þol­anda, verk­færum, teng­ingu sína við málið og nákvæma til­vísun til refsi­á­kvæða. 

„Það er ábyrgð­ar­laust að tjá sig um gömul mál við slíkar aðstæður og án und­ir­bún­ings og yfir­legu yfir gögnin“

Hann bar líka fyrir sig aðferðum rann­sak­enda, að velja gögn og leggja fyrir sak­sókn­ara í þeirri röð sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ný Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu
FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.
KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans
FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þor­steins Más vegna „óánægju“ hans

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórn­endastrúktúr Sam­herj­a­sam­stæð­unnar eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son lýsti yfir óánægju með drög að skýrsl­unni. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur yfir­heyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerð­ina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mik­inn áhuga á valdsviði Þor­steins Más innan Samherja.
Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.
Bankastjóri og stjórnarmaður Íslandsbanka liðkuðu til fyrir viðskiptum Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórn­ar­maður Íslands­banka liðk­uðu til fyrir við­skiptum Samherja í Namibíu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­aði með stjórn­ar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fund­ur­inn leiddi til þess að Samherji fékk með­mæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Birna Ein­ars­dóttir segir að hún hafi ein­ungis verið að aðstoða við­skipta­vin bank­ans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fund­ur­inn leiddi.
Ný Samherjaskjöl: „Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Ný Sam­herj­a­skjöl: „Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Ný gögn sem eru undir í rann­sóknum hér­aðs­sak­sókn­ara og namibískra yfir­valda varpa ljósi á hversu víð­tæk þekk­ing var um mútu­greiðslur og hátt­semi Samherja í Namibíu innan útgerð­ar­ris­ans. Frjáls­lega var talað um mútu­greiðslur og hót­anir í skrif­legum sam­skiptum lyk­il­stjórn­enda. Þor­steinn Már Bald­vins­son fékk stöðugar upp­lýs­ingar um gang mála.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár