„Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Ný gögn sem eru undir í rann­sóknum hér­aðs­sak­sókn­ara og namibískra yfir­valda varpa ljósi á hversu víð­tæk þekk­ing var um mútu­greiðslur og hátt­semi Samherja í Namibíu innan útgerð­ar­ris­ans. Frjáls­lega var talað um mútu­greiðslur og hót­anir í skrif­legum sam­skiptum lyk­il­stjórn­enda. Þor­steinn Már Bald­vins­son fékk stöðugar upp­lýs­ingar um gang mála.

„Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Áður óbirt gögn innan úr Samherja sýna hversu víð­tæk þekk­ing var um mútu­greiðslur til hátt­settra og vel tengdra Namib­íu­manna til að verða fyr­ir­tæk­inu úti um verð­mætan fisk­veiði­kvóta í Namibíu. Talað er opin­skátt um að greiða mútur og tölvu­póstar sem eru undir í rann­sókn íslenskra og namibískra yfir­valda sýna hvernig und­ir­menn Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra og þá aðal­eig­anda útgerð­ar­ris­ans, héldu honum stöðugt upp­lýstum um þróun mála í Namibíu. Gögnin gefa líka til kynna að Þor­steinn hafi kynnt starf­sem­ina fyrir stjórn Samherja.

Þessi nýju gögn sýna líka að Þor­steinn Már átti fjöl­marga fundi, fleiri en áður hefur verið greint frá, í eigin per­sónu með „hákörlunum“, namibísku ráða- og áhrifa­mönn­unum, sem nú sitja bak við lás og slá í Namibíu og bíða þess að koma fyrir dóm vegna ákæru um mútu­þægni. Þá afhjúp­ast þær aðferðir sem starfs­menn útgerð­ar­innar not­uðu til að halda sam­skiptum sínum leyndum og við­horf Þor­steins Más til þess að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OS
    Olgeir Sigmarsson skrifaði
    Bravó!

    Kominn tími á alvöru fréttamennsku. Haldið áfram á sömu braut, ekki veitir af aðhaldi frá fjölmiðlum.
    0
  • Alexandra Briem skrifaði
    En ótrúlega ömurlegt framferði hjá þessu fólki. Ekki vottur af siðferði eða sómakennd.

    Kjósum ríkisstjórn sem við treystum til að tryggja að þetta mál og önnur sambærileg verði rannsakað til fullnustu.
    0
  • FSK
    Fríða S. Kristinsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessar upplýsingar um mjög svo ógeðfellt mál Samherja gagnvart Namibíu.
    Vel unnið hjá ykkur rannsóknarblaðamenn Stundarinnar.
    0
  • Tímabærar skýringar, ef réttar, á sóðaskap viðskipta íslendinga á fyrirtækjasviði, lögfræðinga, bankastofnana sem og stjórnmálamanna. Sjálfsagt ekki öll kurl til grafar komin en þetta lítur svæsið ut. Takk takk
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hef enga athugasemd að senda ykkur. Mér finnst þetta bara einstaklega vel af hendi leyst .
    Loksins kemur sannleikurinn í ljós.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Loksins, loksins.!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ný Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu
FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.
KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans
FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þor­steins Más vegna „óánægju“ hans

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórn­endastrúktúr Sam­herj­a­sam­stæð­unnar eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son lýsti yfir óánægju með drög að skýrsl­unni. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur yfir­heyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerð­ina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mik­inn áhuga á valdsviði Þor­steins Más innan Samherja.
Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.
Bankastjóri og stjórnarmaður Íslandsbanka liðkuðu til fyrir viðskiptum Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórn­ar­maður Íslands­banka liðk­uðu til fyrir við­skiptum Samherja í Namibíu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­aði með stjórn­ar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fund­ur­inn leiddi til þess að Samherji fékk með­mæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Birna Ein­ars­dóttir segir að hún hafi ein­ungis verið að aðstoða við­skipta­vin bank­ans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fund­ur­inn leiddi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár